Vikan - 28.05.1987, Blaðsíða 45
En hvar fenguð þið dótið seni
þið seljið?
Bara í mörgum búðum á
Laugaveginum og víðar.
Voru allir svo góðir að gefa
ykkur?
Já, já, flestir, en við fórum í
eina búð og þar sagði konan nei,
við höfum ekkert að gefa. Ogí
annarri vorum við að fara að
spyrja og þá bara hrinti konan
okkur út, bara henti okkur.
Hvað segið þið, í hvaða búð
var það?
Æi, það var svona snyrtibúð á
Laugaveginum, við munum ekki
hverri því við erum búnar að fara
í svo margar búðir.
Ætlið þið svo með peningana
í Kvennaathvarfið?
Já, eða í bankann eins og síð-
ast. í fyrra söfnuðum við líka og
fórum í banka og bankinn lætur
Kvennaathvarfið fá peningana.
Við vitum ekki hvar Kvennaat-
hvarfið er.
Ætlið þið að halda áfram að
selja í sumar?
Eg ætla að halda tombólu með
Vigdísi, sagði Lísa, og hinar tóku
undir um að lleiri tombólur væru
á döfinni.
Og safna þá líka fyrir
Kvennaathvarfið?
Já, við vitum ekki hverjir aðrir
þurfa peninga, við ætlum bara
að reyna að safna fyrir þá sem
vantar peninga.
Hafið þið ekki prófað að vera
á betri stað en þessum, kemur
nógu margt fólk hingað?
Já, við vorum þarna, svöruðu
stelpurnar og bentu fyrir hornið.
Ein sagðist ætla að vera fyrir utan
heima hjá sér eða bara úti í garði.
Hún var ekki búin að ákveða
það.
- Enerykkurekki kalt?
Éger að frjósa.
Enþú?
Jú, mér er kalt.
Ætlið þið þá ekki að fara
heim og hlýja ykkur?
Jú, en viltu ekki kaupa af okkur
fyrst?
Og eftir að hafa keypt af stelp-
unum stóra járnprjóna til að nota
á útigrillið pökkuðu þær saman
og héldu heim.
Daginn eftir voru stelpurnar
komnar aftur með litla borðið
fullt af dóti hinum megin við
hornið. Þá skein sólin og þegar
blaðamaður Vikunnar átti leið
hjá var nóg að gera hjá stelpun-
um.
22 TBL VIKAN 45