Vikan - 05.03.1987, Qupperneq 10
10. tbl. 49. árg. 5.-11. mars 1987. Verð 150 krónur.
Guðni Guðmundsson, rektor
Menntaskólans í Reykjavík, elstu
menntastofnunar landsins,
stendur hér við græna skólatöflu
með táknum á. Guðni var mynd-
aður á eigin vettvangi þar sem
hann er hagvanur, við töfluna.
Valdís Óskarsdóttir, Ijósmyndari
Vikunnar, tók myndina.
ÚTGEFANDI: Frjáls fjölmiðlun hf.
RITSTJÓRI: Þórunn Gestsdóttir.
BLAÐAMENN: Guðrún Alfreðs-
dóttir, Hlynur Örn Þórisson,
Jóhanna Margrét Einarsdóttir,
Unnur Úlfarsdóttir.
LJÓSMYNDARI: Valdís Óskars-
dóttir.
ÚTLITSTEIKNARI:
Hilmar Karlsson.
RITSTJÓRN ÞVERHOLTI 11,
SÍMI (91) 2 70 22.
AUGLÝSINGASTJÓRI: Geir R.
Andersen.
AFGREIÐSLA OG DREIFING:
Þverholti 11, sími (91) 2 70 22.
PÓSTFANG RITSTJÓRNAR,
AUGLÝSINGA OG DREIFINGAR:
Pósthólf 5380,125 Reykjavík. Verð
í lausasölu: 150 kr. Áskriftarverð:
500 kr. á mánuði, 1500 kr. fyrir 13
tölublöð ársfjórðungslega eða
3000 krónur fyrir 26 blöð hálfsárs-
lega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram.
Gjalddagar nóvember, febrúar, maí
og ágúst. Áskrift í Reykjavík og
Kópavogi greiðist mánaðarlega.
RÖDD RITSTJÓRNAR I í ÞESSARI VlRU
Þórunn
Gestsdóttir
ritstjóri
Fræðsla
Mál skólanna, innan veggja sem
utan, er yfirgripsmikill málaflokkur
í okkar samfélagi. Mennt er mátt-
ur, segir máltækið sem þjóðin hefur
haft að leiðarljósi. Fræðslumál
þjóðar taka breytingum í tímans rás
og stundum er deilt um hvort
breytingarnar séu aðeins breyting-
anna vegna.
Grunnskólalögin þóttu marka
tímamót og hafa gert, en Ijóst er
að þau eru ekki gallalaus. Nýtt
framhaldsskólafrumvarp hefur séð
dagsins Ijós og spekingar skegg-
ræða um það og deila. Fyrir
nokkrum árum var börnum gert
skylt að Ijúka grunnskólanámi,
níunda bekknum. Nú hefur frum-
varp verið lagt fram á Alþingi þar
sem kveðið er á um að skólaskyldu
skuli Ijúka eftir áttunda bekkinn.
Ágreiningsefnin í fræðslugeiran-
um, fyrir utan laun kennaranna, eru
óteljandi. Menn eru ekki á eitt sátt-
ir um gildi áfangakerfis, telja
bekkjakerfið ákjósanlegra. Menn
deila um hvernig afbragðsnem-
endum reiðir af og þeim sem verst
eru settir námslega. Menn deila
líka um aga eða agaleysi innan
veggja skólanna og uppeldisað-
ferðir á þeim vettvangi.
Ný námsgögn koma fram og
mörg umdeilanleg. Nemendur eru
oft tilraunadýr breytinganna og
verða fórnarlömb ef breytingarnar
mistakast.
Fræðsla er alltaf af hinu góða og
líka er það af hinu góða að menn
deili um aðferðir, leiðir, árangur. Þar
sem skoðanaskiptin eru mikil má
ætla að gerjun sé töluverð og ein-
hver gróska. Guðni Guðmundsson,
rótgróinn skólamaður, er aðalvið-
mælandi Vikunnar nú. Hann hefur
löngum haft sínar skoðanir á
fræðslumálum og svo er enn.
4
Hvaða litur hæfir þér best, hinir
mjúku og mildu vor- og haustlitir eða
kaldir litir sumars og vetrar. Litagrein-
ing fyrir einstaklinga.
6
Maturinn, sem við berum á borð,
verður lystugri ef fallega er lagt á
borð, ekki satt? Það er „kúnst" að
leggja fallega á borð eins og sést á
sýn ishornumokkar.
8
Nafn Vikunnar er Úlfar Eysteinsson,
sem nýlega var gestur I eldhúsinu
okkar. Fyrir utan það að vera mat-
reiðslumaður er Úlfar mikill áhuga-
maðu r u m útflutning afurða okkar.
12
Brúðhjónin er sönn frásögn eftir Álf-
heiði Bjarnadóttur, unga konu I
Reykjavík. Við hvetjum fleiri til að
senda okkur efni I dálkinn: Lesendur
skrjfa.
20
Gesturinn í Viku-eldhúsinu, Anna
Bjarnason blaðamaður, eldar Filet
Gordon Bleu afsnilld.
22
Hilmar Karlsson segir frá nýrri kvik-
mynd með djassleikaranum Dexter
Gordon í aðalhlutverki, en hann hefur
verið tilnefndur til óskarsverðlauna
fyrir fyrsta hlutyerk sitt i kyikmynd.
24
Popp. Það er sænska þungarokks-
hljómsveitin Europe sem ber hitann
og þungann af poppinu þessa vik-
una.