Vikan - 03.07.1986, Page 23
NYJAR KVIKMYNDIR:
SHANGHAl
BWBS
Það er óhætt að segja að
fáar kvikmyndir hafa vakið
eins mikið umtal áðuren af-
raksturinn kemurfyriraugu
almennings og Shanghai
Blues sem er nýjasta kvik-
mynd frá fyrirtæki George
Harrison, Handmade Films.
Um leið er Shanghai Blues
langdýrasta kvikmynd sem
fyrirtækið hefur látið gera og
má segja að framtíð fyrirtæk-
isins ráðist af því hvernig
almenningurtekur þessari
umtöluðu kvikmynd.
Hin mikla umfjöllun, sem
myndin hefurfengið í erlend-
um blöðum, ereingöngu
vegna þess að umtöluðustu
hjónakornin þessa dagana,
Madonna og Sean Penn,
leika aðalhlutverkin. Mikið
hefur gengið á meðan á kvik-
myndatökum stóð. Sean
Penn, sem eraðeinstuttugu
og fjögurra ára og kominn af
þekktri kvikmyndafjölskyldu,
hefur alltaf verið erfiður í skapi
og hjónabandið með Ma-
donnu hefur ekki gert hann
samvinnuþýðari. Madonna
sjálf erenginn viðvaningurí
að skapa vandræði.
Á tímabili varð George
Harrison sjálfur að fara á stað-
inn þarsem kvikmyndað var
og stilla til friðar. Þá höfðu
skötuhjúin haft það af að
móðga alla meðleikara sína
svo að flestir hótuðu að hætta
ef skapið batnaði ekki hjá hin-
um nýgiftu.
Shanghai Bluesergaman-
söm sakamálamynd þarsem
Madonna leikur CIA-njósn-
ara í Austurlöndum fjær í
kringum 1940. Hún ersend
til að hafa uppi á ópíum-
smyglurum. Þrátt fyrir andúð
í fyrstu þiggur hún hjálpfrá
blönkum sölumanni sem Se-
an Penn leikur. Kosturinn við
hann er að hann talar reip-
rennandi kínversku. En hann
hefureingöngu í huga að
komasttil Bandaríkjanna á
sem ódýrastan máta.
Nú er bara að sjá hver ár-
angurinn verður. Meðan á
kvikmyndun stóðfengu Penn
og Madonna alla pressuna á
móti sér. Nú eru aðstandend-
urfyrirtækisins í óða önn að
halda blaðamannafundi til að
reyna að stilla til friðar.
Madonna hefur birst á þeim
og svarað spurningum blaða-
manna. En sem beturfer.
segja gárungar; hafa George
Harrison og félagar haft vit á
að láta Sean Penn ekki koma
fram því vaninn hjá honum
er, þegar honum líkarekki
spurningarnar, að ráðast á
blaðamanninn.
Myndatextar:
Madonna leikur CIA-njósn-
ara í Shanghai Blues.
Hérer umtalaðasta parseinni
ára, Sean Penn og Madonna,
í hlutverkum sinum.
27. TBL VIKAN 23