Vikan


Vikan - 03.10.1985, Page 18

Vikan - 03.10.1985, Page 18
held að þessir litlu hæfileikar, sem ég hef til hugsunar, hefðu nýst miklu betur þannig en á bak við trommusett.” Af tómu monti — Hvenær byrjaðirðu að spila? „Þetta byrjaði allt af tómu monti. Ég var staddur á unglinga- dansleik í Iðnó fyrir óskaplega mörgum árum. Ég hafði alltaf mikinn áhuga fyrir tónlist og því sem hljóðfæraleikarar voru að gera. — Keypti reyndar fyrstu plötuna mína tíu eða ellefu ára gamall og var þá svo heppinn að detta ofan á Duke Ellington. Áhuginn fyrir djassi hefur fylgt mér síðan. Nú, ég er á þessum dansleik og stari á hljómsveitina. Þá kemur að mér einhver náungi og spyr hvort ég spili á hljóðfæri. Ég svara auðvitað fullur af grobbi: Já, já, já, já. Auðvitað spila ég — og hafði aldrei snert á hljóðfæri. Hann spurði þá á hvaða hljóðfæri ég spilaði. Ég leit bara á það sem næst mér stóð og svaraði: Trommur! Þá uppveöraðist náunginn allur og spurði hvort ég vildi koma með sér í hljómsveit. Ég afþakkaði það á stundinni og sagðist ekki eiga neitt trommusett. Það er ekkert mál, sagði stráksi. Eg á öll hljóö- færin en vantar bara mannskap. Þarna var kominn Kristján Kristjánsson.” — Þið fóruð síðar saman til tón- listarnáms i Bandaríkjunum, ekki satt? „Jú, en fyrst lærði ég nú eitt- hvað hér heima, var í tímum hjá ágætis mönnum, eins og Poul Bernburg og Jóhannesi Eggerts- syni. Svo spiluðum við Kristján saman með tveimur eða þremur öðrum á skólaböllum, sveita- böllum og hinum og öðrum skemmtunum. Síðan fórum við Kristján í tónlistarnám til Banda- ríkjanna árið 1946 og fengum inn- göngu í Julliard School of Music í NewYork.” — New York-dvölin hefur tæpast slegið á djassbakteríuna. „Nei, þar fékk hún að vaxa og dafna því að ég var á djasshljóm- leikum og í djassklúbbum sjö kvöldíviku. ...” —. . . Og eftir þessu sérðu! „Nei, nei. Ég sé auðvitað ekkert eftir neinu af þessu. Það verður engu breytt héðan af og líf mitt hefur kannski átt að veröa einmitt svona. En ég hefði viljað að það hefði farið í annan farveg.” — Gátu menn orðið rikir af að spila á hljóðfæri i gamla daga? „Nei, ekki einn einasti maöur. Það urðu nánast allir að vera í öðrum störfum með spilamennsk- unni. Ég vann til að mynda yfir- leitt eitthvað með hljóðfæraleikn- um. Nýkominn heim frá allt of stuttu námi í Bandaríkjunum — þaö voru því miður ekki til pening- ar til að vera þar nógu lengi — gerðist ég verkamaður á eyrinni jafnframt því að spila á trommur. Þar var ég í tvö sumur. Ég fékkst viö ótal hluti aðra: vann á auglýsingastofu, sem var einkar skemmtilegt starf, ég var auglýsingastjóri Vísis í tvö eöa þrjú ár. . . Þetta var svona sitt af hverju.” — Hljómlistarmenn kvarta i dag yfir allt of iágum taxta FÍH. Var hann kannski hlutfallslega lægri hér áður fyrr? „Ég veit nú ekki hvað er borgað fyrir þetta í dag, en taxtinn var býsna lágur hér áður fyrr. Gallinn var sá að það var verið að reyna að miða tímakaup hljóðfæraleik- ara við eitthvert venjulegt tíma- kaup. Hvernig er hægt að ætlast til þess að hljóðfæraleikari fái aðeins tvöfalt hærra tímakaup en verka- maður, til dæmis? Hann hafði hér áður fyrr ekki tækifæri til aö spila nema svo sem fimmtán til tuttugu klukkustundir í viku — á föstudög- um, laugardögum og sunnudög- um. Þar fyrir utan voru svo allar kauplausu æfingarnar. Auðvitað heföi þurft að borga hljóðfæra- leikurum svo sem áttfalt verka- mannakaup eða jafnvel tífalt en þaö datt engum slíkt í hug á þeim tíma. Menn urðu því að láta sér það lynda að vinna með spila- mennskunni ef þeir vildu vera að gutlaíhenni.” — En tiðkuðust ekki yfirborganir til vinsælustu hljómsveitanna, eins og til dæmis hljómsveitar Svavars Gests? „Yfirborganir þekktust ekki fyrr en um 1965 eða svo. Ég get sagt þér hvenær ég kynntist þeim. Kannski var það einmitt upp úr þeim kynnum sem ég tók þá ákvörðun að hætta hljóðfæraleik.” Þar sýöur vatniö á Lionskatlin- um. Svavar býður upp á neskaffi, rótsterkt, og gefur mér auga með- an ég kyngi fyrsta sopanum. „Ég blanda kannski fullsterkt í bollann,” segir hann glottuleitur. „Ég drekk nefnilega úr fanti heima og finnst ég alltaf vera að blanda í hann. Yfirborganir, já. Þeim kynntist ég fyrst um það bil sem ég var að gera það upp við mig hvort ég ætti að hætta sem hljóðfæraleikari eða ekki. Þannig var að ég gaf fyrir til- viljun út mína fyrstu plötu árið 1964. Ég vann ágæta plötu með Éjórtán fóstbræðrum og hljóm- sveit Svavars Gests, syrpur sem ég setti saman og við notuðum í útvarpsþáttum. Ég fór með þess- ar upptökur til Islenskra tóna því að hljómsveitin mín hafði leikið inn á plötur fyrir þá útgáfu. Þá var Tage Ammendrup, sem var með íslenska tóna, að draga sam- an seglin og sagði mér að gefa þetta bara út sjálfur. Þetta gerði ég. Síðan komu nokkrar plötur í kjölfariö, sem gengu alveg prýðilega. Á þessum árum var nánast ekkert framboð af íslenskum hljómplötum þannig að þetta seldist allt ágætlega, burtséð frá því að þetta var ágætis vara. Nú, nú, þetta var útúrdúr. Snemma árs 1965 vorum við aö spila á Hótel Sögu, einhver besta hljómsveit sem ég hafði nokkru sinni verið með og líklega einhver albesta danshljómsveit sem hefur verið starfrækt hér á landi. Þetta var á dansleik hjá dansskóla Heiðars Ástvaldssonar. Ég man nú ekki hvert tímakaupiö var um þetta leyti en við skulum bara segja að það hafi verið hundrað krónur. Að dansleik loknum geri ég upp við Heiðar og hann segir forviða: Hvað? Kostar þetta ekki meira? Ég segi að þetta sé taxt- inn. Þá mælir Heiðar: Ég var að gera upp við einhverja stráka í Keflavík í fyrradag, sem voru að spila fyrir mig. Þeir vissu ekkert um neinn taxta og sögðust taka 250 krónur á tímann hver maður. Ég sagði þá við Heiðar: Guð minn almáttugur. Ef einhverjir strákar í Keflavík taka 250 krónur á tímann, hvað er ég þá aö gera í þessu starfi með besta fólk á Is- landi, á flottasta stað á íslandi og hundrað krónur á tímann? Hvaða strákar eru þetta eiginlega? Og Heiðar svaraöi alveg grandalaus: Þetta eru einhverjir síðhærðir strákar þarna. . . . Þeir kalla sigHljóma!” — Hljómar áttu þá þátt í að þú hættir? „Ég flýtti mér auðvitað að hætta og gaf svo Hljóma út á plötu!” Samdráttur — Hvernig atvikaðist það að þú gafst Hljóma út? „Það var raunverulega enginn annar að gefa út plötur á þessum árum. Þeir komu til mín með fyrstu lögin sín, Bláu augun þín og Fyrsta kossinn, en með enskum textum. Ég sagöi þeim auðvitað að ég vildi fá íslenska texta við lögin enda þekktist ekki á þessum tíma að íslenskar hljómsveitir flyttu lög sín á plötum með ensk- um textum. Þeir höfðu heldur eng- an áhuga fyrir öðru en að fá íslenska texta. Enskuna höfðu þeir bara notað á böllum. Svo var þetta gefið út og varð vinsælt.” — Alveg hörkuvinsælt? Svavar hugsar sig um. „Jú, fyrsta platan, með lögunum Fyrsti kossinn og Bláu augun þín, seldist mjög vel. En við verðum að hafa í huga að plötur seldust ekk- ert stórkostlega á þessum árum, kannski í tvö þúsund eintökum, sem þótti mjög gott. Plötuspilar- arnir voru svo fáir.” — Eftir rúm tuttugu ár sýnast mér S.G. hljómplötur nú hafa nokk- uð dregið saman seglin, er ekki svo? „Jú, það er rétt. Ég gaf út að meðaltali um tólf til fjórtán plötur á ári í þessa tvo áratugi. Síðustu tvö árin hef ég dregið mjög úr útgáfunni, eins og reyndar allir þeir sem gefa út íslenskar plötur. Starfshættir fólks hafa breyst svo mjög. Fólk lifir lífinu allt öðruvísi en áður var. Nú er það myndband- ið sem tekur tímann. Útilíf spilar einnig inn í þetta. Nú, menn tala um að rás tvö afgreiði kannski þörfina fyrir hlustunina á nýjustu tónlistinni, hvort sem hún er íslensk eða erlend. Það er ekki bara rásin ein sem er um að kenna. Það eru allir þessir hlutir og kannski ennþá fleiri sem spila saman. En þetta á eftir að breyt- ast. Platan kemur aftur upp, eins og hún hefur alltaf gert þegar hún hefur fallið í öldudal. Það eru rúm hundrað ár síðan fyrsta platan kom út og hún hefur staðiö ýmislegtaf sér.” — Ætlarðu að halda áfram þar sem frá var horfið þegar ástandið lagast? „Ég hef ekki tekiö ákvörðun um það. Ég á gífurlega mikið efni sem ég get endurútgefiö á eins konar safnplötum. Ég hef reyndar gefið þær út í gegnum tíðina. Ég er stöðugt með plötur í útgáfu og sölu, ýmiss konar barnaplötur. Þær seljast alltaf. Fyrirtækið er enn starfandi. Þú getur gengið inn í nánast hvaða plötubúð sem er á landinu og fundið S.G. hljómplötu. Úrvalið er kannski ekki jafnmikið og áður. Titlarnir eru færri en þeir eruístöðugrisölu.” — Helstu keppinautar þínir. Fálk- inn, Steinar og Skifan, hafa snúið sér að miklu leyti að myndbanda- sölu með plötunum. Hefur þú ekki hugleitt að vídeóvæðast? „Nei. Ég hefði kannski átt að fara að dæmi Steina og Skífunnar og fá erlend plötuumboð. Þessi fyrirtæki byrjuðu eins og mitt, með því að gefa út íslenskar plöt- ur. Meö því móti hefði þetta allt orðið stærra og viðameira og þá hefði myndbandið kannski mátt fylgja á eftir. En ég hafði bara engan áhuga fyrir slíku. Ég vil ekki breiða úr mér og leggja mikið undir. Ég var með þetta fyrirtæki, S.G. hljómplötur, og lifði á því 18 Vikan 40. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.