Vikan - 03.07.1986, Blaðsíða 6
Valgerður er 19 ára gömul og
nemandi í Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Hún stefnir að því að
ljúka stúdentsprófi um næstu jól
en er ekkert búin að ákveða með
áframhaldandi nám, gerði ráð fyrir
að vinna eitthvað og sjá svo til. í
sumar er Valgerður að vinna í
matvörudeild JL-hússins og gerði
ráð fyrir að vera þar til haustsins.
En skjótt skipast veður í lofti, allt
í einu er hún á förum til Banda-
ríkjanna að undirbúa keppni í Face
of the 80’s að ári.
- Hvað varð til þess að þú tókst
þátt í þessari keppni?
„Vinkona mín hefur undanfarin
ár verið að mana mig til að taka
þátt í keppninni og þegar ég sá í
einhverju blaði um daginn að það
væru síðustu forvöð að skila inn
mynd þá bara skellti ég mér í það.
Það var virkilega gaman að þessu
og viss reynsla. Ég veit ekki hvort
ég átti beint von á að vinna, þó
FORDSTULKAN VALGERÐUR
/
FRA JL TIL
FORDIUSA
kannski alveg eins. Ég sakna þess
að við stelpurnar, sem tókum þátt
í keppninni, skyldum ekki ná að
kynnast betur.“
- Gamall draumur?
„Ja, ég veit ekki - þegar ég var
lítil og sá myndir í blöðunum af
sætum, fínum konum þá hugsaði
ég oft að svona vildi ég verða þegar
ég yrði stór.“
- Hvað tekur nú við?
„Ég fer til Bandaríkjanna nú í
júlí og verð líklega fram í septemb-
er hjá Eileen Ford. Þar verð ég
ljósmynduð í bak og fyrir og fara
myndirnar síðan í möppu sem ég á
að nota til að koma mér á fram-
færi. Svo kem ég heim til að klára
skólann en býst við að fara aftur
út eftir áramótin, en það fer reynd-
ar allt eftir því hvernig gengur í
sumar. Ég hef aðallega áhuga á
fyrirsætustörfum, ekki tískusýn-
ingastörfum. Maður hefur alltaf
heyrt að það sé erfitt að koma sér
áfram í þessu starfi og ef til vill
gangi ekki allt eins og maður vill,
en ég er tilbúin að takast á við
þetta og er til í að vera í þessu
næstu árin ef vel gengur. Auðvitað
er ég líka æðislega spennt fyrir
keppninni á næsta ári en jafnframt
kvíðin."
- Hver eru helstu áhugamálin?
„Ég hef gaman af íþróttum, hef
verið í líkamsrækt í þrjú ár, og svo
hestamennsku þegar ég kemst á
hestbak. Einnig finnst mér gaman
að læra tungumál. Ég var skipti-
nemi á Ítalíu í eitt ár og lærði þá
ítölskuna alveg, var nefnilega hjá
fólki sem talaði enga ensku svo ég
varð að spjara mig.“
Það kemur sér væntanlega vel á
næstunni að hafa tungumálaáhuga
því fyrir utan Bandaríkjadvölina
getur Valgerður átt von á að starfa
í hinum ýmsu þjóðlöndum þar sem
„myndmálið" dugar kannski ekki
alltaf.
6 VIKAN 27. TBL