Vikan


Vikan - 05.03.1987, Page 36

Vikan - 05.03.1987, Page 36
fimm sem komust inn. Ég fór í Gagnfræða- skóla Reykvíkinga og eftir það fór ég norður til Akureyrar, í Menntaskólann þar. Þar bjó ég hjá systur minni og mági. Eg stóð mig alveg þokkalega i skólanum. Á stúdentsprófi fékk ég sex fimmtíu á Örsted skala sem samsvarar eitthvað yfir átta í dag.“ - Var ekki hressilegt stúdentalíf á Akur- eyri? „Ég man nú ekki eftir að það hafi verið neitt fram úr hófi fjörugt. Ég bjó ekki á vistinni og var þar af leiðandi ekki eins mikið í félagslífinu. Það sem gerði útslagið var nú reyndar að ég bjó niðri við Ráð- hústorgið. Þá var ekki bíll í hverju húsi og engar strætisvagnasamgöngur á Ákureyri í þá daga. Og þar sem ég er afskaplega spor- latur maður þá nennti ég hreinlega ekki að þramma upp brekkuna aftur til að hitta félaga mína. Það má því segja að brekkan haíi komið í veg fyrir frekari þátttöku mína í félagslífmu.“ Guðni varð stúdent lýðveldisárið 1944. Hann var þá þegar ákveðinn í að fara ut- an, til Edinborgar, til náms. En þar sem stríðið var á lokastigi varð ekkert úr utan- för fyrr en ári síðar. En hvernig stóð á því að hann varð menntaskólakennari? „Ég held að ég hafi verið í fjórða bekk þegar ég ákvað að ég ætlaði að verða menntaskólakennari í ensku og frönsku. Það var svo sem engin hugljómun, mér fannst það liggja nokkuð vel við. Þetta voru mín uppáhaldsfög. Ári eftir að ég lauk stúdentsprófi lá leið- in til Edinborgar og þar tók ég öll mín próf, gerði svo smáhlé og fór heim og kenndi í einn vetur til að afla mér skotsilf- urs. Eftir það var ég einn vetur í Paris því menntaskólanámið í frönsku reyndist duga skammt í hákólanámi.“ Vorið 1951 kvæntist Guðni konu sinni, Katrínu Ólafsdóttur. Sama sumar fór hann aftur til Parísar þar sem hann dvaldist í nokkra rnánuði og tók síðan lokaprófið. ;,í París hitti ég fyrir Pétur Benediktsson. Ég tjáði honum að ég væri nýgiftur og yrði þarna einn um sumarið. Þá horfði hann á mig smástund og sagði: Hvað, ertu bara á „a Scotsman’s honeymoon“? Það er naum- ast að þú hefur lært af þeim þarna í Edinborg." Guðni hlær hrossahlátri og fær sér aftur í nefið. „Svo kom ég heim. Þá stóð þannig á að Gunnar heitinn Norland var að fara í nárns- leyfi til London og ég fékk hluta af kennslunni hans. Nú, mér var ekki sparkað og er hér enn.“ - Hvað ertu þá búinn að kenna hér lengi? „Ja, nú skulum við sjá. Það eru nú bara hvorki meira né minna en þrjátíu og sex ár. Ég næ líklega að vera hér i fjörutíu ár og gott betur.“ - Þú hlýtur að hafa sterkar taugar til skólans. Hann hlýtur að vera þér meira en vinnustaður? „Það er nú svo einkennilegt með það að þó ég hafi aldrei sjálfur verið nemandi í Það er með góða sögu, hún er eins og gott vín, hún verður betri með árunum. „Inn í stofu með yður - á stundinni." þessum skóla þá þykir mér óskaplega vænt um hann og vil veg hans sem allra mestan. Ég á voðalega erfitt með að hugsa öðruvísi en í tengslum viðjrennan vinnustað minn. Ég er hér alltaf. Ég held að ég megi segja að frá því að ég varð rektor hafi ég aldrei farið frá skólanum lengur en eina viku í einu og sjaldnast meira en tvær vikur í allt á sumri.“ - Ertu enn sami ógnvaldurinn og í gamla daga? Nú breiðist þetta gamalkunna Guðna- glott yfir andlitið. „Já, já, ha? Nei, nei, ég er miklu mildari 36 VIKAN 10. TBL

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.