Vikan


Vikan - 22.10.1987, Síða 9

Vikan - 22.10.1987, Síða 9
Tafla yfir neyslu blaðamanns í einn dag Morgunverður: Tvær 250 gr. brauðsneiðar m/plöntusmjörlíki ............. Hádegisverður: Einn 75 gr. hamborgari, steiktur í matarolíu ............ 70 gr. franskar kartöflur............................... 30 gr. kokteilsósa...................................... Hrásalat með salatsósu................................... í kaffinu um miðjan dag: Eitt vínarbrauð ........................................ Ein jólakökusneið........................................ Kvöldmatur: Þrjár lambakótilettur steiktar í matarolíu eða jurtasmjörlíki ...................................... Hrátt grænmeti........................................... Eitt franskt smábrauð.................................... Um kvöldið fyrir framan sjónvarpið: 75 gr kartöfluflögur, steiktar úr jurtaolíu.............. ídýfa úr majonesblöndu................................... Samtals fituneysla: Fita í grömmum: mettuð ómettuð 5,75 5,75 15,00 8,00 9,00 16,00 5,00 5,00 5,00 4,00 4,00 25,00 15,00 1,20 0,75 0,75 22,00 15,00 64,50 97,70 Dýrafita er jafnan í föstu formi við stofuhita, ca 20 gráður á Celsius, en fjölómettaðar fitur, eins og jurtaolíur og fiskiolíur geymast fljótandi við lágt hita- stig, jafhvel við frostmark. Því fer fjarri, að fjölómcttaðar fitur úr jurtaríkinu, séu alfarið af hinu illa, þar sem líkaminn þarfnast þeirra í fæðunni til við- halds og uppbyggingu frum- anna. Pað er hins vegar hin gegndarlausa ofneysla á jurtafit- unum, sem gerir gæfúmunin, samkvæmt niðurstöðum vís- indarannsóknanna. Dýrafita og afurðir úr henni, eins og mjóik og smjör, hafa lengi þótt varasamar heilsu manna, en nú eru margir vís- indamenn þeirrar skoðunnar, að dýrafitan sé hlutlaus í sambandi við þá neikvæðu hormóna- myndun, sem orsakar hjarta- og æðasjúkdóma Þörf meiri rannsókna Ólafur Sigurðsson matvæla- fræðingur, fyrrverandi starfs- maður hjá Raunvísindastofnun Háskóla íslands, segir erfitt að meta það á þessu stigi málsins, hversu hættuleg ofneysla á fjöl- ómettuðum jurtaolíum sé hverj- um einstakiingi, þar sem siíkt sé í eðii sínu einstakiingsbundið. „Ofheysla á hvers konar fæðu- efnum er þó aiskaplega varhuga- verð,“ segir hann. „Það er sérstaklega erfitt að forðast ofneysiu fituefna, þar ,sem fitan er svo víða dulin í samsettum matvælum, en álíka ofheysla á t.d. sykri og á sér stað á fjölómettuðum fituefnum, væri fáranleg, þar sem sykurof- neyslan myndi vera hverjum manni augljós," segir Ólafur. Ólafur bætir við: „Að sumu leyti getum við borið vandamál- ið saman við tóbaksreykingar. Það er vitað að reykingafólk tek- ur þá áhættu að deyja úr krabba- meini eða öðrum sjúkdómum sem geta verið fyfgikvilfar reyk- inga, en hins vegar vitum við að það er minnihluti reykingafófks sem fær þessa sjúkdóma. Það er því tvímælalaust þörf mjög víð- tækra rannsókna á þessu sviði,“ segir hann. Krabbamein og plöntufita Við 24 daga fóðurtilraunir á rottum fyrir nokkru í Bandaríkj- unum, kom í Ijós, að ígrædd krabbameinsæxli í dýrunum stækkuðu verulega og drógu dýrin að lokum til dauða, þegar rotturnar voru aldar á fóðri sem innihéit 20% meira magn af fitusýrum úr plöntuolíum, en dýrunum var nauðsynfegt tif lífsviðurværis. ígrædd krabba- meinsæxli í rottum sem fengu aðeins lágmarksmagn lífsnauð- synlegra fitusýra í fóðrinu, stækkuðu varla svo nokkru næmi á tilraunatímabilinu. Rann- sóknaraðilar telja, að aukið magn Omega 6 línolíusýru í fóðrinu hjá fýrrnefndu tilrauna- dýrum hafið valdið þessum mun. Vísindamenn telja að niður- stöður tilraunanna á rottunum geti verið vísbending um áhrif fjölómettaðrar plöntufitu á krabbameinsvöxt í mönnum, en þess ber þó að gæta, að rottur eru ekki menn, þótt líkamsstarf- semi þeirra sé á margan hátt svipuð. Lýsi getur dregið úr hættunni! Fiskolíur eins og lýsi inni- halda mikið magn mjög-fjöló- mettaðra fitusýra, en virkastar þeirra eru svokallaðar Omega 3 fitusýrur. Rannsóknir hafa leitt í ljós, að Omega 3 dregur veru- lega úr skaðlegum áhrifum plöntufitunnar Omega 6. Þessar tvær fitusýrutegundir keppa innbyrðis í líkamanum um geymslustað í frumum lík- amans. Lýsisfitan Omega 3 hefur þó betur, sé þeirra beggja neytt samtímis, en plöntufitan getur þó dregið verufega úr virkni lýs- isfitunnar. Sérstaklega ef plöntu- fitan er í formi samþjappaðs þykknis, eins og er í vinsælum vörum eins og kvöldvorrósarol- íu, sem er mikið auglýst sem hollustuvara. Kvöldvorrósarolían getur því samkvæmt þessum niðurstöð- um, dregið verulega úr gagn- semi lýsis og verið skaðleg við- bót við plöntuolíuofheysluna. Nýjar og mun sterkari teg- undir en áður af kvöldvorrósar- olíu eru nú seldar í hollustu- verslunum. Þessar nýju gerðir eru framleiddar með líftækni, með það fyrir augum að þær gangi sem greiðast í samband við frumur líkamans. Ólafur Sigurðsson matvæla- fræðingur, segir neyslu þessara pföntuolíuþykkna hina mestu fásinnu, nema fófk sé haldið sjaldgæfum sjúkdómi sem geri því ókleift að vinna nauðsynleg- ar plöntuolíufitusýrur úr fieð- unni. „Það er nær ómögulegt að komast hjá því að fá nægjanlegt magn lífsnauðsynlegra ómett- aðra fitusýra úr plönturíkinu í daglegu fæði. Eðlileg neysla á grænmeti og kornmeti, sér fólki fyrir öllum þeim plöntufitusýrum sem það þarfhast. Meira að segja eru slík- ar fitursýrur í kjöti grasæta, eins og kinda og er því hægt að fá nauðsynfegan dagskammt Omega 6 með sunnudagssteik- inni,“ segir Ólafur Sigurðsson matvælafræðingur. ■ Ólafur Sigurðsson mat vælafræðingur: „Það er ákveðin kaldhæðni í því, að kenningarn- ar um hollustu fjölómettaðra fitusýra, virðast hafa viflst á fitu- sýrum. Þær fjölómettuðu fitu- sýrur sem geta ótvírætt dregið úr hættu á hjartasjúkdómum, koma úr fiskmeti, eins og lýsi. Plöntuolíur geta hins vegar auk- ið hættuna á þessum sjúkdóm- um.“ ■ Sigríður Haraldsdóttir Neytendamáladeild Verðlags- • stofnunnar: „Við höfum gert at- hugasemdir við auglýsingu á Sólblóma jurtasmjörlíki, þar sem fullyrt var að Sólblóma með fjölómettuðum fitusýrum væri hollara en smjör. Við teljum að auglýsingin hafi brotið í bága við 27. gr. Iaga um verðlag, samkeppnishömlur og ólögmæta viðskiptahætti. Þar segir að ekki megi nota rangar og villandi upplýsingar í auglýs- ingum til að efla sölu. Við höfum einnig gert athuga- semd við ritstjóra vegna blaða- greinar um kvöldvorrósarolíu, þar sem gefið var í skyn, að kvöldvorrósarolía gæti jafnvel læknað krabbamein." VIKAN 9

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.