Vikan

Tölublað

Vikan - 03.07.1986, Blaðsíða 52

Vikan - 03.07.1986, Blaðsíða 52
llt byrjaði það þennan dag, í mars 1977. Willy Black hafði verið án einkaritara um hríð en hugðist ráða þar bót á og auglýsti því eftir aðstoð- arstúlku. Sama dag komu þrjár ungar konur í þeim tilgangi að sækja um starfið. Ein þeirra var Carla, tutt- ugu og fimm ára gömul og með útlit tískusýningarstúlku. Hún varhá- vaxin og andlitið bæði svipmikið og blíðlegt í senn en sérstaka athygli vöktu græn og undurfögur augun sem voru skemmtileg andstæða við mikið og dökk hárið. Carla varð fyrir valinu. Ráðning hennar virtist eiga rétt á sér því þrátt fyrir reynsluleysi - en hún hafði aldr- ei unnið sem einkaritari - uppfyllti hún kröfurnar sem gerðar voru til hennar og sýndi nákvæmni, dugnað og stundvísi; sýndi dæmigerða full- komnun í starfi. En fullkomnum þessi átti ekki einungis við vinnu- brögð hennar heldur einnig fram- komu alla. Carla hafði nefnilega yfir að ráða svo miklu og töfrandi að- dráttarafli að þegar yfirmaður hennar, Willy Black, horfði á hana fékk hann ómótstæðilega löngun til að taka hana í faðminn og kyssa hana. Og þegar hann gerði sig líkleg- an til þess ýtti Carla honum blíðlega en ákveðin frá sér: „I guðanna bæn- um, þetta væri ekki rétt...“ Willy Black, sem eftirsín fjörutíu og fimm ár var orðinn forhertur pip- arsveinn, fannst þessi hegðun hennar dálítið furðuleg því fleiri en ein af stúlkunum á skrifstofunni hafði gegnum tíðina ekkert haft á móti faðmlögum hans og kossum, frekar sóst eftir þeim. En Carla sveif um skrifstofuna eins og hún væri frá þeim tíma þegar aðalsmerki ungra stúlkna var að gæta virðingar sinnar í hvívetna. ar kom að þessi áhugi Willys á Cörlu varð að algjörri þráhyggju. Þau voru saman næstum því hvern einasta dag þannig að hann hafði hana sífellt fyrir augunum. Hún var alltaf skemmtileg og hver hreyfing og hvert bros, hvernig hún rétti hon- um skjal eða bréf, hvernig hún leit til hans frá skrifborðinu sínu, allt jók spennuna innra með honum. En hún sat við sinn keip og varð ekki hagg- að. Að endingu varð hann sann- færður um að gifting væri eina lausnin fyrir hann. Hann yrði að fá þessa konu. Willy Black kvæntist einkaritara sínum í Ottawa sex mánuðum eftir að hann kynntist henni, hinn 28. september 1977. Þá uppgötvaði Willy að á bak við járnharða staðfestuna var falinn brennandi tilfinningahiti sem hann hafði alls ekki búist við hjá Cörlu sem alltaf hafði ýtt honum frá sér og hafnað honum. I fimm ár naut hann þess að lifa ástríðufullu samlífi með eiginkonu sinni, þar til kvöld nokkurt í október 1982 þegar Willy í fyrsta skipti brást bogalistin í ástarleik þeirra. Kannski var hann bara þreyttur eða andinn á einhvern hátt ekki í lagi, þetta myndi lagast hélt hann. Dagar og nætur liðu og Willy tókst ekki að uppfylla hinar karlmannlegu skyld- ur sínar gagnvart Cörlu, þrátt fyrir áhuga og óbreyttar tilfinningar í hennar garð. Hann varð afar áhyggjufullur vegna þessara endur- teknu mistaka, sem voru nú orðin í meira lagi óeðlileg, og ákvað að fara til læknis. Hann gerði lítið úr þessu getuleysi Willys, gaf honum eitthvað hressandi, sagði honum að hvílast og endilega að taka sér gott frí - þá yrði allt sem áður. Þrátt fyrir þessar ráðleggingar var allt við það sama hjá vesalings Willy. Þá sendi læknirinn hann í rannsókn. Niðurstaða hennar varð Willy mikið áfall og dómur læknisins var eins og högg sem gerði hann utan við sig og ruglaðan. „Þér eruð með sykursýki og því miður er lítið hægt að gera til að hjálpa yður.“ illy flutti konu sinni tíðindin. Carla sagði ekki aukatekið orð honum til huggunar heldur starði aðeins á hann í ískaldri þögn. Willy sýndist hann sjá blik, sem hann kannaðist ekki við, í fögrum augum hennar- fyrirlitningin skein úrþeim. Hann skynjaði um leið að þetta var ekki sama konan sem hafði elskað hann undanfarin ár og veitt honum blíðu sína. Þetta var ekki rangt hjá Willy, því miður. Frá þessari stundu fór Carla og kom eins og henni sýndist og með tímanum ágerðist þessi hegðan hennar. Stundum kom fyrir að hún kom ekki heim fyrr en áliðið var nætur og Willy varð fljótt viss um að konan hans færi á bak við hann. Fyrstu viðbrögð hans var hugsunin um að beita hana ofbeldi. Siðan sá hann í hendi sér að hann hafði engan rétt til að svipta Cörlu, svo falleg og ung sem hún var, ánægjunni í lífinu og þeirri sælu sem hann var ekki lengur fær um að veita henni. En Cörlu virtist ekki vera nóg að lifa þessu einkalífi sínu án eiginmanns- ins heldur snerist öll hennar umhyggjusemi og ástúð að vinum hennar og félögum en aftur á móti 52 VIKAN 27. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.