Vikan - 03.07.1986, Qupperneq 27
- Hvernig er Flokkur manns-
ins uppbyggður?
Það eru ráð starfandi sem i
stjórna, landsráð sem er aðalráð,
kjördæmaráð sem starfa í kjör-
dæmunum og bæjarráð. Þá eru
grunneiningarnar sem eru
áhugahópar nokkurra einstakl-
inga.“
- Svo flokkurinn er starfandi
víðs vegar um landið?
„Já, flokkurinn er starfandi á
helstu stöðum og það eru flokks-
félagar um allt land þó ekki séu
alls staðar flokksfélög. En núna
vinnum við að því að byggja
flokkinn upp og koma á kjör-
dæmaráðum í öllum kjördæm-
um.“
- Hvert sækið þið fylgi? Er það
aðallega ungt fólk sem kýs ykk-
ur?
Við sækjum fylgi til ungs
fólks, sjómanna, verka-
manna og kvenna. Og eftir
kosningar kom í ljós að
eldra fólk í ýmsum störfum
káus okkur ekkert síður en
þeir yngri. Það fann ein-
hvern gamlan hugsjónaeld
kvikna."
- Nú er Flokkur mannsins
nýtt afl og kraftmikið. Hafið þið
orðið vör við að fólk sé á varð-
bergi eða andsnúið ykkur?
„Þetta er alveg nýtt afl, það
er rétt. Aður hafa komið fram
nýir flokkar sem allir voru brot
úr einhverjum öðrum hreyfing-
um sem þegar voru til staðar.
En Flokkur mannsins er alger-
lega nýr af nálinni. Hann er
framandi afl sem fólk veit ekki
hvernig það á að bregðast við.
Við ætlum að breyta þessu þjóð-
félagi og erum að fara gegn
gömlu og stöðnuðu kerfi. Svo
auðvitað verðum við vör við
mótspyrnu. En stefnan okkar
laðar líka að. Við erum hress og
bjartsýn og látum ekki deigan
síga. Það þykir fólki mjög sjarm-
erandi."
- Hvernig byggið þið ykkar
flokksstarf upp?
„Við byggjum það upp á virkni
hvers og eins. Við vinnum saman
að því að koma stefnunni okkar
í framkvæmd. Við erum ekki eins
og hinir, þar sem hver höndin er
uppi á móti annarri og allir reyna
að ota sínum tota. Við höldum
ekki prófkjör því menn kaupa sér
ekki sæti á framboðslista hjá
okkur. Slíkt brýtur í bága við
hugsjón okkar.“
- Feikilega margir halda Flokk
mannsins einhvers konar trúar-
hóp?
/
Ashildur verður svolítið
þreytuleg á svipinn. „Nei,
við erum enginn trúar-
hópur. Að vísu trúum við
á möguleika mannsins og
viljum skapa honum betri
framtíð. En við höfum
ekki í hyggju að setja upp safn-
aðarheimili og prédika yfir
landslýð. Við erum fyrst og
fremst pólitískt afl.“
- Ertu ánægð með árangur
flokksins í kosningunum?
Já, það er mjög athyglisvert
að 70 ára gamlir flokkar, eins og
Framsókn, ná rétt manni hérna
í Reykjavík meðan Flokkur
mannsins, sem er algerlega nýr,
fær 2% atkvæða. Framsókn
byggir á gömlum grunni, er með
ítök út um allt, í fjölmiðlum og
fyrirtækjum. Við höfðurn ekkert
komist til almennings fyrr en
kosningabaráttan hófst. Það var
mjög stuttur tími en samt náðum
við til þetta margra. Ég er því
mjög ánægð með árangurinn.“
- Þú vaktir töluverða athygli
í kosningabaráttunni fyrir
skemmtilega og afslappaða fram-
komu. Ertu vön að koma fram?
ei, í rauninni ekki. En í
gegnum hreyfinguna og
flokkinn hef ég fengið
mjög mikla þjálfun.
Haustið ’84 fórum við
nokkur héðan til Spánar
sem fulltrúar manngildis-
hreyfingarinnar. Þar talaði ég
fyrir hönd okkar á heljarmiklum
útifundi og var sú reynsla mjög
skemmtileg. Svo er það náttúr-
lega formaðurinn okkar, Pétur
Guðjónsson, sem hefur þjálfað
okkur alveg rosalega. Hann er
stjórnunarráðgjafi og hefur víða
haldið námskeið í ræðumennsku
og framsögn. Við höfum notið
góðs af þeirri þekkingu sem hann
býr yfir.“
- En hvers konar tilfinning
greip þig er þú komst fram á
fundum og í sjónvarpi? Varstu
með minnimáttarkennd gagn-
vart hinum?
„Nei, en þetta var virkilega
spennandi. Tökum til dæmis
fundinn í sjónvarpssal. Þarna
kom ég, líkt og skrattinn úr sauð-
arleggnum, við hliðina á Davíð
Oddssyni sem menn hafa
ákveðna ímynd af. Og margir
hafa eflaust hugsað sem svo:
Hyað hefur svona stelpukind í
svdna stórlaxa? En okkar mál-
staður er bara svo sterkur. Það
er ekki hægt að hafa minnimátt-
arkennd gagnvart hinum.
Margir hafa reynt að núa mér
því um nasir að ég sé ung og
reynslulaus, en hvað hafa hinir
verið að gera? Líttu á ástandið í
þjóðfélaginu. Fólk er að sligast
undan þrældómi. Og ég spyr:
Þarf mikið til þess að gera betur
en gamli fjórflokkurinn?"
- En hvernig stendur á því að
svona ung manneskja eins og þú
skipar fyrsta sæti á framboðslist-
anum í stærsta og erfiðasta
kjördæminu?
„Það er enginn fenginn í fyrsta
sæti nema hann sé hæfur til þess
og virkur í flokknum. Nú hef ég
starfað í landsráði, er formaður
almenningstengsla og hef verið
mjög virk í flokksstarfinu. Ég var
ekki valin í þetta sæti af því að
ég er ung kona ættuð utan af
landi heldur vegna þess að ég er
talin hæf til þess að axla þá
ábyrgð sem fylgir því að sitja í
fyrsta sæti á framboðslista.“
- Áttu þér góðar minningar úr
kosningabaráttunni?
„Já, þetta var mjög lærdóms-
ríkt tímabil. Á kjördag heimsótti
ég yfirkjörstjórn. Það var mjög
fróðlegt, svona eins og að koma
á mafíufund. Þarna sátu ekki
fulltrúar kvenna eða ungs fólks.
Nei, þetta voru svona gæjar sem
senda manni gluggabréf í pósti.
Ég sannfærðist enn betur eftir
þessa heimsókn um að stjórn-
málamenn eru ekki annað en
dúkkur í höndum svona manna.
Þeir standa bak við tjöldin og
stjórna öllu.“
- Áshildur, hvað hefðir þú gert
ef þú hefðir komist inn í borgar-
stjórn? Getið þið starfað með
fjórflokknum títtnefnda?
Já, við getum starfað með
hinum flokkunum í ein-
stökum málaflokkum og
gerum það alveg örugglega.
En við færum aldrei í sam-
starf við hina flokkana,
aldrei. Það er nefnilega
ekki hægt að kaupa okkur gegn
því að láta af einhverjum af okk-
ar stefnumálum. Samstarf væri
ekki mögulegt nema hinir flokk-
arnir samþykktu okkar stefnu-
mál og forgangsröð. Ef við
vildum standa í einhverjum
óþverra hefðum við bara skráð
okkur í hina flokkana og eflaust
náð þar langt sem einstaklingar.
En manngildisstefnan er okkar
hugsjón og hún verður ekki brot-
in á bak aftur.“
- En hvað með samskipti við
hinn almenna kjósanda?
„Setjum sem svo að ég hefði
komist inn. Þá hefðu kjósendur
fengið fulltrúa sem hefði stöðugt
hamrað á þeim atriðum sem
skipta okkur mestu máli, svo sem
að hækka launin, leysa hús-
næðisvandann og dagvistun. Og
ég hefði ekki þagað yfir ein-
hverjum vafasömum aðgerðum í
borgarstjórn. Það er mjög auð-
velt að koma upplýsingum áleið-
is til fólks. Við getum dreift
flugritum yfir bæinn, gefið út
bæklinga, hengt upp veggspjöld.
Það er nauðsynlegt að opna augu
fólks fyrir spillingunni."
- Eruð þið vinstri eða hægri
flokkur?
„Við erum mannréttindaflokk-
ur. Út frá okkar hugmyndafræði
er frumstætt að ræða um vinstri
eða hægri. Við viljum ýmsar fé-
lagslegar breytingar. Og þar með
eru margir sem stimpla okkur
mjög róttæk. Aftur á móti viljum
við draga úr ýmsum ríkisafskipt-
um og þá erum við komin í flokk
einhvers konar hægri manna. En
okkar markmið eru hafin upp
yfir alla umræðu um vinstri og
hægri. Ég held að okkur hafi tek-
ist í kosningabaráttunni að
hrista alla stimpla af flokknum.“
- Nú eru alþingiskosningar
yfirvofandi. Þið ætlið að bjóða
fram?
„Jú, og við höfum haldið und-
irbúningsráðstefnu vegna þeirra
og erum farin að leggja drögin
að væntanlegri stefnuskrá. Við
verðum varla mjög vinsæl meðal
alþingismanna því við leggjum
til að þeir fái sömu laun og þeir
lægst launuðu í þjóðfélaginu.
Eftir slíka breytingu er hægt að
treysta alþingismönnunum, ekki
fyrr. En hvort laun alþingis-
manna yrðu lækkuð eða laun
þeirra lægst launuðu hækkuð,
það er svo annað mál!
En við ætlum ekki bara að
bjóða fram til Alþingis, við ætl-
um að ná inn mönnum. Til þess
þurfum við auðvitað fleira fólk
til starfa með okkur. Við erum
búin að skipuleggja mjög
skemmtilegt starf næstu mánuð-
ina. Það er aðgengilegt fyrir
hvern þann sem starfa vill með
okkur.“
- Svo við snúum okkur að
öðru. Manngildishreyfingin er
alþjóðleg en hvað með Flokk
mannsins, er hann til annars
staðar?
Sko, svipaðir flokkar eru í
gangi víða um lönd. En
þeir hljóta að laga sig að
mismunandi þjóðfélögum.
Við höfum samband við
þessar hreyfingar. I fyrra-
haust áttum við til dæmis
þátt í því að stofna flokka í Finn-
landi og á írlandi. Það eru mjög
27. TBL VI KAN 27