Vikan


Vikan - 28.05.1987, Síða 12

Vikan - 28.05.1987, Síða 12
YERMA Yerma, eitt stórbrotnasta leikverk spánska listamannsins Federico Garcia Lorca, var nýlega frumsýnt hjá Þjóð- leikhúsinu. Þetta verk er raunar einn hluti þríleiks sem fjallar um örlög al- þýðufólks á Spáni fyrir borgarastyrjöld- ina. Hin verkin tvö, Blóðbrullaup og Hús Bernhörðu Alba, hafa áður verið sýnd hér á landi en nú er komið að Yermu. Lorca fæddist árið 1899 í litlu þorpi nálægt Granada á Spáni. Hann var fjöl- hæfur listamaður en auk leikritunar fékkst hann við ljóðagerð, tónsmíðar og málaralist. Federico García Lorca varð ekki langlifur því í upphafi borg- arastyrjaldarinnar, árið 1936, var hann myrtur af fylgismönnum Francos. Boð- skapur listamannsins féll ekki i kramið hjá fasistum. Karl Guðmundsson þýddi leikritið, Þórhildur Þorleifsdóttir sá um leik- stjórn, Sigurjón Jóhannsson gerði leikmynd og búninga og tónlist er eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Tinna Gunnlaugsdóttir og Arnar Jónsson í hlut- verkum Yermu og Jóanns. Jóann og systur hans (Lilja G. Þorvaldsdóttir og Anna Kr. Arngrímsdóttir). Texti: Guðrún Alfreðsdóttir Myndir: Valdís Óskarsdóttir X - 12 VI KAN 22. TBL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.