Vikan - 22.10.1987, Blaðsíða 7
BANVÆN
HOLLUSTA!
Vísindamenn segja ofneyslu á jurtafitum
stórháskalega!
Ofneysla á nær því hverju heimili!
Texti: Magnús Guðmundsson
Nýjar niðurstöður úr rannsóknum á áhrifum fjöl-
ómettaðra fitusýra á mannsiíkamann, hafa koll-
varpað áratuga gömlum viðhorfum fræðimanna til
hollustu plöntufitu.
Niðurstöðurnar eru ekki aðeins sláandi fyrir vís-
indamenn, heldur hljóta þær að koma matvæla-
framleiðendum og heilbrigðistyfirvöldum algjör-
lega í opna skjöldu og hafa stórkostleg áhrif á
matvælaiðnað og neysluvenjur heimila um allan
heim!
Niðurstöðurnar benda tii að plöntufita geti ekki
aðeins verið varhugaverð, sé hennar neytt í mikl-
um mæli, heldur hafa vísindamenn fundið ógnvekj-
andi vísbendingar um að ofneysla á sumum fjöl-
ómettuðum plöntufitusýrum geti leitt til örkumls,
eða jafnvel dauða.
Vísindamenn í næringarefna-
fræði hafa orðið verulegar
áhyggjur af þeim öfluga og oft
öfgakennda áróðri sem mat-
vælaiðnaðurinn og ýmsir heilsu-
postular hafa haft uppi í áraraðir
fyrir neyslu á fjölómettuðum fit-
um úr jurtaríkinu. Áróðurinn
hefúr orsakað stórkostlega of-
neyslu almennings á vestur-
löndum á þeim fltusýrum, sem
mestum skaða geta valdið.
Mestu skaðvaldarnir eru, að
dómi margra vísindamanna,
svokallaðar Omega 6 fitusýrur,
sem eru ríkjandi í jurtaolíum. í
næstum öllum iðnaðarfram-
leiddum matvælum úr jurtafitu,
eins og smjörlíki, matarolíum
►
VIKAN 7
og mjög auglýstum hollustuvör-
um eins og kvöldvorrósarolíu,
er verulegt magn Omega 6 fitu-
sýra, aðallega línolíusýru, sem
getur orsakað mjög skaðlega
hormónamyndun í líkamsfrum-
um manna og dýra.
Plöntufita og
skyndi-hjartadauði
Dr. Sigmundur Guðbjarnar-
son Háskólarektor, er í hópi ís-
lenskra vísindamanna sem hafa
m.a. rannsakað streituáhrif fjöl-
ómettaðra fitusýra á hjarta og
æðakerfi manna. Hann segir
rannsóknarniðurstöður íslend-
inga styðja fullyrðingar erlendra
MYND: MAGNÚS HJORLEIFSSON