Vikan


Vikan - 05.03.1987, Page 30

Vikan - 05.03.1987, Page 30
Jack Lemmon Ohagganleg Jack Lemmon í hlutverki sínu í myndinni Prisoner of Second Avenue. Leikkonan Maureen Staple- ton hefur kallað hann „heilagan Jack“. Reyndar hefur hver einasti maður í Hollywood eitthvað gott að segja um Jack Lemmon. Sidney Poitier rakst eitt sinn á blaðamann sem ætlaði að skrifa um Jack. „Reyndu að grafa eitthvað upp um fortið hans,“ ráðlagði Sidney, „og ef þú kemst að einhverju miður góðu um hann, láttu okkur hin þá endilega vita.“ Það er samt sem áður víst að Jack er mannlegur. Hann blótar golfkúlunni ef hún ferekki þá leið sem hann hafði ætlað. Hann gat hvorki hlustað á né skilið tónlistina sem Chris sonur hans eða dóttir hans, Courtney, hlustuðu á þegar þau voru tán- ingar. Og hann sagði að þau hefðu gengið í gegnum tímabil þegar hann skildi ekki hvernig þau gátu yfirleitt verið skyld honum. En núna er Chris, sem orðinn er þrjátíu og tveggja ára, besti vinur hans. „Nema þegar hann burstarmigígolfi.“ Chris hefur erft tónlistarhæfi- leika föður síns og er nú laga- smiður. Courtney er hins vegar í menntaskóla í Evrópu. „Það er afskaplega skemmtilegt fyrir hana en það er hræðilegt fyrir konuna og mig. Við söknum hennar svo ofboðslega." Faðir Jacks hafði brennandi áhuga á því sem hann langaði að gera og einkabarn hans hefur erft þennan eiginleika. Jack telur að það sé ein af meginástæðun- um fyrir velgengni hans sem leikara. „Þegar ég útskrifaðist úr menntaskóla vonaði faðir minn að ég gerðist bakari. Hann vann hjá alþjóðlegri keðju bakara. Eg sagði honum að ég vildi fara til New Y ork og gerast leikari. Eg bað hann um að lána mér tólf þúsund krónur sem ég gæti lifað á þangað til mér hefði tek- ist að láta fólk gleyma Barry- more, Lunt og Olivier. Ég bjóst við að það myndi taka um sex mánuði. Þá spurði hann mig hvort mig langaði raunverulega að leika. Þegar ég sagði honum að það væri hið eina sem ég vildi gera rétti hann mér peningana og sagði: Þá verður þú að leika. Ef sú stund skyldi einhvern tíma koma að mér fyndist brauðið ekki vera rómantískt þá myndi ég hætta sem bakari. Maður á aldrei að gera eitthvað sem rnaður hefur ekki unun af.“ Jack minnist þessa með ánægju. „Þetta er besta ráð sem ég heffengið á ævinni. Ogeitt get ég sagt þér með vissu: Ef maður er nrjög áhugasamur um starf sitt er miklu auðveldara að vakna á morgnana en ella. Áður en ég gerði myndina Mass Appeal var ég áhugasam- ur, meðan hvert myndverið á fætur öðru hafnaði henni. Svo hitti ég Joan Kroc, ekkju mannsins sem stofnaði McDon- ald’s. Hún sá hversu mikinn áhuga ég hafði á þessari sögu. Hún las handritið og fannst það svo gott að hún ákvað að að- stoða við að fjármagna mvnd- ina. Það sem gerði mig sérstaklega áhugasaman um Mass Appeal var að ég skildi prestinn sem ég ætlaði að leika. Ég skildi hann vegna þess að á vissan hátt var ég eitt sinn líkur honum. Tim Farley var prestur sem hafði ekkert fyrir því sem hann gerði. Hann var dáður og elskaður af hinum efnuðu sóknarbörnum sínum en hann varð að greiða_ hátt gjald fyrir þessa aðdáun. í ræðum sínum varð hann að segja fólkinu það sem það vildi heyra og skemmta því í stað þess að segja því sannleikann, sem stundum getur verið erfiður og jafnvel hræðilegur en alltaf nauðsynlegur. Ég var einu sinni mjög svipað- ur þessu, áður en ég hætti að drekka. En þegar ég varð eldri hætti ég að hafa svo miklar áhyggjuraf því hvað fólk hugs- aði. Eg fór að sætta mig við sjálfan mig sem manneskju, mann sem gerir sumt rétt og annað rangt. Ég fann sjálfan mig. En það sem var mikilvæg- ast var að hugmyndir mínar um velgengni breyttust. Eins og svo margt fólk hélt ég að velgengni þýddi að maður ætti mikla peninga eða væri frægur. Ég hélt að þetta kærni í veg fyrir öll vandamál en það varekki rétt. Vandamálin breyt- ast bara. Það koma ný vanda- mál sem eru alveg eins mikilvæg og þau sem voru fyrir. Maður, 30 VIKAN 10. TBL

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.