Vikan

Tölublað

Vikan - 04.09.1986, Blaðsíða 16

Vikan - 04.09.1986, Blaðsíða 16
Tveir vetur á einu ári Myndir: Einar Garibaldi Dominique Perritaz telur það engan veginn brjálæðislega hugmynd aö ferðast um Island. ,,Það er engan veginn brjál- æðisleg hugmynd að ferðast um island. Evrópubúar frétta sífellt meira um landið og ég held að fólk telji einkar áhuga- vert að skoða sig um hér." sagði þessi gerðarlegi svisslenski mótorhjólamaður sem Vikan rakst á í Haukadalnum. „Annars gerðu vinir mínir grín að mér áður en ég lagði af stað. Einn sagði að ef ég færi til íslands þá nældi ég mér í tvo vetur á einu ári. En það er alls ekki svo kalt hérna á sumrin." Hann heitir Dominique Per- ritaz og eftir sex mánaða undirbúning sigldi hann með Norrænu frá meginlandinu til Seyðisfjarðar. Þaðan þræddi hann ströndina norður, sigldi frá Snæfellsnesi yfir Breiðafjörð og virti Látrabjargið fyrir sér áður en stefnan var sett á af- mælisbarnið við Faxaflóa. Þegar komið var við sögu í Haukadalnum höfðu 4000 kíló- metrar af íslenskum vegum verið lagðir að baki, á einum og hálfum mánuði, en óljóst var hver aksturinn yrði á þeim þremur vikum sem eftir voru ferðarinnar. Jökulsárgljúfur, Mývatn og Þingvellir voru í hópi eftirminnilegustu staða í huga Dominique en framundan biðu meðal annars Þórsmörkin, Ófærufoss og Skaftafell. „Það er eftirtektarvert hvað landslagið hérna er fjölbreytt og ósnortið," sagði Dominique í stuttu spjalli, „það er nokkuð sem maður finnur ekki annars staðar í Evrópu. Þegar ég fór að leggja drög að þessari ferð var ég á höttum eftir því sér- kennilega og óvenjulega og Maöurinn hefur Ifka ,,vfgbúist“ vel fyrir hjólatúr um ísland. satt best að segja átti ég ekki von á jafnmörgum ferðamönn- um í ferjunni, bæði á mótor- hjólum og bílum. En ég hef ekki orðið fyrir vonbrigðum með landið, síður en svo. Ég var hins vegar hissa á því hvern- ig ungt fólk drekkur hérna. Maður sér það dauðadrukkið. ranglandi með flöskur úti á götu. Það er nokkuð sem ég á ekki að venjast heima. Þegar maður sér svona flýgur manni helst í hug að það hljóti eitthvað mikið að vera að, alvarleg vandamál á ferðinni. Reyndar hafa allir sinn djöful að draga. í Sviss og Evrópu allri þurfum við að berjast gegn eiturlyfja- vandamálinu en það virðist ekki orðið jafnáberandi hér." Að þessu mæltu spyrnti Dominique við fótum þannig að farartækið tók við sér, malaði Ijúflega og bar hann á veg í átt að Hruna. Þessi viðkunnanlegi Svisslendingur hafði kynnt sér söguna um dansinn á þeim bæ og vildi kanna staðhætti. Erfitt var að ímynda sér að innan mánaðar sæti hann við skrif- borð á vinnustað í Mið-Evrópu og fengist við tölur. „Ég er bankamaður," hafði hann sagt, „en fyrir Svisslending er það sambærilegt og að vinna í fiski fyrir íslending." 16 VI KAN 36. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.