Vikan - 03.10.1985, Page 24
ég álít vera þessa leiðarvísa, eru á
því svæði.
Kom fram i kenningum Nostra-
damusar hætta sú sem fólgin er í
fundi fjársjóðanna?
Já. Hann sá fyrir að hver sá er
fyndi fjársjóðina myndi láta lifið
með útsprungin augu, eins og ein-
hver heföi sprengt þau innan frá
höfuðkúpunni. Ég trúi þessu.
Egyptar til forna voru sérfræðing-
ar í að leggja gildrur. Ef hugsað er
aftur í tímann man fólk eftir hvað
gerðist er grafhýsi Tutankhamons
var opnað. Næstum allir leiðang-
ursmenn létust samstundis en þeir
voru þrjátíu að tölu. Leiðangurs-
stjóri hópsins, Canarvan lá-
varður, lifði í fáeinar klukku-
stundir en lést einnig af undar-
legum sjúkdómi.
Árfur úr
himingeimnum
Hvert er álit þitt á þessum sið-
menningararfi?
Ég er sannfærður um að í þess-
um örkum sé geymd þekking sem
stendur okkar siðmenningu að öllu
leyti framar, vitsmunir hafðir að
leiðarljósi. Þar að auki er ég þess
fullviss að siðmenning þessi á upp-
haf sitt aö rekja til annarra plán-
etna, utan úr geimnum.
Hvernig geturðu fullyrt það?
Fyrir stuttu unnu tveir skoskir
stjörnufræðingar, Duncan Lunan
og Anthony Lawton, viö að hljóð-
rita endurkast bylgna utan úr
geimnum. Þeir urðu þess varir að
munstrið virtist alltaf vera það
sama. Síðar uppgötvuðu þeir ugg-
vænlegan hlut. Að sólkerfið Boote,
einnig þekkt sem Epsilon, hafði
nákvæmlega sama munstur þrett-
án þúsund árum áður. En þá lenti
Epsilon í stjarnfræðilegum ham-
förum og þeir sem af lifðu flúðu til
jarðarinnar. Stjörnufræðingarnir
tveir áttuðu sig ekki á þýðingu
þessara merkja. Ég er viss um aö
ég hef fundið vísbendinguna.
Þessar verur frá Epsilon skildu
eftir sig arfleifð okkur til handa,
pýramídana. Eða það sem betra
er, ófundinn leiðarvísi að visku og
þekkingu sem þær komu fyrir inni
í þeim.
Fjársjóðurinn
Hvers konar þekking heldur þú
að búi i fjársjóðnum?
I hinum huldu fjársjóðum mun
finnast eilífðarljósið, aðferöin tiL
að nota orkuna í umhverfinu, einn-
ig hugarþekkinguna til aö lækna
veikindi og nákvæmar
upplýsingar um staðina þar sem
orka mannslíkamans býr, jing og
jang. Vísbendingar að fullkominni
þekkingu á stjörnufræði og á
einstaklingnum og samfélaginu,
nú á tímum og í framtíöinni, munu
einnig finnast. Þetta er arfur íbúa
Epsilon sem var eitt sinn köld
stjarna en varð smám saman heit
svo að h'f dó út á henni. Litur
hennar var eins og grænblár litur
jarðar. En áður en hún hvarf úr
himingeimnum náði hún að skilja
eftir sig arf enda var yfirburða-
menning á henni. Þessi menning
geymist í örkum, þaö er
pýramídum Gizeh sléttunnar. Með
því að ganga inn í gegnum „hið
falda auga” í einum þeirra og
byrja að grafa 1469 metra frá má
finna vísbendinguna.
Aðhlátursefni
Hr. Moracci, hvernig hefur kenn-
ingum þinum verið tekið?
Hingað til hef ég ekki fengið
þau viðbrögð sem ég bjóst við. Ég
gaf út bók mína fyrir einu ári. Þó
ég hafi ekki stóra bókaútgáfu að
bakhjarli er það staðreynd að þrjú
upplög hafa komið út á innan við
sexmánuðum.
Hvers konar viðbrögðum áttir þú
von á?
Ég bjóst við að ríkisstjórnir
tækju við sér, þjóðir styddu forn-
leifafræðinga svo þeir gætu leitað
að öðrum hvorum staðnum sem ég
hef fundið. Fyrr eða síðar mun
þetta þó gerast.
Og á meðan?
Á meðan mun ég bíða,
vopnaður þolinmæðinni. Ég veit
að maður verður að bíða og skeyta
því engu þó fólk brosi, fullt efa-
semda. Það er óhjákvæmilegt og
ég er viðbúinn því. En ég kann að
bíða.
24 Vikan 40. tbl.