Vikan - 05.03.1987, Qupperneq 24
Þungarokkssveitin frá Svipjóð
Nú í byrjun þessa árs hafa vinsælda-
listarnir verið örlítið í þyngri kantinum
og þær sveitir, sem hafa verið þar í
fararbroddi, eru Europe og Bon Jovi.
Hér er ætlunin að íjalla um Europe en
einhver fróðleikur um Bon Jovi mun
birtast fljótlega.
Þessi hljómsveit, Europe, kemur frá
nágrannalandi okkar, Svíþjóð. Þegar
menn heyrðu fyrst hvaðan þessi hljóm-
sveit væri kom upp rnikill efi um hvort
eitthvert vit væri í þessu enda ekki á
hverjum degi sem Norðurlandahljóm-
sveitir slá í gegn. En þetta virðist standa
til bóta því það eru Europe og A-Ha
sem eru að gera allt vitlaust um þessar
mundir svo það er aldrei að vita nema
fleiri sveitir af Norðurlöndum fylgi í
kjölfarið.
Europe var stofnuð í Stokkhólmi
árið 1982. Þar voru að verki þeir Joey
Tempest, John Norum gítarleikari,
John Leven bassaleikari og Tony
trommuleikari. Þeir fengu tækifæri til
að spila á sænskri rokkhátíð sem eins
konar upphitunarsveit. Þeir voru
heppnir og fengu plötusamning. Eftir
tónleikaferð fóru þeir í stúdíó þar sem
þeir tóku upp aðra plötu og heitir sú
Wings of Tomorrow. Þessi plata náði
töluverðum vinsældum í heimalandi
þeirra og opnaði þeim leið til frekari
vinsælda. Þeir fóru nú í hljómleikaferð
víða um heiin, þar á meðal til Japan.
Þeir fengu svo hljómplötusamning við
CBS/Epic fyrirtækið og í september
1985 byrjuðu þeir að taka upp þriðju
breiðskífuna, The Final Countdown.
Platan sjálf kom út vorið 1986 og titil-
lagið byrjaði að klifra hina ýmsu
vinsældalista, lenti til dærnis ofarlega á
lista bæði hjá Bylgjunni og á Rás 2.
Þeir syngja öll lög sín á ensku og
það hefur komið flestum blaðamönn-
um á óvart að þeir tala allir mjög góða
ensku. Það er söngvari hljómsveitar-
innar sem er aðaltalsmaður þeirra.
Nafnið á sveitinni og nöfnin á hljóm-
plötunum eru hans hugmyndir. Hann
er lika helsti laga- og textasmiður sveit-
arinnar. Hann segist ekki meina neitt
sérstakt með textum sínum.
Nafnið Joey Tempest er sviðsnafn
en þrátt fyrir ítarlegar eftirgrennslanir
blaðamanna hefur hann ekki fengist til
að gefa upp sitt rétta nafn. Hann seg-
ist vera ósköp venjulegur strákur sem
æfði fimleika áður en hann sneri sér
að fullu að poppinu. Það eru kannski
ekki allir sem trúa því að þeir tónlistar-
ntenn. sem hafa verið í uppáhaldi hjá
honum, eru Paul Young og Robert
Palmer.
Þar sem Europe og Bon Jovi eru
einna vinsælustu þungarokkssveitirnar
um þessar mundir og spila álíka kröft-
ugt eru blaðamenn duglegir við að bera
þessar hljómsveitir saman og spyrja
hvaða álit þær hafi hvor á annarri.
Joey reynir að koma sér undan þess-
um spurningum en hefur þó látið hafa
eftir sér að honum finnist lagið Living
on a Prayer gott. Þegar reynt er að
bera saman útlitið á honum og Jon
Bon Jovi segist Joey láta stelpunum
eftir að dæma um það. En hann segist
halda að hann þurfi ekkert að skamm-
ast sín fyrir útlitið og þurfi því ekki
að ganga með hauspoka.
Fyrir stuttu fækkaði í hópnum þar
sem gítarleikarinn, John Norum, hætti.
Joey segir að John hafi einfaldlega gef-
ist upp á öllu umstanginu í kringum
Europe.
The Finale Countdown hefur náð á
topp allflestra vinsældalista og Rock
the Night komist nokkuð ofarlega.
Þriðji smellurinn er farinn að klífa
brattann en það er ballaðan Carrie.
Óhætt nuin að fullyrða að þessir
sænsku strákar eru ekki búnir að syngja
sitt síðasta og það verður gaman að
fylgjast með þeim í framtíðinni.