Vikan

Útgáva

Vikan - 03.07.1986, Síða 14

Vikan - 03.07.1986, Síða 14
 Hundaraunir Þrátt fyrir að undanþágur hafi verið gerðar á hundalög- gjöf Reykjavíkur fer því fjarri að hundar geti um fijálst höfuð strokið hér í höfuðborginni. Langur listi er til yfir þá staði þar sem hundar mega ekki stíga inn fæti en þeirra á meðal eru sundlaugar, matsölustaðir, almenningssalerni og verslanir. Minna þessar reglur helst á lögin um aðskilnað kynþátta í Suður- Afríku sem svo mjög hafa verið til um- ræðu undanfarið. Láti hundur sjá sig utan heimilis skal hann hafa eiganda sinn með í bandi og gæta þess vandlega að hreinsa upp allan þann saur sem hvor um sig kann að skilja eftir á glámbekk. Nú nýverið hefur ferðafrelsi hunda verið skert enn frekar. Víðs vegar um miðbæ borgarinnar má sjá skilti sem banna hundum allan umgang frá því klukkan 8 á morgnanna til 21 á kvöldin. Velta hundar nú vöngum yfir því hvaða ástæður liggi þarna að baki og hví þessi tilteknu tímamörk séu. Stöðu- mælatími er frá 9 til 18 og helst í hendur við opnunartíma verslana en engin bein rök eru auðsæ fyrir því að hundabann- tíminn hefjist klukkan 8 en ekki til dæmis 7.30 og ljúki klukkan 21 en ekki 20.15. Gáfuð tík í vesturbænum hefur reyndar leitt getum að því að þetta sé aðeins fyrsta skrefið í víðtækari áætlun um heft ferðafrelsi hunda. Innan tíðar verði þeim bannað með öllu að láta sjá sig á almannafæri. Nema þá kannski dulbúnir sem pottablóm.H u Einhvern tíma gekk sú saga að herbergin á geðveikrahælinu í Na- iskovu væru kúlulaga. Ekki svo að mennirnir á myndinni hér að ofan séu staddir þar norðurfrá heldur eru þeir í nýlegri stúdíóaðstöðu í Kópa- voginum þar sem gengið hefur verið svo frá einu horninu að engin sam- skeyti sjást, hvorki lárétt né lóðrétt,, niðri við gólf. Hornið er því í raun fjórðungur úr kúlu og gefur að bragði margvíslega möguleika sem bak- grunnur fyrir Ijósmynda- og kvik- myndatökur. Það er fyrirtækið SviðsMyndir hf. á Smiðjuveginum sem útbjó þessa völundarsmíð í húsnæði sínu og leigir aðstöðuna út, en að fyrirtækinu standa þrír leikmyndasmiðir sem sögðu upp stöðum sínum hjá Þjóð- leikhúsinu fyrir rúmu ári og ákváðu að starfa sjálfstætt. Enginn hörgull hefur verið á verkefnum hjá þeim félögum undanfarið. Hafa þeir meðal annars hönd í bagga með sýningum í tilefni af afmælum Reykjavíkur, Landsbankans og Seðlabankans sem allar verða nú í sumar. Sá skortur á hornum og samskeyt- um, sem einkennir stúdíóið í Kópavoginum, gerir mann óneitan- lega hálfringlaðan en kúlulaga sjúkrastofurnar í Naiskovu eru ein- mitt byggðar með það fyrir augum að auka geðveiki sjúklinganna. Þær koma líka í veg fyrir að þeir geti skitið í hornin. Endurbyggð hús Eins og sagt er frá annars staðar hér á siðunni vinnur fyrirtækið Sviðs- Myndir í Kópavogi nú fullum fetum að sýningum í tilefni af afmæli Reykjavíkur, Landsbankans og Seðlabankans. Hefur fyrirtækinu meðal annars verið falið að endur- byggja í fullri stærð fyrstu bækistöð Landsbankans en hún var í steinhúsi neðarlega við Bankastrætið þar sem verslunin Stella er nú til húsa. Mynd- in hér að ofan er af líkaninu sem byggt er eftir. Fyrir Reykjavíkurborg verður síðan smíðuð 40 fermetra krambúð með öllu tilheyrandi en henni er ætlaður staður á Árbæjarsafninu að afmæl- inu loknu. Á sömu sýningu verður meðal annars kynning á Landsvirkj- un en sýningargestir munu fræðast um starfsemi fyrirtækisins í myndar- legum jarðgöngum, gerðum úr frauðplasti. Þau koma væntanlega ekki til með leka eins og göngin við Blöndu þannig að fólk ætti að geta skilið regnhlífarnar eftir heima. 14 VI KAN 27. TBL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.