Vikan


Vikan - 03.10.1985, Qupperneq 13

Vikan - 03.10.1985, Qupperneq 13
finnst þaö mjög mikilvægt. Það eru svo fáir hérna sem tala spænsku. En þetta er mjög erfitt og ég heföi kannski gef- ist upp ef ég byggi hjá enskumælandi þjóö því þaö geta allir hér bablað eitt- hvaö í ensku. En ég læt mig hafa þaö þó þetta sé svolítið erfitt. Ég skil ekki hvernig maöurinn minn þolir þaö því hann skilur ekki neitt, en hann hefur umboriö þetta hingaö til! — Og þú ert alveg orðin sátt við að búa þarna núna? Já, en þaö hefur tekið svona fjögur ár aö sætta sig alveg viö þaö. Ég gæti sjálfsagt alveg komið mér aftur inn í íslenska kerfiö ef ég þyrfti þess þó þaö sé svo allt, allt ööruvísi. Eitt er þaö líka sem ég hef átt erfitt meö aö venj- ast en þaö er aö hér hefur mér fundist fólk geta fengið allt frekar auöveld- lega. Menn hafa tekiö víxla — í þaö minnsta var þaö þannig þegar ég var hérna — til að byggja, kaupa sér bíl og þetta allt. En í Mexíkó er varla til nokkuö sem heitir lán. Ef maður ætlar aö kaupa sér íbúö eöa hús þarf maöur annaöhvort aö hafa veriö í vinnu hjá ríkinu eöa stóru fyrirtæki í eitt til eitt og hálft ár til aö geta fengið lán hjá rík- inu eöa fyrirtækinu eöa bara safna peningum og þaö er nær algjörlega vonlaust aö safna sér fyrir íbúö! En þaö er ekkert sem heitir aö fara í banka og fá lán. Þaö er aöeins aö koma til dæmis hjá stóru bílaumboðunum aö menn megi borga meö afborgunum en áöur var allt út í hönd, nema ef ríkið eöa fyrirtækið, sem maður vann hjá, lánaði manni til aö kaupa bílinn. En þaö eru ekki allir sem vinna hjá rík- inu eöa stóru fyrirtæki. Maöurinn minn vinnur sjálfstætt meö skólanum þann- ig aö hann þarf aö vinna ofboðslega mikið til aö geta safnaö fyrir íbúö. Þess vegna gengur allt miklu hægar. Skynsamt fólk í miöstéttinni, og þaö skildi ég ekki fyrst þegar ég kom, það kaupir sér húsnæöi og allt inn í þaö áö- ur en þaö giftir sig. Hér haföi ég bara vanist því aö fólk byrjaði að búa sam- an og keypti síðan einhverja íbúö og flytti inn. En nú skil ég þetta betur. Ef ég væri Mexíkani myndi ég líka kaupa mér íbúö og bíl og því um líkt áöur en ég gifti mig, þannig að fyrstu hjóna- bandserfiöleikarnir væru ekki fjár- hagserfiðleikar viö aö kaupa íbúö því það er svo erfitt. Þannig aö ég er smám saman aö skilja ýmislegt sem ég gat alls ekki skiliö áöur, annan lífs- máta, aörar venjur. Eins og ég sagöi áöur þá eru löndin sem ég haföi verið í áöur, England og Þýskaland, mjög lík því sem hér er og ég var náttúrlega miklu yngri. Og þegar maöur fer aö skilja þetta þá er allt miklu auöveld- ara. Tengdamæður eiga það til að vera eigingjarnar — Hvernig gekk þér til dæmis að eign- ast vini og kynnast ættingjum mannsins þins? Ættingjar hans eru alveg sérstak- lega almennilegir. í Mexíkó er mjög al- gengt aö tengdamóöirin sé reglulega eigingjörn meö sín börn, sérstaklega synina. En tengdamóöir mín er sem betur fer ekki þannig. Tengdapabbi er dáinn fyrir fimm árum. Maöurinn minn á tvær systur, önnur er læknir og hin í háskólanámi, og þær eru vel menntaöar og víösýnar. Þær hafa ferö- ast vítt og breitt um heiminn, en þaö er nú samt ekkert alitaf aö fólk sem ferö- ast mikið sé umburöarlyndara. En þær hafa tekið mér mjög vel. Tengda- mamma vinnur úti og hún átti sjálf erf- iöa tengdamömmu svo hún er alltaf aö reyna aö vera almennileg viö mig sem betur fer, og öll fjölskyldan. Mexíkan- ar eru mjög opnir fyrir útlendingum og engir fordómar gagnvart þeim. Þeim finnst allt útlent fremur forvitnilegt og sniðugt. Mexíkanskar stelpur eru kannski svona svolítið hræddar um mennina sína gagnvart manni en þegar þær sjá að maöur er ekkert á eftir þeim (í þaö minnsta ekki ég, ég veit ekki um aörar, skýtur Helga inn í og brosir) þá veröa þær smám saman mjög góöar vinkon- ur. En samt þekki ég meira af amer- ískum konum sem búa þarna. Þaö er enn eins og þaö sé einhver smáveggur þarna á milli, ég veit ekki alveg hvaö þaö er. Ég hef talað viö íslenska konu sem hefur búiö þarna í um 18 ár og hún segir svipaöa sögu, hún á tvær eöa þrjár mexíkanskar vinkonur en hinar eru amerískar eöa frá öörum löndum. — Vinna mexikanskar konur utan heimilis? Tengdamóöir mín mátti til dæmis aldrei vinna úti, maðurinn hennar vildi aldrei leyfa henni þaö. En hún hafði einkaritarakunnáttu og hún fór aö vinna hálfu ári áöur en hann dó. En þær eru miklu meira farnar aö fara út á vinnumarkaðinn núna, þaö þýöir ekkert annaö. Þær er farið aö langa til aö eignast alls konar rafmagnstæki, hafa nýjungar og þægindi og þá þýöir ekkert annaö en aö konan vinni lika. Það er nóg til af barnaheimilum og stofnunum til þess aö passa krakkana. Flestallar konur sem ég þekki vinna úti, nema þær sem eru yfir fertugt eöa eldri og hafa ekki komist á vinnumark- aöinn þegar þær voru yngri. Eg er bara búin aö búa þarna í tæp sjö ár en ég sé mikinn mun á hugsunarhættin- um. — Taka karlarnir einhvern þátt i heim- ilisverkunum? Nei, mjög lítiö. Það er frekar aö fólk fær konur til aö koma heim og vinna. Þaö er svo ódýrt að þaö er alveg hægt af kaupinu sem þær fá. Annars er kaupið alls ekki gott og þaö þarf aö vinna langan vinnudag. Gífurleg stéttaskipting — Er mikil og áberandi stéttaskipting? Já. Þegar ég var í útlendingadeild- inni þekkti ég þýska stelpu. Pabbi hennar var diplómat og hún hafði búiö meö diplómötum í Sviss, Austurríki og Þýskalandi og síöan í Mexíkó. Hún sagðist aldrei hafa kynnst ríkara fólki á ævi sinni en heldur aldrei séð fátæk- ara fólk en í Mexíkó. Sum hús, sem fólk býr í, eru ótrúleg hreysi. Þaö rignir mikiö á rigningartímanum og getur oröiö mjög kalt, og ég skil ekki hvernig þetta fólk getur bara lifaö. Þaö er ákaflega erfitt aö rífa sig upp úr fátæktinni en þaö er alveg ótrúlegt hvaö sumir komast upp úr engu og fara aö læra. Það gefur enginn þeim séns á vinnu því þeir eru ekki meö nein meðmæli en samt komast þeir ein- hvern veginn í gegnum þetta, fara í há- skóla og ljúka námi sem er alveg ótrú- legt afrek. Fátæklingarnir koma margir úr sveitaþorpunum og halda aö þeir fái stóru tækifærin í borginni, en svo bregst þaö og þeir veröa bara eftir í borginni, eiga ekki fyrir farinu heim, kunna ekkert aö bera sig aö viö að fá vinnu og veslast bara upp þar. — Er oitthvert almannatryggingakerfi á vegum ríkisins? Nei, en þeir sem vinna hjá fyrirtæki eöa ríkinu eru í sjúkrasamlagi og þaö kostar eitthvaö smávegis mánaðar- lega, og síðan er ellilífeyrir. En þaö eru alls ekki allir í sjúkrasamlagi og ekkert almannatryggingakerfi sem allir eru í eins og hérna. Fólk getur sótt um að komast í sjúkrasamlag og þarf þá aö borga fyrir þaö. Þaö eru heilsu- gæslustöðvar í öllum borgum en ég er svo heppin aö mágkona mín er læknir svo ég hringi bara í hana ef eitthvað er aö því maður getur þurft að bíöa óskaplega lengi eftir aö komast aö hjá lækni og maöur getur þurft aö fara á staðinn og panta tíma. Heim af fæðingardeildinni eftir fjóra tíma — Þú eignaðist bœfli börnin þin þarna úti. Hvernig var afl ganga mefl og fæfla þarna? Þaö var allt ööruvísi en þaö er hérna. Þegar ég átti fyrra barniö vann maöurinn minn hjá ríkinu þannig að ég gat farið á spítala hjá einu af sjúkrasamlögunum. Þaö var allt í lagi. Strákurinn var tekinn meö töngum þannig aö ég fékk að vera þarna í nokkra daga. En þetta er ekki eins per- sónulegt þarna og hér. Ég var aö eiga fyrsta barnið um kvöldið og svo um morguninn, þegar ég vaknaði, þá sá ég lítið rúm á hjólum þarna á gólfinu inni í stofunni hjá mér. Ég fór aö gá hvaö þetta væri og þá lá barniö þarna ofan í! Ég vissi varla hvaö ég átti aö gera. Hjúkrunarkonan var ekkert aö koma og sýna mér barnið eöa hvaö ég ætti aö gera. Þetta var voðalegt sjokk fyrir mig. Ég var svo ein heima í íbúðinni allan daginn með barniö og mig lang- aöi til aö sýna þaö og keyra meö þaö úti í vagni. Ég haföi alltaf ímyndaö mér þaö þannig, eins og það var á Islandi — og þaö var skömmu eftir þetta sem viö fórum heim til íslands. En svo þegar ég átti annaö barniö vissi ég nokkuð á hverju ég átti von. En þeir eru voöalega röff viö mann. Ég átti stelpuna klukkan fjögur um nótt- ina og klukkan átta um morguninn var komiö inn til mín og spurt hvort ég vildi ekki fara heim! Eg var ekki meö neina vinnukonu þá og maðurinn minn er ekki mikið fyrir aö þrífa og ég vissi á hverju ég ætti von þegar ég kæmi heim meö litla barniö og strákurinn var þá þriggja ára. Svo ég sagöi nei og spuröi hvort ég mætti ekki vera fram á næsta dag og fékk þaö. Þaö er algengt Daglegt líf i Mexíkóborg er talsvert frábrugflið því sem gerist á íslandi. I 40. tbl. Víkan 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.