Vikan - 04.09.1986, Blaðsíða 51
VIKAN
P Ó S T U R
SÖNGUROG
BAKRADDIR
Halló Póstur!
Mig langar að spyrjast fyrir um hvert mað-
ur á að snúa sér ef maður hefur áhuga á að
verða söngvari eða bakrödd hér á landi. Mér
hefur oft verið bent á að reyna þetta þar sem
ég er með góða rödd.
Með þakklæti fyrir birtinguna.
María.
Ef Pósturinn skilur þig rétt hefur þú áhuga
á þvi að verða dægurlagasöngkona. Ekki
veit Pósturinn til þess að hægt sé að læra
þess háttar söng í skólum eða i formi nám-
skeiða hér á landi. Eini söngskólinn. sem
starfandi er hér á landi. er Söngskólinn í
Reykjavik en þar er einungis kenndur klass-
iskur söngur og í boði er eins árs almenn
deitd og söngkennaradeild. Ef þú ert ekki
að hugsa um klassiskt söngnám telur Póstur-
inn að ráðlegast sé fyrirþig að leita til útgáfu-
og hljómplötufyrirtækja og komast í sam-
band við fólk sem hefur með þessi mál að
gera. Nú. svoeralltafsá möguleiki fyrir hendi
að reyna að koma sér í hljómsveit eða bara
að stofna eina slíka.
í ÓMENG-
AÐRINÁTT-
ÚRU OG ÁST
Elsku Póstur.
Ég hef aldrei skrifað þér áður og vona því
innilega að Helga sé södd þar sem ég er I
gífurlegum vanda. Ég hef oft lesið svona
vandamálabréf og haft gaman af en allt I
einu er ég staddur í þessum fyrrnefnda vanda
og er gjörsamlega ráðalaus. Ég treysti mér
varla að ræða þetta við vini og þaðan af síð-
ur fjölskyldu þar sem þetta er í senn mikið
viðkvæmnis- og tilfinningamál.
Þannig er mál með vexti: Ég er strákur
og ja við skulum segja að ég hafi tekið út
þroskann minn. Ég hef ævinlega verið svolít-
ið upp á kvenhöndina og á síðastliðnum
vetri kynntist ég stelpu sem við skulum kalla
A. Kynni okkar voru ekki löng en ég hef
eftir áreiðanlegum heimildum að umrædd
stúlka hafi alltaf verið og sé enn svolítið
veik fyrir mér.
Pyrir nokkru brá ég mér I utanlandsferð
ásamt kunningjum mínum og var A með I
J % 1 « j 1
f r ) sJl T \
þeirri ferð. Önnur stúlka, B, var einnig með
en A og B eru æskuvinkonur og hinar bestu
vinkonur enn þann dag í dag. I þessari ferð
vorum við B svolítið saman og ég gerðist
mjög ástfanginn af henni. B þurfti að vísu
að fara fyrr heim til íslands þar sem hún
þurfti að fara til annars lands sem skiptinemi
en kemur heim bráðlega. Ég er ennþá hrifinn
af B og bíð hennar I ofvæni.
En nú byrjar krísan. Um síðustu verslunar-
mannahelgi hitti ég A aftur. Ég var að vísu
undir áhrifum áfengis og tókum við saman,
fórum i labbitúr og sameinuðumst síðan
hvort öðru í ómengaðri náttúru og ást. Á
útlensku myndi þetta ef til vill útleggjast sém
„a one night stand".
Nú veit ég ekki, elsku Póstur, hvað gera
skal. Ég held að ég hafi klúðrað B, sem ég
er hrifinn af, vegna vinkonu hennar, A. Hvað
á ég að gera þegar B kemur heim? Hvað á
ég að segja við hana um okkur A og hvern-
ig á ég að hegða mér við A? Ég er alveg
viti mínu fjær og þarfnast ráðleggingar.
Með fyrirfram þökk.
Pjallaflækja.
Já. það má svo sannarlega segja að A og
B hafi þvælst fyrir þér á síðastliðnum vetri
og geri enn. Ef þú ert hrifinn af A þarft þú
ekki að halda að þú hafir klúðrað B. þú ert
búinn að því. Pósturinn telur ráðlegast að
þú segir B sannleikann eftir að hún kemur
heim. Þú verður hreinlega að segja B hvað
gerst hafi og B ætti að einhverju leyti að
skilja það þar sem hún spillti fyrir A i utan-
landsferðinni forðum daga - það er að segja
ef þú hefur eftir áreiðanlegum he/mildum
að A hafi þá verið svolítið veik fyrir þér. Og
þá er að manna sig upp og fara á fund A
og tjá henni tilfinningar sínar sem ætti ekki
að vera svo óskaplega erfitt eftir„a one night
stand".
SANDRA KIM
Kæri Póstur!
Ég er í mjög miklum vandræðum. Þannig
er mál með vexti að mig vántar að fá vitn-
eskju um belgísku stúlkuna Söndru Kim.
Hér koma svo spurningarnar:
1. Hvar á hún heima?
2. Ef þú getur ekki gefið það upp þá vantar
mig heimilisfangið hjá aðdáendaklúbbi
hennar.
3. Er hún trúlofuð?
Ég vona að þú svarir þessu og að Helga
sé södd.
Einn áhugasamur aðdáandi.
Póstinum hafa að undanförnu boristmörg
bréf þar sem verið er að leita eftir upplýsing-
um um Söndru Kim. Því miður hefur
Pósturinn ekki rekist á neinar upplýsingar
varðandi hana og vill því hérmeð nota tæki-
færið og b/ðja þá lesendur Póstsins. sem
eitthvað vita. að skrifa bréf og láta i sér
heyra. Þær upplýs/ngar kæmu svo sannar-
lega að góðum notum.
PENNAVINIR
Kumiko Araki
1681-106 Ðondon Shirane
Nakakoma
Yamanashi 400-02
Japan
Kumiko er26 ára gömul. Áhugamál henn-
ar eru lestur, tónlist. iþróttir. ferðalög og
margt fleira.
Lilja Aure
Halsuantie 9 D 29
SF-00420 Helsinki
Finland
LHja er 39 ára gömul. Áhugamál hennar
eru Ijósmyndun. ferðalög og tungumál. Hún
talar sænsku. ensku, þýsku. frönsku og ít-
ölsku.
Michelle L. Mier
2335 Plymouth SE
Grand Rapids. Ml 49506
U.S.A.
M/chelle er 14 ára gömul. Hún vill skrif-
ast á við stelpur á öllum aldri.
36. TBL VIKAN 61