Vikan

Tölublað

Vikan - 04.09.1986, Blaðsíða 50

Vikan - 04.09.1986, Blaðsíða 50
D R A U M A R / VÍNDRYKKJA Kæri draumráðandi. Mig dreymdi sérlega skrýtinn draum nýlega. Mér fannst ég og stelpa, sem ég þekki, vera á blindafylliríi. Það var eins og kom- in væri verslunarmannahelgi og við vorum ferlega fullar, en við drekkum ekkert ofboðslega I alvör- unni. Þarna voru líka strákar sem voru hrikalega fullir, þeir eru báðir heldur blautir I rauninni. En ég þekki þá ekki mikið og við höfum engan sérstakan áhuga á þeim. Þeir heita X og Y ef það skiptir máli. Ég ætla á C um verslunar- mannahelgina og mig langar að vita hvort þessi draumur hefur eitt- hvað með það að gera. Með fyrirfram þökk fyrir birting- una, vonandi að þú getir ráðið þetta fljótt. G. Þessi ráðning kemur auðvitað of seint en svo sem allt i lagi að segja þér eftir á að þessi draumur er ekki tákn um drykkju (vonandi að þú sért sæmilega fráhverf henni, skriftin bendir til að þú hafir lítið með vín að gera á þess- um atdri). Þessi draumur er hins vegar vísbending um að heldur vætusamt veður hafi verið á C um verslunarmannahelgina. Vonandi að það hafi ekki spillt skemmtun- inni. Hins vegar eru nöfnin á X og Y vísbending um að þið hafið skemmt ykkur vel, en þau koma þeim strákum að öðru leyti ekkert við. FJÓRFALT BRÚÐKAUP Kæri draumráðandi. Fyrir nokkrum dögum dreymdi mig skrýtinn draum sem ég ætla að biðja þig að ráða fyrir mig ef þú getur. Og hér kemur draumur- inn: Ég var stödd fyrir utan bió á aðalgötu bæjarins með fullt af öðru fólki, þar á meðan besta vini stráksins sem ég er hrifin af. Við skulum kalla hann A en vin hans S. A var inni í bíóinu að gifta sig (hann er 17 ára). Jæja, svo fór fólkið að tínast út, fyrstur kom maður sem ég þekki ekki neitt, hann var líka að gifta sig. Þetta var fjórfalt brúðkaup. Svo komu fjórar Ijóshærðar konur, allar í Ijós- um kjólum. Sú aftasta var kona A. Þá komu tveir menn og loks A í svörtum leðurjakka sem hann á. Fólkið stillir sér upp á móti okkur en A er voðalega áhugalítill um þetta allt saman. Þá byrjar hljóm- sveit að spila og S gengur að A og þeir fara að dansa saman, en konan hans A verður voða súr og við stelpurnar hneykslaðar en þeir dansa bara saman. Mér finnst vera önnur hljómsveit fjórum húsum ofar og þeir dansa þangað og við eltum. Svo erum við allt I einu komin inn í hús, ég og A, og inn í herbergi þar sem er sjónvarp og rúm. Við sitjum á gólfinu og A er fullur. Flann tekur í mig, dregur mig til sín og þá segi ég: A, þú varst að fita þig. Hann sleppir mér þá og segir: Æ, já. Svo förum við bara að sofa en þegar við vöknum segir hann að hann ætli að skilja við stelpuna. En þá vaknaði ég. Með fyrirfram þökk fyrir birting- una. Ég. Þessi draumur er fyrst og fremst fyrir einhvers konar leiðindum, sennilega i vinahópi þínum eða fjölskyldu, og það eru fjórir aðilar sem þessi leiðindi snerta. Þau eru ekki langvarandi en hvimleið á meðan á þeim stendur. BRÚNVAGGA OGÞRJÁRÍ VIÐBÓT Kæri draumráðandi! Eftirfarandi draum dreymdi mig fyrir stuttu: Mér fannst ég vera í gamla hús- inu heima. Mamma var þarna með mér og einhver strákur og ég sagði við mömmu að húsið væri að verða of lítið fyrir okkur. Við fórum fram í forstofu og þá sá ég dyr sem ég hafði aldrei séð áður. Ég opn- aði dyrnar og sá þá inn á gang þar sem voru mörg herbergi, öll með dyrnar opnar. Ég sneri mér að mömmu og sagði: Af hverju hefur þú aldrei minnst á þennan gang? Þú veist að húsið er of lítið: Þá svaraði mamma: Vegna þess að X og Z koma til með að búa hér í framtíðinni. Ég gekk inn á ganginn og inn í eitt herbergið. Þar inni var hjónarúm með sæng- urfötum sem voru öll í kuðli. Næst mér var brún vagga en örlítið fjær þrjár vöggur I viðbót sem mér fundust ekki skipta miklu máli. í brúnu vöggunni voru rúmföt (mér fundust þau vera frosinl). Þau voru blá. Allt í einu fannst mér ég verða að fara í næsta herbergi að hitta strákinn sem var með okkur mömmu þarna fyrst. Ég fór í næsta herbergi og heyrði þá að X var að tala við vinkonu mína (mér fannst ég sjá þau en þau ekki mig). X sagði: Ég er búinn að. . . Síðan eldroðnaði hann. Svo sagði hann: Z er ólétt! Þá labbaði ég til þeirra. Z sat þarna á gólfinu innst inni I ganginum og X stóð við hliðina á henni. Ég leit á Z og sagði: Ertu ólétt? Þá sagði hún: Já, og ég er líka í allt of þröngum skóm. Hún var með himinbláa labbskó í fang- inu! Með fyrirfram þakklæti. Bæ. 7689-0803. Að líkindum boðarþessidraum- ur veikindi og erfiðleika um einhverja hrið i fjölskyldu þinni. Einhvern tíma hefði því verið hald- ið fram að þessi draumur væri fyrirboði þess að X og Z eignuð- ust andvana barn og siðar þrjú heilbrigð en það er afskaplega hæpið að taka svo djúpt i árinni þó að einhver draumtákn gætu bent til þess. Mun líklegra er að draumurinn sé miklu almennari og merki að i fjölskyldu þinni verði einhverjir erfiðleikar framundan vegna veikinda eins fjölskyldu- meðlims og veikindin muni taka sig upp þrisvar eftir batann. Þetta mun á einhvern hátt varða alla í fjölskyldunni og verða til ein- hverra breytinga og óþæginda en varla langvarandi heldur mun fjöl- skyldan l.aga sig að breyttum aðstæðum. Það er ekki ósennilegt að þú munir verða leynd einhverju i sambandi við þetta allt til að byrja með og sennilegt að sá tími sé liðinn þegar þig dreymir þenn- an draum. SÓLGLER- AUGUOG SPRAUTA Kæri draumráðandi. Mig dreymdi draum sem mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig. Mig dreymdi að ég væri á heilsugæslustöð og ætti að fara i sprautu og ég kveið alveg ægilega fyrir. Mamma var þarna með mér og við biðum lengi. Svo sá ég ís- lenskukennarann minn sitja bak við afgreiðsluborð ásamt fleira fólki sem ég þekki ekki og ég var að hugsa um hvað hann væri að gera þarna. Þá var ég allt í einu komin inn í kaupfélagið og var ennþá að bíða eftir sprautunni. Ég lá á gólfinu og var að tala við strák sem ég þekki (hann lá líka á gólf- inu). Þá kom þarna inn strákur sem ég var með á föstu fyrir nokkr- um mánuðum og hann kom til okkar. Ég var með köflótt sólgler- augu og spangir og hann var líka með sólgleraugu og beisli. Við skiptum um spangir og sólgler- augu. Ég man lítið meira nema ég sá lækninn þarna einhvers staðar á bak við rekkana og bjóst við að hann færi að koma. Svo fór ég að hugsa um að ég yrði það sein í skólann eftir hádegi að ég yrði að sleppa vélritun. Með fyrirfram þökk fyrir birting- una. Ég. Þessi draumur er fyrirboði mjög mikils fjörs á næstunni (bréfið er það gamalt að þessi tíð ætti að standa sem hæst). Það verður glatt á hjalla, sennilega nýir vinir og ný áhugamál, mjög skemmti- legt og hresst, en jafnvel farið út á ystu mörk þess sem viðtekið er. Þú skalt hafa andvara á þér, þó gaman sé, ekki fara gáleysislega að i strákamálum og umgangast vin með gætni. Þá verður enn meira gaman. 60 VIKAN 36. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.