Vikan - 03.10.1985, Page 35
Draumar
Kaka,
mamma,
tröppur,
vínarbrauð
Kœri draumráðandi!
Mig dreymdi svolítið und-
arlegan draum fyrir
skömmu. Mér fannst að ég,
mamma og systir mín
vœrum í Danmörku. Systir
mín kom allt í einu hlaup-
andi á móti okkur með köku
og ég sagði: Hvar fékkstu
þessa köku? Þá sagði hún: I
búð hér rétt hjá. Svo fór hún
bara og við mamma gengum
áfram niður brattan, þröng-
an stíg og það var alveg
niðamyrkur. Við þurftum að
þreifa okkur áfram með
fótunum. Svo þegar við
vorum komnar niður birti
allt í einu upp og hellingur
af krökkum kom á móti okk-
ur. Svo fór mamma niður
tröppur og kom aftur upp
með vínarbrauð og ég œtlaði
líka að fá mér einhverja
köku en mér fannst þœr all-
ar vera vondar. Og svo
vaknaðiég.
X.
Þetta er afskaplega góður
draumur. Þú lendir í einhverju
fremur erfiðu sem mun fá góðan
endi og þú verður ríkari mann-
eskja eftir en áður. Svo virðist
sem á móti blási hjá fjölskyldu
þinni um tíma en þessi draumur
bendir til þess að ágætlega rætist
úr því. Það er mjög sennilegt að
þessi draumur eigi að einhverju
leyti við fjármál fremur en önnur
fjölskyldumál eða einhver fram-
kvæmdaatriði innan fjölskyld-
unnar sem ekki ganga sem skyldi.
Amma í svört-
um kjól
Kœri draumráðandi.
Mig langar að láta ráða
þennan draum fyrir mig.
Mig dreymdi ömmu mína, en
hún lést fyrir þremur árum.
í draumnum fannst mér hún
vera lifandi. Þá er það
draumurinn: Mér fannst ég
vera að labba út götuna sem
amma átti heima í. Þegar ég
er komin að húsinu hennar
kemur hún út og er hún
svartklœdd, í svörtum kjól,
með svartan hatt og svarta
hanska.
Fannst mér eins og hún
vœri nýbúin að fá hjarta-
áfall. Segi ég þá við hana:
Hvert ert þú að fara, amma
mín ? Þá segir hún: Ég er að
fara út í búð að kaupa ilm-
vatn handa mér.
Göngum við þá saman út
götuna og að búðinni. Þegar
við erum komnar að henni
fer hún á undan mér inn. En
ég tafðist úti. Þegar ég kem
inn í bíiðina og lít á ömmu er
hún mjög reið. Ég varð þá
hrœdd um hana af því að ég
vissi að hún hafði verið las-
in.
Ég tek þá utan um hana og
spyr hvað sé að. Þá lítur hún
á mig, mjög sorgmœdd á
svip, segir ekki orð við mig
en bendir á lítinn rauðan
pakka á borðinu. Segi ég þá
við hana að við skulum fara
út. Þá fannst mér hún fara í
rauða kápu og taka litla
pakkann af borðinu og tvo
litla postulínsskó bundna
saman. Við það vaknaði ég.
Með kœrri kveðju,
Didda.
Draumur þessi bendir til þess að
einhverjir erfiðleikar séu fram-
undan hjá þér, sennilega vegna
óheppilegrar ákvörðunar sem þú
tekur í persónulegum málefnum,
þar sem þú lætur langanir þínar
verða yfirsterkari því sem þú
innst inni veist að er réttlátt í garð
annarra. Þú teflir á tæpasta vað
og það veldur þér allmiklum ama.
Þú færö aðstoð úr óvæntri átt og
mætir velvilja þeirra sem þykir
vænt um þig en niðurstaða
draumsins verður að teljast tví-
sýn, það er eins og þú viljir ekki
gefa þig þegar þú ert búin að bíta
það í þig sem veldur þessum
óþægindum.
Þú ættir að hugsa þig vel um
áður en þú tekur ákvörðun sem
orkar tvímælis. Það leynir sér
ekki við hvað þetta á og þú munt
ekki verða í vafa þegar að því
kemur.
Þú mátt ekki hika við að endur-
skoða afstöðu þína, þrjóska getur
sett málið í fastari hnút en ella.
Fugl, saltfisk-
ur, kossar
Kœra Vika.
Viltu hjálpa mér að ráða
þennan draum. Ég var stödd
í húsi, veit ekki hvar, og
œtlaði að fara heim að elda
matinn fyrir manninn minn
en fannst faðir minn (sem er
dáinn) hafa tekið bílinn okk-
ar og skilað honum bensín-
lausum. Mér fannst það allt
í lagi, ég vissi að hann hafði
alltaf langað að keyra bíl af
því hann hafði aldrei lœrt á
bíl. Ég segi svona: Þetta er í
lagi, ég fœ jeppann hans R.
að láni til að kaupa í mat-
inn. Ég bauð honum
nefnilega í mat í dag. Mér
fannst minn maður hálffúll
yfir þessu. Svo finnst mér R.
koma og með lítinn dreng
með sér af barnaheimilinu.
Mér bregður er ég sé barnið
og bið hann að fara með
barnið, það megi ekki sjást
hér enda ég ekki ein hérna.
Hann fellst á það en með
trega og ég kveð barnið með
söknuði. Svo fer ég að taka
matinn upp úr pottinum.
Það átti að vera slátur en
það kom saltfiskur og ýsu-
flök, sem áttu ekki að vera
þar, svo kom fugl, lítill,
dauður, svartur og hvítur.
Mér bregður og öskra á
manninn minn og bið hann
að taka fuglinn. Hann neitar
og fer út, frekar fúll yfir
matnum. En S. segir: Ég
skal taka hann, D., og setur
hann inn í svamp. Mér léttir.
En þá snýr R. sér að mér og
segir: Þér líður illa við að
sjá fuglinn. og tekur utan
um mig svo fast að ég finn
til. — En hvernig heldurðu
að mér líði, búinn að vinna
með þér í allt sumar? Þú hef-
ur breytt mínu lífi óvitandi
og án þess að ég gerði mér
grein fyrir því fyrr en nú.
Svo finnst mér hann segja:
Getur þú sagt það sama og
ég ætla að segja við þig. Mér
finnst hann herða takið um
mig og hann segir: Ég þrái
þig, ég get ekki afborið þetta
lengur, og hann œtlar að
kyssa mig. En þá segi ég
bara: R., ég var bara að
,,djóka” í sumar. Honum
bregður og segir: Það var
gott að ég sagði þér ekki að
ég elskaðiþigþá. Finnst mér
ég taka utan um báðar
hendurnar á honum og
setjast í fangið á honum. Ég
œtlaði að segja það sama en
segi um leið: Ég er að djóka.
Þá verður hann illur og
segir: Ég lœt mömmu tala
við þig. Þú hefur eyðilagt líf
mitt og breytt því öllu. Svo
setur hann R. festi um
hálsinn á mér (mér fannst
hún vera svört) og með
stafnum R. Og (held ég hann
hafi sagt) efþú tekur hana af
þér, nokkurn tíma, þá kem ég
með fuglinn sem þú varst svo
hrœdd við. Þá fannst mér ég
œtla að kyssa hann. En
hann tók svo fast utan um
mig að ég vaknaði hálfgrát-
andi, en mér fannst ég vilja
segja honum að ég myndi
þrá hann jafnmikið. En úr
því varð ekki. Ég vaknaði og
taldi mig vera alla í mar-
blettum. Svo hefur mig
dreymt hann einu sinni á
undan þessum draumi og
einu sinni á eftir þessum
draumi. Hann gaf mér hvolp
í bœði skiptin og ég var mjög
ánœgð. Viltu lesa úr þessu
sem fyrst, annars gleymi ég
draumnum.
Ástarþakkir,
Rósalind.
Best að segja þér fyrst það sem
þig sjálfsagt langar að vita: Þessi
draumur hefur ekkert með þig og
samskipti þín við stráka að gera,
að minnsta kosti ekki þess sem er í
draumnum, það er að segja ekki
er neitt af því sem gerist í
draumnum líklegt til að gerast í
raunveruleikanum. Sennilega
hefur það sitt að segja að þig
dreymir þetta að þú ert með hug-
ann við viðkomandi. En í þessum
draumi eru óvenjusterk tákn sem
benda þér á að þú stjórnir ekki lífi
þínu sem skyldi. Þú ættir að reyna
að gera ekkert vanhugsað og í
draumnum er raunar tákn
sem varar þig alvarlega við ein-
hverju sem hægt er að flokka und-
ir óreglusemi eða tilviljanakennt
líferni. Þú skalt athuga það vel.
Annars muntu hreinlega reka þig
alvarlega á í lífinu, og þessi til-
finning þín fyrir marblettum er
hreinlega tákn um að þú sért þeg-
ar farin að reka þig á að þú ert
eitthvað ósátt við sjálfa þig og
þinn lífsstíl.
40. tbl. Vikan 35