Vikan - 04.09.1986, Blaðsíða 35
Leitaði eftir
starfi hjá utan-
ríkisráðuneytinu
Eitt af mínum fyrstu verkum,
þegar ég kom heim, var að
ræða bæði við þáverandi utan-
ríkisráðherra og skrifstofu-
stjóra svokallaðrar varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins, kynna þeim
bakgrunn minn, menntun og
mín áhugamál, að ég hefði
áhuga á því að vinna fyrir þjóð
mína að þessum málum og að
ég hefði varið allt að því áratug
úr lífi mínu til að búa mig sér-
staklega undir þetta.
Þó væri ég ekki á flæðiskeri
staddur ef ég fengi neikvætt
svar frá þeim þar sem þetta er
haldgóð menntun og, að
minnsta kosti erlendis, vel met-
in í borgaralegum stjórnar-
stöðum, þá aðallega hjá
einkafyrirtækjum.
Það sem ég fékk að vita var
að innan árs yrðu ráðnir tveir
varnarmálafulltrúar hjá utan-
ríkisráðuneytinu með sérþekk-
ingu á sviði utanríkismála.
Eg hef ekki, þetta ár sem ég
hef verið heima, séð þessar
stöður auglýstar nokkurs stað-
ar opinberlega. Þó skal ég ekki
þræta fyrir það. Ég gaf þessum
mönnum, sem ég greindi frá,
upplýsingar, fullt nafn, síma-
númer og heimilisfang, ef þeir
hefðu áhuga á því að hafa sam-
band við mig um þessi mál eða
þá að gefa mér kost á því að
sækja um atvinnu á þessu sviði
hjá þeim.
Kjaftshögg að
vera hunsaður
á þennan hátt
Eg hef aldrei heyrt eða séð
þessar stöður auglýstar. Ég
heyrði strax og ég kom heim,
þó að ég hafi skellt skolleyrum
við því, hverjir hefðu átt að fá
þessar stöður. Og það hefur
komið á daginn.
Nú er ég ekki af stórri ætt
og ekkier ég auðugur og ekki
er ég tengdur neinum pólitísk-
um samtökum. Meðmæli hef
ég fengið óumbeðið frá ofursta
í bandaríska flughernum sem
fyrir utan að vera trúnaðarvin-
ur hefur hvatt mig í gegnum árin.
Hins vegar finnst mér það
vera svolítið kjaftshögg að
vera hunsaður algjörlega á
þennan hátt. Hreint nei hefði
mátt taka sem gott og gilt svar.
Bóndasonur úr Reykhólasveit oró-
inn sjóliðsforingjaefni í Noregi árið
1978.
36. TBL VIKAN 35