Vikan - 28.05.1987, Page 44
lll
Hressar sölukonur
Það lifnar aldeilis yfir götulífinu
á sumrin. Borgarbörnin, sem fara
ekki í sveit yfir sumarið, finna sér
ýmislegt skemmtilegt að gera á
götum bæjarins.
Um miðjan maí hittum við hóp
af hressum stelpum á bílastæði
Iðnaðarhússins í Reykjavík.
Þetta var einn af fyrstu sólardög-
unum í sumar en þrátt fyrir það
var ansi kalt. Stelpurnar létu það
þó ekki á sig fá og höfðu komið
fyrir litlu borði upp við stein-
vegg. Á borðinu var fullt af dóti
til sölu: snyrtidót, skrautlegir
eyrnalokkar, hárkambar, spenn-
ur og ýmislegt fleira.
Það var mikið fjör í kringum
borðið og við spurðum stelpurn-
ar hvað þær væru að gera.
Stelpurnar, sem heita Eygló Rós,
Kolbrún Ýr, Sigrún, Vigdís, Snæ-
dís og Lísa, svöruðu oftast allar
í einu.
Við erum að selja og safna pen-
ingum fyrir Kvennaathvarfið.
- Eruð þið búnar að selja mik-
ið?
Já, fyrir eitthvað um tvö þús-
und.
Umsjón:
Hólmfríður
Benediktsdóttir
Hér sýna stelpurnar okkur hárskraut sem þær hafa til sölu.
44 VIKAN 22. TBL