Vikan


Vikan - 03.10.1985, Page 48

Vikan - 03.10.1985, Page 48
setja gleraugun aftur á nefið svo þú getir í það minnsta séð plötuna á skrifborðinu mínu. Ég hef séð myndir af þér og þessum litla Frakka og þú varst með gleraugu á þeim öllum. Kona sem er með gleraugu á myndum sér ekki rassgat án þeirra.” Júdý tók stóru, svörtu gler- augun upp úr veskinu sínu, setti þau á nefið, settist upp og brosti vongóð við honum. Ef hún lét sem hún væri viðkvæm þá fyrirgaf fólk henni venjulega. En Tom var vanur því að þokkafull smástirni af báðum kynjum gerðu hosur sínar grænar fyrir honum. ,,Hættu þessu,” sagði hann. ,,Við skulum ekki láta meiri tímafara til spillis.” Þegar þau voru búin að vinna saman í tvo mánuði bauð Tom henni út að borða á Cote Basque og sagði: „Þúertgóð.” ,,Ég veit það.” ,,Ég er góður.” ,,Ég veit það. Við værum góð saman.” ,,Því ekki það.” Tom beygði sig yfir borðið og lagði hönd sína yfir höndina á henni. „Taktu burt krumlurnar. Ef þér er algjör alvara þá ert þú eini maðurinn sem ég færi aldrei með f rúmið.’’ ,,Þegar þú ert annars vegar getur lítil hönd gert mikið gagn,” sagði Tom súr í bragði. „Segir þú þetta við alla karlmenn sem bjóða þér út að borða?” „Ó, já, ég geri þeim það alveg ljóst að það sé ekki vegna þess að ég sé ekki þakklát fyrir hamborgarann. Ég er hrein- skilin en kurteis.” , ,Þá er eins gott fyrir mig að gefast upp og segja þér hvað við getum gert saman. Mig langar til að hætta í vinnunni sem ég er í, vinna með þér og breyta skrifstofunni þinni í lítið kynningarfyrirtæki með starfs- svið stranda á milli. ’ ’ „Þú sagðir lxtið?” ,Já. Aðalstöðvar í New York og tengsl við aðrar aug- lýsingastofur og kynningar- fyrirtæki í stærri borgum.’’ „Hvað fengju þau út úr því?” „Peninga. Sambandsskrif- stofu í New York. Ég hef eytt bestu árum ævi minnar í að ferðast með mislyndar kvik- myndastjörnur fyrir Empire og ég veit hvernig á að fara að þessu. Það þýðir að skrif- stofurnar á hverjum stað fengju að hitta athyglisvert fólk sem er kærkomin tilbreyting frá þvottaefniskynningunum. ’ ’ Tom pantaði aðra flösku af Perrier vatni. „Ég vil stefna að því að fá hvort tveggja, stöku viðskipti og fasta viðskiptavini. Ég vil að fólk snúi sér til okkar þegar of mikið er að gera á þess eigin kynningarskrifstofu eða þegar einhver stjarna þarf að fá sérstaklega mikla kynningu.” „Hvers vegna ætti einhver stjarna að vilja láta okkur um sín mál?” „Ef maður reynir að skipuleggja ferð frá New York þá er fyrirhöfnin að mestu til einskis vegna þess að það getur engin ein skrifstofa fylgst með öllu því sem er að gerast í f)ölmiðlum um öll Bandaríkin. En það gera skrifstofur á hinum ýmsu stöðum alltaf. Þar vita menn hvaða maður í bænum er áhrifamestur.” „Af hverju kemurðu til mín?” spurðijúdý. „Ég hef verið að svipast um eftir einhverjum. Þú getur gert þetta.” „Þarf ég að segja upp ein- hverjum af núverandi viðskiptavinum mínum?” „Nei. Þeir verða undir- staðan sem við byggjum á. ” „Þarf ég að leggja fram ein- hverjapeninga?” „Svolítið, auðvitað. Við þurfum að fá peninga fyrir góðum skrifstofum og starfsliði.” „Þá verð ég að segja nei því ég á enga peninga.” „Ég gæti kannski ábyrgst bankalán fyrir þig. ’ ’ Ég hlýt að hafa svona heiðar- legan svip, hugsaði Júdý með sér. „Hvar fengir þú pen- inga?” , ,Ég hef fjárfest tíu af hundr- aði tekna minna í verðbréfum síðan ég var nítján ára. ” , ,Ég held að ég verði samt að segja nei. Ég er rétt nýbúin að greiða skuld mína við banka og mér þykir frekar gott að sofa á nóttunni.” Þessi þrjú ár, sem Júdý hafði rekið eigið fyrirtæki, hafði hún haft stöðugar fjárhagsáhyggjur. Júdý gat annast kynningar en ef undan var skilið einfalt bók- haldið fyrir Guy hafði hún •aldrei komið nálægt viðskipta- lífinu og það hafði verið henni mikið áfall að komast að því að í þessum heimi var til fólk sem ekki borgaði skuldir sínar, ann- aðhvort vegna þess að það gat það ekki, vildi það ekki eða hafði aldrei ætlað sér að gera það. Tvisvar sinnum hafði Júdý verið sagt upp einstaklings- íbúðinni sem hún leigði vegna þess að hún hafði ekki greitt leiguna. í fyrra tilfellinu hafði fyrrum yfirmaður hennar, Pat Rogers, sem hafði haldist trygg vinkona, greitt skuldina. I síð- ara skiptið hafði Pat krafist þess að Júdý fengi sér nýjan endur- skoðanda. Síðan hafði hún skrifað upp á ríflegt bankalán fyrir Júdý og þegjandi og hljóðalaust látið hana hafa tvö smáverkefni, fyrir gólfbón og ungan, upprennandi söngvara, Joe Sawy. „Það rekur mig enginn fyrir þetta,” fullvissaði Pat Júdý, „vegna þess að mér hefur verið boðið að skrifa greinar fyrir Harper’s svo ég er aftur á leið í blaðamennskuna með hraða ljóssins.” Júdý minntist þess hve það hafði verið erfitt að borga lán Pat til baka. Hún hristi höfúðið og sagði: „Nei, Tom, ég get ekki verið með þér í þessu. Ég hef einfaldlega ekki fjármagn til þess.” „Heyrðu mig, ef þú vilt heldur að ég láni þér pening- ana skal ég gera það, Júdý.” „Af hverju ætti ég að leggja fram helminginn af peningun- um þegar ég er með alla við- skiptavinina en þú ekki?” Hún horfði óskammfeilin á Tom með dökkbláu augunum sín- um. „Af hverju kaupir þú ekki bara liðveislu mína fyrir til dæmis tuttugu þúsund doll- ara?” „Þú ert vitanlega að gera að gamni þínu.” Hann hallaði sér aftur á bak. Hún segði já. Þau sötruðu kartöflusúpuna og snæddu grillaðan kola. Yfir hunangsbúðingnum urðu þau að lokum sammála um að Tom greiddi henni sjö þúsund doll- ara fyrir liðveisluna og fjárfesti fjögur þúsund dollara í viðbót í nýjafyrirtækinu. „En við getum ekki rekið starfsemina undir þínu nafni eingöngu,” sagðiTom. „Hvað viltu kalla það?” „Hvað um Viðskiptaefling framgjarnra og upprennandi?” „Er það nú ekki dálítil langavitleysa...” , ,Ekki ef maður skammstafar það.” „VEFUR. Flott.” Jafnvel áður en þau voru búin að skipuleggja starfsem- ina um landið allt var VEFUR farinn að skila hagnaði. „En ég skil ekki hvers vegna! „Það er að þakka rökhugsun minni og uppeldi og rándýrs- árunum mínum tólf í kvikmyndaiðnaðinum,” geisp- aði Tom. „Klukkan er bráðum orðin tíu. Við skulum hætta og fara heim. ’ ’ „Ég vona að þú hafir fjárfest fé þitt frá unglingsárunum í Bell símafélaginu,” sagðijúdý og tók símareikning upp úr reikningastaflanum og hélt honum frá sér. „Það hefði verið rökrétt.” Tom geispaði aftur. „Það starfar enginn eftir rökvísi, sér í lagi ekki konur. Rökvísi fyrir konur er aðeins aðferð til að réttlæta það sem þær ætla sér hvort sem er að gera. ,, Og hvað um karlmenn ? ’ ’ „Karlmaður er heldur ekki rökvís, heldur lætur hann ráðast stjórnlaust af ótta. ’ ’ „Er það þess vegna sem okkur gengur svona vel? Vegna þess að þú gerir fólk ótta- slegið?” , ,Örugglega vegna þess að ég víla ekki fyrir mér að beita óbil- girni. Ef fólk sér ekki að maður er reiðubúinn til þess þá not- færir það sér mann. Þú lést það gera það en ég læt það ekki komast upp með það. Það er munurinn.” „Og nýja greiðslufyrirkomu- lagið sakar heldur ekki. ’ ’ Tom krafðist þess að öll þóknun væri greidd fyrirfram og það innan mánaðar. Þau lyftu ekki sfmtóli nema búið væri að undirrita samninginn 48 Vikatt 40. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.