Vikan - 03.07.1986, Blaðsíða 26
/
Eg er fædd á Húsavík en
uppalin á ekta sveitabæ í
Mývatnssveitinni. Bærinn
heitir Arnarvatn. Móðir
mín, Þóra Sigurðardóttir,
er dóttir Sigurðar skálds
sem lengi bjó þar. Faðir
minn heitir Jón Kristjánsson og
var frægur skíðamaður á sínum
yngri árum. Við erum 6 systkinin
og ég er svo heppin að vera þeirra
yngst.“ Og hún bætir brosandi
við: „Svo eflaust hef ég fengið
mesta athyglina!
Ashildur gekk í skóla heima í
sveitinni sinni en 16 ára gömul
hóf hún nám í Menntaskólanum
við Hamrahlíð. „Ég varð fyrir
vonbrigðum með þann skóla,“
segir Ashildur. „Þegar ég fór í
Hamrahlíð gerði ég mér svolitlar
vonir. Hamrahlíð átti að vera
nýtískuskóli, frjálslyndur. En
svo gerði ég mér grein fyrir að
hann var bara eitt kerfið til við-
bótar sem stuðlaði að því að gera
mann að engu. Það var þá sem
ég byrjaði að starfa með mann-
gildishreyfingunni “
- Og hvemig stóð á því? Hefur
þú kannski alla tíð haft áhuga á
pólitík?
„Sko, mamma er mjög pólitísk
og hefur alltaf fylgst vel með. Ég
fylgdist kannski ekki svo vel með
hverjir væru ráðherrar og al-
þingismenn. En ég leit á ástandið
í kringum mig. Alls staðar voru
peningavandræði, nöldur og væl,
alþingismenn sagðir vera allir
eins, sitja á rassinum og gera
ekki neitt. Og þessi spurning
vaknaði hjá mér: Af hverju þarf
þetta að vera svona? Má ekki
breyta þessu? Ég vildi ekki með-
taka kerfið eins og það var. Og
þegar ég var búin í MH lá það
auðvitað fyrir að maður færi
þessa beinu braut upp í Háskóla
og í eitthvert gott djobb. En ég
hafði engan áhuga á því. Og þar
sem ég vildi hrista upp í þessu
öllu saman hentaði manngildis-
hreyfingin mér mjög vel.“
-1 hverju er stefna manngildis-
hreyfingarinnar fólgin?
Eins og orðið bendir til þýðir
það að maðurinn sé númer
eitt. Við höfum manninn í
fyrirrúmi eri ekki lög, Al-
þingi eða annað sem
maðurinn hefur búið til
kringum sig. Ef verið er að
veita fé í framkvæmdir á til dæm-
is fyrst að hugsa um manninn.
Það verður að hugsa sem svo:
Er þetta nauðsynlegt fyrir vellíð-
an manneskjunnar? En ekki
hvort einhver græði á þessari
framkvæmd.“
- En hvernig tengist Flokkur
mannsins þessari hreyfingu?
„Jú, sjáðu, markmið mann-
gildishreyfingarinnar er að bæta
samskipti og að fólki líði betur.
En þegar fólk er stöðugt að vinna
vegna þess að það þjóðfélags-
kerfi, sem það býr við, krefst þess
hefur það ekki tíma til þess að
efla samskipti við annað fólk.
Því verður að ráðast að raun-
verulegum rótum meinsins, það
er sjálfu þjóðfélaginu. Og þar
með fórum við út í pólitík. Þar
liggur valdið til þess að breyta
þjóðfélaginu.”
26 VIKAN 27. TBL