Vikan - 03.07.1986, Page 22
V
E
MYND VIKUNNAR
Töfraveröld Woody Allen
★ ★ ★ ★
THE PURPLE ROSE OF CAIRO
RAYBURN morgan
r_ R TALMABGE
JEWEL
Kaírórósin (The Purple Rose of Cairo).
Leikstjóri: Woody Allen.
Aðalleikarar: Mia Farrow, Jeff Daniels og
Danny Aiello.
Sýningartími: 82 mín.
Það er ekki ný hugmynd að gera kvikmynd
um kvikmynd. Margir hafa reynt en fáum tek-
ist. Woody Allen hefur með mynd sinni,
Kaírórósinni, tekist að fullkomna þetta form
svo ekki verður betur gert. Hugmyndin, að
blanda saman persónum úr óraunveruleika
kvikmynda á fjórða áratugnum og raunveru-
legum persónum, er lifa við kreppuástand, er
snjöll en hefði í fyrstu mátt ætla að væri ófram-
kvæmanleg.
Hjá Woody Allen fer saman hugmyndaauðgi
og fullkomin þekking á því listformi sem hann
vinnur. Kaírórósin er því með eftirminnilegum
kvikmyndum síðari ára.
Aðalpersóna myndarinnar er Cecilía (Mia
Farrow) sem er óhamingjusöm húsmóðir sem
fær fullnægingu í líf sitt með að fara i kvik-
myndahús og sjá rómantískar kvikmyndir. í
einni slíkri bíóferð tekur ein aðalpersóna mynd-
arinnar sig út úr, ávarpar hana og gerir meira
en það. Hann gengur út úr myndinni eins og
ekkert sé og fer að lýsa aðdáun sinni á henni,
öðrum persónum myndarinnar til mikillar ar-
mæðu því ekki er hægt að halda áfram með
söguþráðinn þegar eina persónu vantar. Saman
fara nú skötuhjúin á flakk og verður úr mikið
og skemmtilegt ævintýri áður en lausn fæst á
þessari uppákomu...
Það er alveg ótrúlegt hversu vel Woody Al-
len hefur tekist að koma þessari absúrd
hugmynd frá sér svo úr verði heilsteypt kvik-
mynd. Það eru skýr mörk á milli raunveruleik-
ans og hinna ímynduðu persóna sem birtist í
því að persónur kvikmyndarinnar vita ekki
neitt um neitt nema sögusvið myndarinnar sem
þær leika í.
Mia Farrow leikur hina óhamingjusömu
Ceciliu og gerir það snilldarlega. Áhorfandinn
fær mikla samúð með henni og stutt er í gaman-
leikinn hjá henni. Woody Allen leikur ekki
sjálfur í þessari mynd sinni og þótt alltaf sé
gaman að honum hefði hann sjálfsagt ekki
passað í neitt hlutverk hér. Kaírórósin er mynd
sem kemur áhorfandanum skemmtilega á óvart
og er í raun einstök kvikmyndagerð.
22 VIKAN 27. TBL