Vikan


Vikan - 05.03.1987, Qupperneq 34

Vikan - 05.03.1987, Qupperneq 34
Menntaskólinn í Reykjavík hefur löngum haft orð á sér fyrir íhaldssemi. Þeir sem róttækastir eru tala um skólann sem nátt- tröllið í skólakerfinu og segja nútímann aldrei hafa komið þar inn fyrir dyr. í sautj- án ár hefur Guðni Guðmundsson verið rektor skólans og haldið um stjórnartaum- ana styrkri hendi. Guðni er skólamaður af gamla skólanum og þáttur hans í ímynd skólans út á við er stór. Hann fer ekki í grafgötur með að hann er íhaldssamur og telur fulla þörf fyrir gamaldags borgaraleg- an skóla eins og Menntaskólann í Reykja- vík. Hann hefur löngum þótt orðhvass og hæðinn í meira lagi og þar verða nemendur óspart fyrir barðinu á honum. Þeir eru líka flestir lafhræddir við hann enda er Guðni frægur fyrir annað en þolinmæði gagnvart þeim sem eru að drolla og dúlla í skóla eins og hann segir sjálfur. En þó nemendum kunni að finnast Guðni heldur hranalegur á yfirborðinu þá er hann, eins og einn gam- all nemandi hans orðaði það, „öðlingur undir niðri“. Þessi borgaralegi skóli, sem fer svo fyrir brjóstið á mörgum, hefur alið af sér alla helstu komma þjóðarinnar Vetrarmorgunn, kaldur og dimmur - nýr skóladagur er runninn upp. Guðni er mætt- ur á vaktina og engin grið gefin þeim sem sofa þegar þeir mega ekki sofa því eitt er víst, Guðni sefur aldrei yfir sig. Riiiing. . .riiing.. .riiing. Stundum geta sætir draumar breyst í martröð. Riiing. . .riiing. . .riiing. Halló. . . Vitið þér hvað klukkan er? er öskrað hinum megin á línunni. Ha, neeei, jú, annars (auðvitað veit ég hvað klukkan er. Guðni byrjar alltaf á slag- inu tuttugu mínútur yfir átta). Jæja, það var ágætt. Þér hafið kannski hugsað yður að koma við hérna í Lækjar- götunni? Ha, já, já, ég er alveg að koma. Nú skiptir allt i einu alveg um tónteg- und: Það var fint, segir Guðni hinn blíðasti, og þér hlaupið við fót, er það ekki? Jú, jú, ég kem í hvelli. Snautið þér af stað og ekkert helv... droll, NÚNA STRAX. . . Þetta síðasta öskur hefði getað vakið mann upp frá dauðum enda var hlaupið við fót sem leið lá niður í Lækjargötu. Minningarnar fara eins og leiftur í gegn- um hugann þegar ég geng upp stigann í gamla skólahúsinu, til skrifstofu Guðna. Lyrir utan skrifstofuna tvístíga nokkrir nemendur hálfvandræðalegir á svip. Kunn- ugleg sjón. Hér hefur greinilega litið breyst. „Gjörðu svo vel,“ kallar Guðni, „komdu inn og fáðu þér sæti." Raddstyrkurinn hef- ur að minnsta kosti ekkert breyst, Guðni sjálfur reyndar ekki heldur. Jú, hann hefur grennst töluvert en virðist að öðru leyti lik- ur sjálfum sér. Út um gluggann sé ég nemendur vera að sópa tröppurnar og stétt- hraustlega í nefið. „Líklega er ég frekar ihaldssamur. einkum í kennslumálum. Eig- um við ekki að orða það svo að ég sé ekki ginnkeyptur fyrir breytingum. Það er hins vegar afskaplega mikill misskilningur að við séum eitthvað steinrunnir hér i MR. Við erum ekkert að auglýsa það sem við höfum verið að gera. Við vorum fyrstir með ýmsa hluti, eins og til dæmis valgrein- ar í íþróttum og rússnesku. Við breytum ekki bara til að breyta. Við verðum að hafa vissu fyrir að það sé eitthvert vit í þeim breytingum. Þess vegna gerðum við ýmsar tilraunir sem kannski hafa ekki allar gefist vel. Það var til dæmis þannig með ina fyrir utan skólahúsið. Ég spyr Guðna hvort hann láti krakkana þrífa eftir sig síg- arettustubbana og annað drasl. „Hu. þetta eru líklega einhverjir leikfimileysingjar," segir hann snöggur upp á lagið. „Þeir hafa ekkert betra að gera.“ - Þú ert álitinn fram úr hófi íhaldssamur og oft er talað unr Menntaskólann í Reykja- vík sem einhvern saltstólpa í eyðimörkinni, hér hafi engu verið breytt og hér megi engu breyta. Ertu að viðhalda hefðum hefðanna vegna eða ertu kannski ekkert íhaldssamur? „Já, já, menn eru eitthvað að tala um þetta," segir Guðni og hlær við. Hann tek- ur upp silfurslegna tóbakspontu og fær sér rússneskuna að menn fóru í hana á ídeólóg- iskum grundvelli vegna þess að þeir voru kommúnistar. Hún reyndist þeim í flestum tilfellum svo erfið og leiðinleg að þeir gáf- ust upp. Eftir að hafa haft hana á námsskrá í þrjú ár án þess að nokkur skráði sig í hana tók ég hana út af skrá. Og talandi um kommúnista og ídeólógíu þá má nú i gamni geta þess að þessi borgaralegi skóli, sem fer svo fyrir brjóstið á mörgum, hefur alið af sér alla helstu komma þjóðarinnar, allt frá Brynjólfi Bjarnasyni og Einari 01- geirssyni." Og nú brosir Guðni breitt. „Auðvitað gæti ég boðið upp á endalausa lista af valfögum eins og margir hinna skól- Viðtal: Unnur Úlfarsdóttir Myndir: Valdís Óskarsdóttir 34 VIKAN 10. TBL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.