Vikan - 03.10.1985, Page 46
Published by arrangement with Lennart Sane Agency, Karlshamn, Sweden. Originally published by Simon £t Schuster.
Kata andvarpaði og ekkert
heyrðist nema hljóðið í vatns-
pípunum. „Fyrstu tvö fóstrin
missti ég á 29. og 27. viku en
þetta var á 32. viku og fæddist
andvana.” Hún gretti sig. „Ég
get ekki lýst því hvað þetta
tekur á mig, hvað þetta leggst
þungt á mig. Maður fær
hríðirnar og þetta er hræðilega
sárt og manni líður eins og í
fæðingu og allan tímann veit
maður að allt og sumt sem
kemur er lxtill, andvana
líkami.”
,,En kemur þetta alveg
fyrirvaralaust? Gætir þú ekki
lagst niður og stöðvað þetta?”
,,I fyrsta skiptið, þegar mér
fór að blæða, var ég sofandi og
fékk síðan verkina og missti
barnið. Á sjúkrahúsinu var
vitnað blíðlega í tölur eins og
verið væri að reikna út
meðaltal. „Hresstu þig upp,
ein af hverjum sex þungunum
endar með fósturláti. Reyndu
aftur.” En ég vissi að þeir voru
að ljúga til þess að vera góðir
við mig. Ég vissi að nær öll
þessi fósturlát verða fyrir 14.
viku ...”
Hún lyktaði af ilmandi vor-
blómunum. „Engir vasar eftir,
er ég hrædd um. Ég spurði í
morgun. Það eru aldrei neinir
andskotans vasar á sjúkra-
húsum.”
„Fjandinn, ég gleymdi því.
Ég hefði átt að koma með
pottablóm.” Maxín setti
blómin í vaskinn og Kata hélt
áfram.
„Það var verra í annað
skiptið. Ég komst ekki einu
sinni á spítalann í tæka tíð.
Vissir þú að ef maður missir
fóstur á maður að setja fóstrið
og fylgjuna í hreina skál eða
poka og fara með það á
spítalann til þess að það sé
hægt að rannsaka það á rann-
sóknarstofunni og segja hvers
vegna maður missti það? Ég
vissi það ekki heldur svo ég var
heppin að læknirinn náði til
mín í tæka tíð.”
„Já, en af hverju missir þú
fóstur?”
„Þú skalt ekki halda að ég
hafi ekki spurt að því. í fyrsta
skiptið var mér sagt að fóstrið
hefði losnað frá fylgjunni, í
annað skiptið að leghálsinn í
mér væri veikburða því hann
Shirley Conran
ÞRÍTUGASTI
HLUTI
Það sem á undan er gengið. . .
Árið 1963 gengsl þrettán ára stúlkubarn undir ólöglega fóstureyðingu á subbulegri
lækningastofu í París. . . Fimmtán árum síðar er fjórum glæsilegum heimskonum
stefnt á fund kvikmyndastjörnunnar Lilíar. Þter Heiðna, Kata. Maxtn ogjúdý vita ekki
að þeim erstefnt saman og vita ekki hver tilgangurinn er. , Jæja, tæfurnar ykkar. Hver
ykkar er móðir mín?” spyr Lilí.
Árið 1948 eru Heiðna, Kata og Maxín á fínum heimavistarskóla íSviss. Þærkynnast
Júdý sem vinnur sem framreiðslustúlka á kaffiteríu glæsihótels. Ungir menn koma við
sögu og ástin blómstrar í svissneska fjallabænum.
Að skóla loknum skilja leiðir. Ein stúlknanna er barnshafandi, en hver?
Júdý og Maxín fara til Parísar. Þar fer Júdý að vinna hjá Dior tískuhúsinu en síðan
hjá Guy, ungum og upprennandi fatahönnuði. Hortense, frænka Maxín, er auðug
ekkja í París og alltaf reiðubúin til hjálpar þegar eitthvað bjátar á. Júdý og Guy vegnar
vel í París en þegar móðir Júdýjar verður alvarlega veik ferjúdý heim til Randaríkjanna
og lofar móður sinni að fara ekki aftur til Parísar. Hún sest að í New York og fer að
vinna hjá kynningafyrirtæki.
Sögunni víkur til Elísabetar litlu sem er í fóstri hjá Felix og Angelinu í Sviss. Fclix er
ungverskur flóttamaður. Hann fer með fjölskylduna að heimsækja foreldra sína og
bróður í Ungverjalandi. Það er árið 1956. Ekkert þeirra á afturkvæmt nema Elísabet
litla, Lilí, eins og Felix kallaði hana.
Maxín heldur til London að læra innanhússhönnun og hýbýhtfræði. Hún er þar í tvö
ár og kemur síðan aftur til Parísar og opnar forngripaverslun og innanhússhönnunar-
skrifstofu. Hún fær það verkefni að skipuleggja endurbyggingu á gömlum herragarði
sem er í eigu félítils greifa og kampavínsframleiðanda. Þau gifta sig og eignast þrjá
syni.
Heiðna og Kata stunda samkvæmislífið í London grimmt. Kata fer að vera með
ungum bankastjórasyni sem býr í Kaíró. Hún fer þangað ásamt Heiðnu en eftir nokk-
urn tíma kemst bankastjórinn að því að Heiðna sé vænlegra kvonfang en Kata fyrir son
sinn og stuðlar að því að sonurinn láti Kötu róa en snúi sér að Heiðnu, sem hann og
gerir meðsvikum og prettutn.
Heiðna giftist síðan bankastjórasyninum en hjónabandið vcrður ekki farsælt. Hún
ler lieim til móður sinnar á Englandi og hallar sér æ meira að (löskunni.
Á meðan á Lilí litla, sem nú er orðin falleg stúlka, erflða ævi í París. Þegar hún er 13
ára kynnist hún ungum manni sem fær hana til lags við sig. Hún verður barnshafandi
og tjárinagnar fóstureyðingu mcð þvíaðsitja fyrirá nektarmyndum.
Kata hefur loks uppi á Heiðnu og reynir að hjálpa henni til að hætta að drekka.
Heiðna kynnist virtum lífeðlisfræðingi sem er allmiklu eldri en hún og þau gifta sig.
Kata er lengi að jafna sig eftir Kaíró-ævintýrið. Hún fær sér vinnu sem þýðandi og
giftist ungum og upprennandi arkitekt.
opnaðist of snemma. Svo það
var gert eitthvað við því. En nú
kom aftur upp það sama. Nú á
að hreinsa út á mér legið. ”
Það varð þögn, síðan bætti
hún við: „Læknarnir hafa ofur
elskulega bent á að við þurfum
ekki að reyna aftur.”
Hún lá með hendurnar
máttlausar og virtist sem henni
væri alveg sama en satt að segja
hafði Kata tekið þessu afar illa
— verr en flestar konur, sögðu
læknarnir sem stungu upp á
því við Toby að þau ættleiddu
barn. Við það hafði Kata misst
stjórn á sér og sagt að hann
mætti aldrei, aldrei, aldrei
segja neitt svona aftur.
„Góða, láttu ekki svona
óhemjulega,” sagði Toby
róandi. „Þú segir þetta bara af
því þú hefur aldrei hugsað
neitt um ættleiðingar.”
„Ég hef það, ég hef það. Ö,
það veit guð að ég hef.” Kata
varð enn ofsafengnari þar til
hjúkrunarkona kom æðandi
inn með sprautu og ýtti Toby
út.
Kata fór heim, veikburða,
þreytt og óumræðilega döpur.
Toby skildi ekki hvers vegna
hún fann til svo djúps
saknaðar, hvers vegna henni
leið svo ömurlega. Hún hafði
ekki einu sinni haldið á þessu
barni sem hún hafði misst.
Hún gat ekki talað við nokkurn
mann, hún vildi vera ein en
vildi þó ekki vera ein — og grét
dögum saman.
Toby huggaði hana, en
hann gat ekki verið mikið
heima því hann var að ljúka við
verk nálægt Swindon. Það
hittist svo á að það var
heilsuhæli fyrir börn.
Kötu fannst sárt að sjá
brjóst sín minnka aftur niður í
eðlilega stærð og magann verða
aftur slappan og linan þegar
hann hafði verið stinnur og
harður fyrir aðeins mánuði.
Hún fann aftur fyrir því sem
hún hafði fundið fyrir við
jarðarför föður síns —
einkennilegum söknuði og ör-
vilnun.
Hvað hafði hún gert rangt?
Hún hlaut að hafa gert
eitthvað rangt! Hvers vegna
varð hún sí og æ fyrir von-
brigðum þegar hún þráði
46 Vikan 40. tbl.