Vikan

Tölublað

Vikan - 03.07.1986, Blaðsíða 56

Vikan - 03.07.1986, Blaðsíða 56
S T J Ö R N U S P Á Á HRÚTURINN 21. mars - 20. apríl Ekki er ráðlegt fyrir þig að standa í stórræðum eða brydda upp á nýj- ungum í þessari viku heldur verður affarasælast að sinna hversdagsleg- um málefnum af alúð. Þar er líka nóg við að vera og engin hætta á að þú þurfir að sitja iðjulaus. Farir þú á mannamót á laugardaginn er eins víst að stofnað verði til kynna sem eiga eftir að endast. TVÍBURARNIR 22. maí - 21. júní Ef þú hugsar þér til hreyfings er þessi helgi tilvalin til ferðalaga og kjörin til að sinna áhugamálunum. Fari þetta tvennt saman hjá þér ættir þú að bregða undir þig betri fætinum og njóta um leið hressandi útiveru. Þú gerir hvort sem er ekk- ert þarfara eftir helgina en að koma reglu á það sem aflaga fer eftir úti- legu eða annað slíkt. LJÓNIÐ 24. júlí - 23. ágúst Föstudagur til fjár segir máltækið og þetta ættir þú að geta sannreynt núna. Föstudagurinn hentar þér vel til að koma málum þínum fram, hvort sem um fjármál er að tefla eða annars konar veraldleg hagsmuna- mál. Farðu svo í samkvæmi um kvöldið og njóttu samvista við ann- að fólk. Þú notar helgina best til að safna kröftum fyrir næstu lotu. VOGIN 24. sept. - 23. okt. Ljúktu sem mestu af fyrir helgina og dragðu ekki til morguns það sem hægt er að gera í dag. Að öðru leyti er þér óhætt að láta hverjum degi nægja sína þjáningu en vertu við því búinn að verða fyrir alls kyns truflunum og töfum. Það gerir ekki svo mikið til svo lengi sem þú lætur það ekki spilla skapinu og heimilis- friðnum. BOGMAÐURINN 24. nóv. -21. des. Þér er hollast að hafa hægt um þig og ekki skaltu reikna með neinum stórviðburðum í þessari viku. Lífið gengur sinn vanagang og ekki nema gott eitt um það að segja nema svo fari að þú fyllist óþoli og rjúkir í eitt- hvað sem ekki hefúr verið undirbúið sem skyldi. Slíkt er varasamt og kann ekki góðri lukku að stýra þessa dag- ana. VATNSBERINN 21. jan. - 19. febr. Eitthvað hvílir á þér eins og mara og ekki seinna vænna að gera eitt- hvað í málinu. Ertu viss um að þú sért ekki að gera úlfalda úr mýflugu? Taktu þig til og komdu þessu frá fyr- ir helgina. Ef þú drífúr þetta ekki af er eins víst að það dragist. Miklar líkur eru á að mál þetta megi af- greiða með lítilli fyrirhöfn þannig að allir megi vel við una. NAUTIÐ 21. apríl - 21. maí Þú átt í vændum viðburðaríka helgi og það eins þótt ekki hafir þú uppi áform um slíkt. Njóttu þess sem líf- ið hefur að bjóða en ekki skaltu láta koma þér á óvart þótt einhver eftirköst kunni að verða. Það er undir þér komið að halda þannig á málunum að allir geti unað við sitt. Þú færð örugglega nægan tíma til að jafna þig. KRABBINN 22. júní - 23. júlí Notaðu helgina til að leggja á ráðin um það sem þú hyggst fyrir og drífðu í framkvæmdum eigi síðar en á mánudag. Þá gengur þér allt í haginn og þú munt undrast hverju þú færð áorkað. Síðan skaltu bíða átekta og fylgja þessu eftir í róleg- heitum fram eftir vikunni en gættu þess að reyna ekki að gleypa allt í einum bita. MEYJAN 24. ágúst - 23. sept. Taktu því með Jafnaðargeði sem hendir þig þessa daga. Þú færð þín tækifæri þótt þau virðist í fyrstu ekki sérlega glæsileg. Með útsjón- arsemi tekst þér að gera mikið úr litlu og hlýtur að launum verð- skuldað lof og aðdáun, jafnvel úr ólíklegustu áttum. Þú stefnir hægt en örugglega í rétta átt og mundu að þitt mat á árangrinum er það rétta. SPORÐDREKINN 24. okt. - 23. nóv. Hugaðu að fjölskyldu- og vináttu- tengslum og láttu annað sitja á hakanum. Það verður ekki bæði sleppt og haldið og þú átt ýmsum skuld að gjalda á þessum vettvangi. Ekki þarftu heldur að óttast að sjá eftir þeim tíma sem þú verð með fjöl- skyldunni og líklegt að upp fyrir þér renni ýmislegt sem var í þann veginn að fara fram hjá þér. STEINGEITIN 22. des. - 20. jan. Róleg vika er framundan hjá stein- geitum og vel til þess fallin að ljúka því af sem hefúr lent í undandrætti. Eitthvað virðast steingeitm1 óánægð- ar með fjárhaginn og hyggist þær fara fram á launahækkun ættu þær endilega að velja mánudaginn til þess. Ráð er þó að láta bíða betri tíma að gera að fullu út um slík mál. FISKARNIR 20. febr. - 20. mars Vertu ekkert að puða of mikið fram að helginni, þér verður hvort sem er lítið ágengt ef svo fer sem horfir. Þinn tími kemur seinna og strax á sunnudag fer allt að ganga betur Þá getur þú með góðum árangri tekið á honum stóra þínum og ekkert nema þreyta getur staðið í vegi fyrir þér. Hvíldu þig þess vegna vel þangað til. Árið 1986 verður mörgum krabbanum minnisstætt. Það skiptast á skin og skúrir og ýmissa breytinga að vænta. I þessu efhi gildir þó sem endranær að veldur hver á heldur og miklir möguleikar eru á að hafa áhrif á þróun- ina. I stórum dráttum má segja að eftir því sem á líður vænkist hagurinn. í maí voru ýmsar blikur á lofti, eink- um seinnipart mánaðarins, en það vita allir krabbar nú þegar. Júlí verður afar viðburðaríkur. Þá gengur á ýmsu og eins gott að halda vöku sinni. Ekki skyldu menn örvænta þótt þreytu gæti er líða tekur á mánuðinn því að í ágúst verður minna um að vera og undir lok þess mánaðar dettur allt í dúnalogn. Hugsi krabbar sér að breyta til svo nokkru nemi ættu þeir að láta það bíða fram á haustið og gildir einu hvort um er að ræða atvinnumál, fjárfestingar eða búferla- flutninga. Nóvember er tvímælalaust hagstæðastur til slíkra hluta. Sama máli gegnir um tilfinningamálin, í nóvember er tíðinda að vænta, einkum hjá þeim sem eru lausir og liðugir. Þegar líður að lokum ársins ættu krabbar aftur að hægja ferðina enda eflaust vel að því komnir. Menn skyldu kosta kapps um að eiga friðsælan desember og hafa hugfast að ekki þarf endilega allt mögulegt að komast í verk fyrir stórhátíðir, aðrir tímar eru iðulega heppilegri til meiri háttar framkvæmda. 56 VIKAN 27. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.