Vikan - 03.07.1986, Blaðsíða 51
P 0 S T U R
EICKERT
FRAMUNDAN
NEMA
TRÚLOFUN
OG
HJÓNABAND
Hæ, elsku Póstur!
Ég er 14 ára gömul stelpa og er mjög
óhamingjusöm. Mér finnst lífið svo ófjöl-
breytilegt. Ég eignast vini (vinkonur) sem
ég er með um stund en svo slitnar samband-
ið og ég fæ mér nýja vini. Mér finnst alltaf
eins og vinum mínum finnist ég leiðinleg.
Ég fer oft út á kvöldin með þeim en aldrei
skeður neitt skemmtilegt fyrr en ég er farin.
Ég hugsa oft um framtíðina og einhvern
veginn finnst mér eins og ekkert eigi eftir
að ske nema kannski trúlofun, hjónaband,
ég eignist börn (sem mig langar ekkert til)
og svo dauðinn. Ég hef stundum hugsað
um að éta fullt af einhverjum pillum og töfl-
um og drepast. Því meira sem ég hugsa um
framtíðina þeim mun óhamingjusamari verð
ég en samt get ég ekki hætt að hugsa.
Það er sama hvernig ég læt klippa mig,
hárið á mér er alltaf jafnömurlegt.
Ég vona að þú birtir þetta, kæri Póstur.
Ein óhamingjusöm.
Þessi tilfinning. að lifið sé ömurlegt og
hafi ekki upp á neitt að bjóða. er nokkuð
sem áreiðanlega grípur flesta einhvern tíma
og jafnvel oft á ævinni. Það er auðvelt að
segja það við fjórtán ára heilbrigða stúlku
sem á allt lífið framundan að hún eigi að
vera glöð. þakklát og bjartsýn og svo fram-
vegis. en annað mál að vera það. Það er líka
hægt að afgreiða óhamingju þína með því
að segja að þú sért bara á þessum erfiða
aldri. En það er erfitt að vera manneskja og
það á við á öllum aldri. Lífið er erfitt. flókið,
þreytandi og fullt af vandamálum, stórum
og smáum. En það er líka dýrmætt. yndis-
legt og fullt af gleðiefnum. stórum og
smáum. Okkur er gefið eitt líf og enginn
veit hve langt það verður. Það eina sem við
vitum er að við verðum að lifa þvi og gera
það þesta úr þvi sem við höfum. Það þarf
oft kjark og hugrekki tl að horfast í augu við
lífið og sigrast á þessari hættulegu örvænt-
ingarfullu sjálfsvorkunn sem þú þjáist af og
flestir hafa einhvern tima kynnst.
Ef þú litur í kringum þig sérðu alls staðar
fólk sem hefur sigrast á henni. Margir hafa
orðið fyrir mikilli sorg og þó ekki gefist upp.
Aðrir eiga við sjúkdóma og fötlun að stríða
og halda ótrauðir áfram. í fyrra vann þroska-
heftur ungur maður það afrek að ganga
hringveginn um landið og safna miklum
peningum og sanna fyrir allri þjóðinni að
það er margt hægt að gera og afreka með
viljastyrk og dugnaði. jafnvel þó menn séu
langt frá því að vera fullkomnir.
Afþreyingarbækur, kvikmyndir og sjón-
varpsþættir halda oft þeirri skoðun að okkur
að það sé ekkert varið í lífið nema við eigum
svo og svo mikla peninga. að alltaf sé eitt-
hvað nýtt og spennandi að gerast. að við
séum umkringd vinum og kunningjum. dáð
og elskuð og alltaf fremst I flokki. Vitanlega
eru þetta aðeins draumsýnir og I versta falli
klára della. Það er áreiðanlega gott og gilt
og eftirsóknarvert að standa sig vel, en við
erum fæst nein ofurmenni, hvorki ofur fall-
eg. gáfuð. rík né skemmtileg. aðeins venju-
legt fólk og llf okkar í samræmi við það. En
við getum samt sem áður notið lifsins og
þess sem það hefur upp á að bjóða alveg
eins vel og hinir. Sönn lífsgleði felst alls ekki
í því að eignast sem mest og vera alltaf þest
og mest heldur að gera sitt besta innan sinna
takmarkana og vera sátt við sjálfan sig.
Þú talar um að þú eigir erfitt með að halda
í vinina. Það stafar meðal annars af því að
þú ert svo sannfærð um að þú sért ómögu-
leg og leiðinleg og hrædd við að öðrum
finnist það, hrædd við að vera hafnað og
þvi ferðu áður en það gerist. Þú vilt ekki
leyfa fólki að kynnast þér eins og þú ert í
raun og veru. Þú veist innst inni að þú ert
ekki svona ómöguleg. Reyndu að vera opn-
ari og kjarkaðri í samskiptum við fólk og
lærðu að taka þvi þó ekki líki öllum við þig.
Þannig er með allt fólk. En með þvi móti
eignastu líka sanna vini sem þykir vænt um
þig eins og þú ert með öllum kostum og
göilum.
Varðandi framtíðina er það að segja að
þú skapar hana að mörgu ieyti sjálf. Vissu-
lega geta alls konar ytri aðstæður sett strik
í reikninginn en þú getur samt að miklu leyti
gert það sem þú sjálfvilt. Ekkert nema trúlof-
un og hjónaband segirðu? Hvers konar
framtiðaráætlanir eru þetta hjá ungri stúlku
árið 1986? Út um allt land eru miklir mögu-
leikar til alls konar náms. bóknáms og
verknáms. og allir geta fundið sér eitthvert
nám og starf að stefna að. Það er heldur
enginn kominn til með að segja að þú þurf-
ir alltaf að búa þar sem þú býrð núna. Þú
getur skipt um umhverfi. farið til útlanda til
náms og starfs og gert svo ótal, ótal margt.
Að visu geturðu ekki gert þetta a/veg strax
en tíminn líður hratt. Á meðan skaltu stefna
að einhverju og hlakka til. Reyndu helst að
hafa alltaf eitthvað smávegis að hlakka ti/
og líta björtum augum til framtíðarinnar.
Reyndu líka að finna þér eitthvað skemmti-
legt til dundurs, til dæmis íþróttir eða eitt-
hvert tómstundastarf. Lestur góðra bóka
gefur mörgum mikla lífsfyllingu. skemmtir.
þroskar og víkkar sjóndeildarhinginn.
Ef þú vilt sigrast á þessari lífsleiðatilfinn-
ingu geturðu það en þá verður þú líka að
herða þig upp og takast á við lífið í stað
þess að gefast upp fyrir sjálfsvorkunnarpúk-
anum.
SPURNINGAR
UM
MADONNU
Hæ, hæ Póstur!
Gætirðu svarað nokkrum spurningum?
1. Er væntanleg ný L.P. með Madonnu?
2. Ef svo er, hvenær?
3. Á hvaða plötum eru lögin Gambler, Crazy
for You og Live to Tell?
4. í vídeóinu með Live to Tell var sýnt úr
einhverri mynd með Sean Penn. Hvaða
mynd var það?
5. Er kvikmyndin Shanghai Surprise væntan-
leg til landsins (þegar hún er tilbúin)?
6. Hvert á maður að senda Madonnu að-
dáendabréf. Er hægt að senda til Sire
Records?
7. Er til aðdáendaklúbbur Madonnu?
Með fyrirfram þökk.
Stranger.
Um þessar mundir er að koma út ný L.P.
plata með Madonnu. sem nefnist True Blue.
Lagið Gambler hefur aðeins komið út á 12
tommu plötu. Crazy for You hefur sömuleið-
is komið út á 12 tommu sérútgáfu en er
einnig að finna á plötunni Like a Virgin. Live
to Tell er á áðurnefndri True Blue. Það er
úr kvikmyndinni Close Edge með Sean Penn
og John Voight i aðalhlutverkum. Shanghai
Surprise er örugglega væntanleg til landsins
frekar fyrr en seinna.
Þú getur sent aðdáendabréf til Madonnu
gegnum Sire Records. Aðdáendaklúbbur
hennar hefur eftirfraandi utanáskrift:
Madonna
Winterland
Jo Edwards
Suite 500
150 Regent Street
London W 1
England.
27. TBL VIKAN 51