Vikan

Tölublað

Vikan - 03.07.1986, Blaðsíða 23

Vikan - 03.07.1986, Blaðsíða 23
NYJAR KVIKMYNDIR: SHANGHAl BWBS Það er óhætt að segja að fáar kvikmyndir hafa vakið eins mikið umtal áðuren af- raksturinn kemurfyriraugu almennings og Shanghai Blues sem er nýjasta kvik- mynd frá fyrirtæki George Harrison, Handmade Films. Um leið er Shanghai Blues langdýrasta kvikmynd sem fyrirtækið hefur látið gera og má segja að framtíð fyrirtæk- isins ráðist af því hvernig almenningurtekur þessari umtöluðu kvikmynd. Hin mikla umfjöllun, sem myndin hefurfengið í erlend- um blöðum, ereingöngu vegna þess að umtöluðustu hjónakornin þessa dagana, Madonna og Sean Penn, leika aðalhlutverkin. Mikið hefur gengið á meðan á kvik- myndatökum stóð. Sean Penn, sem eraðeinstuttugu og fjögurra ára og kominn af þekktri kvikmyndafjölskyldu, hefur alltaf verið erfiður í skapi og hjónabandið með Ma- donnu hefur ekki gert hann samvinnuþýðari. Madonna sjálf erenginn viðvaningurí að skapa vandræði. Á tímabili varð George Harrison sjálfur að fara á stað- inn þarsem kvikmyndað var og stilla til friðar. Þá höfðu skötuhjúin haft það af að móðga alla meðleikara sína svo að flestir hótuðu að hætta ef skapið batnaði ekki hjá hin- um nýgiftu. Shanghai Bluesergaman- söm sakamálamynd þarsem Madonna leikur CIA-njósn- ara í Austurlöndum fjær í kringum 1940. Hún ersend til að hafa uppi á ópíum- smyglurum. Þrátt fyrir andúð í fyrstu þiggur hún hjálpfrá blönkum sölumanni sem Se- an Penn leikur. Kosturinn við hann er að hann talar reip- rennandi kínversku. En hann hefureingöngu í huga að komasttil Bandaríkjanna á sem ódýrastan máta. Nú er bara að sjá hver ár- angurinn verður. Meðan á kvikmyndun stóðfengu Penn og Madonna alla pressuna á móti sér. Nú eru aðstandend- urfyrirtækisins í óða önn að halda blaðamannafundi til að reyna að stilla til friðar. Madonna hefur birst á þeim og svarað spurningum blaða- manna. En sem beturfer. segja gárungar; hafa George Harrison og félagar haft vit á að láta Sean Penn ekki koma fram því vaninn hjá honum er, þegar honum líkarekki spurningarnar, að ráðast á blaðamanninn. Myndatextar: Madonna leikur CIA-njósn- ara í Shanghai Blues. Hérer umtalaðasta parseinni ára, Sean Penn og Madonna, í hlutverkum sinum. 27. TBL VIKAN 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.