Vikan


Vikan - 03.10.1985, Síða 42

Vikan - 03.10.1985, Síða 42
L3I Vídeó-Vikan VINSÆLIR LEIKARAR: ROBERT DE NIRO Það er engum efa bundið að Robert De Niro er einhver hæfileikamesti kvikmyndaleikari sem uppi hefur verið. Á síðustu tíu árum hef- ur hann unnið hvern leiksigurinn á fætur öðr- um og hefur enginn leikari gert hlutverk sín eins trúverðug síðan Marlon Brando var ung- ur og átti hvern leiksigurinn á fætur öðrum. Það virðist sama hvaða hlutverk De Niro tek- ur að sér — hvort sem það eru vandræðageml- ingar í myndum Martin Scorcese eða virðu- legir bisnessmenn á borð við þann er hann lék í Tho Last Tyccon — hann gæðir hlutverk sín einhverjum þokka sem aðrir eiga ekki jafn- auðvelt með að ná. Robert De Niro fæddist 1944 í Greenwich Village í New York. Hann var ekki nema tíu ára þegar hann ákvað að verða leikari. Hann byrjaði leiknám sitt í American Dramatic Workshop. Þegar hann var sextán ára lagði hann leiö sína, eins og svo margir aðrir, í Actor’s Studio sem stjórnað er af Lee Strass- berg. Sá sem á heiðurinn af að hafa fyrst tekið eftir honum er Brian De Palma. Hann tók eftir honum í leikriti utan Broadway og fékk honum fyrsta kvikmyndahlutverkið. Var það í Tho Wedding Party, kvikmynd sem öllum væri gleymd ef ekki væri fyrir að Robert De Niro hóf feril sinn í henni ásamt Jill Clayburgh. Það var aftur á móti Martin Scorcese sem lét hann hafa hlutverk í Mean Streots. Sú kvikmynd vakti fyrst athygli á honum. Var það byrjunin á farsælu samstarfi þessara tveggja stórmenna í kvikmyndaheiminum. Hlutverkið í Mean Streets varð til þess að hon- um var boðið hlutverk hins unga Vito Corleone í Godfather ll. I fyrri myndinni hafði Marlon Brando leikið Corleone og gert það ógleymanlega og fékk hann óskarsverðlaun fyrir vikið. Robert De Niro var ekki síðri sem Corleone á yngri árum. Næsta mynd De Niro var Taxi Driver sem Martin Scorcese stjórnaði. Er erfitt að ímynda sér að nokkur annar leikari hefði get- að leikið þennan truflaða fyrrverandi Víet- namhermann jafneftirminnilega og Robert De Nero. Eftir leiksigur í Taxi Driver streymdu tilboðin til De Niro en hann kaus að fara til ítalíu og leika í kvikmynd Bernardo Ekki fyrir viðkvæma ★ ★ ★ Blood Slmple. Leikstjóri: Joel Coen. Aðalleikarar: John Getz, Frances McDormand og E. Emmet Walsh. Sýningortími: 85 minútur. Blood Simple er mynd sem vakið hefur nokkra athygli fyrir fáguö vinnubrögð og spennandi söguþráö. Myndin er sakamálamynd af grófari gerðinni. Mikið er um atriði sem hæglega geta ofboðið fínum taugum áhorfenda. I firnagóðu byrjunaratriöi kynn- umst við aðalpersónum sögunnar, eiginkonu klúbbeiganda nokkurs, sem er aö flýja eiginmann sinn, og barþjóni sem hefur starfaö hjá honum. I laumi hefur barþjónninn dáðst aö eiginkonunni. Ferð þeirra endar á móteli, þar sem þau halda aö þau séu falin fyrir umheiminum. Ástarleik þeirra er varla lokið þegar síminn hringir og er enginn annar en eiginmaðurinn í símanum. Eiginmanninum finnst hann auð- mýktur og ræður einkaspæjara, sem er í þjónustu hans, til að drepa parið og koma því þannig fyrir að hann verði ekki grunaður. Einkaspæjarinn hefur aftur á móti sínar hugmyndir um lausn málsins og fer sú lausn ekki saman við ráða- brugg eiginmannsins. Parið aftur á móti grunar ekkert og þaö er ekki fyrr en barþjónninn kemur að hús- bónda sínum myrtum og það lítur út fyrir að eiginkonan hafi framiö morðið að hlutirnir fara að taka á sig heldur óhugnanlega mynd. Blood Simple heldur áhorfandan- um vel spenntum meðan á sýningu stendur. Fer saman virkilega mögnuö kvikmyndataka og góöur leikur óþekktra leikara í aðalhlut- verkunum. Myndin er kjörin fyrir alla aðdáendur spennumynda en vert er að taka fram aö börn hafa síður en svo gott af að sjá myndina. Þaö eru nokkur atriöi í myndinni sem eru virkilega óhugguleg og leikstjórinn, Joel Coen, lætur mynda- vélina lýsa atburðunum á nákvæman og áhrifamikinn hátt. Drottning frumskógarins ★ ★ Sheena. Leikstjóri: John Guillermin. Aðalleikarar: Tanya Roberts, Ted Wass og Donovan Scott. Sýningartími: 112mínútur. Sheena er hreinræktuð ævintýra- mynd sem krakkar ættu að hafa meira gaman af en fullorönir. Sjálf- sagt hafa framleiðendur ætlað hana fullorönum einnig en söguþráöurinn er slíkur aö eingöngu unnendur has- armynda, þar sem söguþráður skiptir litlu máli, hafa gaman af. Sheena er nokkurs konar kvenút- gáfa af Tarsan. Foreldrar hennar koma meö hana barn að aldri í frum- skóga Afríku, voru þeir aö leita uppi töfrasand sem hafði lækningamátt. Foreldrarnir farast af slysförum og barniö er tekið í fóstur af kvenkyns töfralækni. Sheena elst upp í /íA .KA skóginum og verður hin fegursta á aö líta. öll dýr laðast að henni og getur hún kallað á þau með hugsun einni. Víkur nú sögunni til siðmenning- arinnar. Sjónvarpsfréttamaðurinn Vic Casey verður vitni að því þeg- ar konungur er myrtur og saklaus kona er sökuð um moröið. Sú kona er engin önnur en fóstra Sheenu og kemur Sheena fóstru sinni til hjálpar ásamt dýrum skógarins. Casey hrífst af Sheenu og áður en langt um líður eru þau á flótta undan hersveitum prinsins sem lét drepa konunginn. Prinsinn hefur, eins og foreldrar Sheenu, áhuga á hinu dularfulla fjalli sem hefur lækninga- mátt. Hann telur þar mikla auðlind málms. Sheena, Casey og innfæddir láta yfirráðasvæði sitt aftur á móti ekki mótþróalaust af hendi og veröa harðir bardagar áður en skötuhjúin hrósa sigri. Það er ekki margt sem gleður augað í myndinni. Tanya Roberts er virkilega iiugguleg en leikkona er hún lítil og sama er hægt að segja um Ted Wass. Ekki hjálpar handritið upp á. Væmnar klisjusetningar eru yfirgnæfandi. I lokin er allt opið fyrir framhaldsmynd. Við verðum bara að vona að framleiöendur sjái að sér og láti þessa nægja. 42 Vikan 40. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.