Vikan


Vikan - 03.10.1985, Blaðsíða 43

Vikan - 03.10.1985, Blaðsíða 43
 Umsjón: Hilmar Karlsson Bertolucci, 1900. Var hann þar 1 góöum félags- skap annarra úrvalsleikara, svo sem Burt Lancaster og Donald Sutherland. Það er svo áriö 1978 sem Robert De Niro leikur í The Deer Hunter. Aftur er það Víet- namstríðið sem er miðdepill atburðarás- arinnar. Leikur hans þar er ógleymanlegur þeim sem séð hafa. Ekki voru allar myndir sem Robert De Niro lék í á þessum tíma jafn- vel heppnaðar. New York, New York Og The Last Tyccon þóttu báðar misheppnaðar þrátt fyrir góðan leik De Niro. 1980 á hann svo enn einu sinni samstarf við Martin Scorcese. ÍJtkoman er Raging Bull, einhver magnaðasta kvikmynd um ævi íþróttamanns sem gerð hefur verið. Lék Robert De Niro boxarann Jake La Motta. Ekki er hægt annað að segja en að De Niro hafi lagt mikið á sig til að ná fullkomnun í því hlutverki. Meðal annars bætti hann á sig tugum kílóa til að geta leikið La Motta þegar ferill hans sem boxara var afstaðinn og Einhver eftjrminnilegasta kvikmynd sem Robert De Niro hefur leikið í er The Deer Hunt- sukklífið var yfirþyrmandi. Robert De Niro fékk óskarsverðlaun fyrir leik sinn í Raging Bull. Af síðustu myndum De Niro eru sjálfsagt eftirminnilegustu hlutverkin misheppnaður kómíker í The King Of Comedy Og glæpa- maðurinn í meistaraverki Sergio Leone, Once Upon A Time In America. Það er Sama hvað Robert De Niro tekur fyrir í framtíðinni. Það verður alltaf forvitnilegt og spennandi að sjá útkomuna. ,Á’ r&M Nokkrar myndir sem fáanlegar eru með Robert De Niro i vídeóleigum: Bang The Drum Slowly The Gang That Couldn's Shoot Straight Mean Streets The Godfather, Part II Taxi Driver The Last Tycoon New York, New York The Deer Hunter Raging Bull True Confessions The King Of Comedy Once Upon A Time In America Róstusamt í kvennafangelsi Chained Heat. Leikstjóri: Paul Nicholas. Aðalleikarar: Linda Blair, John Vernon, Sybil Danning og Stella Stevens. Sýningartimi: 86 minútur. Chained Heat gerist að langmestu leyti innan múra kvennafangelsis í Bandaríkjunum. Þar ríkir alls konar ofbeldi og spilling meðal fanga sem fangavarða. Linda Blair leikur unga stúlku sem dæmd er til fangavistar. Hún er sakleysið uppmálað þegar komið er í fangelsið, þótt hún hafi verið dæmd fyrir manndráp. Hún er fljót að komast á snoðir um að lífið í fangelsinu er barningur til að halda lífi og limum jafnt á nóttu sem degi. ISLENSKUR TEXTI Jh Fangarnir skiptast í tvo hópa. Litaðar konur halda sig frá þeim hvítu sem halda sig saman. Dópsala er mikil innan fangelsismúranna og eru þaö fangelsisstjórinn og aðstoðarmenn hans sem stjórna dóp- sölunni. Fangelsisstjórinn er hinn mesti kvennamaður og notfærir sér tign sína til aö fá stúlkurnar til sín á kvöldin. Og eru margar meira en fúsar til að heimsækja hann. Hann tekur athafnir sínar og stúlknanna upp á vídeó sér til ánægju. En meðal fangavarðanna er einnig barátta um völdin og kvöld eitt er fangelsisstjórinn myrtur af undir- mönnum sínum, sem ætla sér að koma sökinni á fyrirliða hvítu fang- anna. Þá er föngunum nóg boðið og sameinast í uppreisn sem endar með allsherjar blóðbaði. Chained Heat er frekar óhugguleg kvikmynd þar sem ofbeldi og saurlifnaður er í fyrirrúmi. Söguþráðurinn er nokkuð ótrúlegur á köflum. Linda Blair, sem gerði garð- inn frægan í Exorcistmyndunum, á að vera aðalstjaman í myndinni en hún fellur í skuggann fyrir öðrum kraftmeiri stúlkum. Chained Heat er sæmileg afþreying fyrir fullorðna sem vilja kynlíf og ofbeldi en börnum ætti ekki að sýna myndina. Óheppnar geimverur ★ ★ Stjörnuglópar (Morons From Outer Space). Leikstjóri: Mike Hodges. Aðalleikarar: Mel Smith, Griff Rhys Jones og James B. Sikking. Sýningartími: 91 minúta. Stjörnuglópar er bresk gaman- mynd þar sem gert er óspart grín að frægum geimmyndum, sérstaklega fær Close Encounter... að kenna á gríni þeirra Mel Smith og Griff Rhys Jones. Þeir eru handritshöfundar auk þess að vera aðalleikarar. En þótt hugmyndin aö myndinni sé snjöll og mörg atriði fyndin ná Stjömuglópar því aldrei aö verða nema sæmilegasti farsi, aðallega vegna þess að persónur myndarinn- ar eru ekki nógu fyndnar. Myndin segir af því þegar mannað geimfar viilist og verður að lenda á jörðinni. Innanþorðs eru menn eins k Th«y IOHM from anottnr planet... wot thelr journcy nally ncccuary? 5TJQRMU og við, aðeins frá öðrum stað í himin- geimnum. Það er rokið upp til handa og fóta við að rannsaka þessar verur og á mannkynið bágt með aö trúa því aö aumingja geimverurnar séu ekk- ert ööruvísi. Ef eitthvað er þá finnst mönnum þær vera heimskari en við og er einn þeirra settur á geðveikra- hæli fyrir að halda að sorptunnur séu lifandi verur. Fljótlega fer geimverunum að líka lífið á jörðinni. Athygli allra beinist að þeim og þær ákveða aö reyna fyrir sér sem poppstjörnur. Tekst það með ágætum en sælan er úti þegar stórt geimfar lendir og tekur þær til síns heima — að vísu verður einn eftir.... Eins og áður sagði eru Stjörnu- glópar fyndnir á stöku staö og eru kannski þau atriði best þegar stæld eru þekkt atriöi úr frægum geim- myndum. Aftur á móti eru einnig atriði sem eiga aö vera fyndin en eru ekki fyndnari en svo að maður nær aldrei að ná nema rétt brosi á varirn- ar. Leikararnir eru flestir óþekktir og er enginn sem stendur upp úr. Stjörnuglópar eru tilraun til að gera almennilega gamanmynd í geim- myndastíl og þótt ekki hafi tekist betur til er myndin stundum hlægi- leg. 40. tbl. Vikan 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.