Vikan - 22.10.1987, Blaðsíða 11
Guðmundur
Einarsson
UTLOND
Brúðu-
líkhúsið
Hvað tengir saman fallist-
ana Joe Biden og Gary Hart?
Þeir léku báðir 1 brúðuleik-
húsi forkosninga demo-
krata, leikritið hét KYN-
SLÓÐAPÓLITÍK og í spottana
hélt Patrick Caddell.
Caddell þessi hefur lengi ver-
ið einn af hugmyndasmiðum
demokrata. Upp úr 1980 lagði
hann til þá hernaðaráætlun að
flokkurinn ætti að bjóða ífam til
forseta ungan, fallegan, hvítan
karlmann, sem boðaði nýfár
hugmyndir.
Þessi nýja stefna skyldi vera
sem lengst ífá kreppuhugmynd-
um og kreddum gamlingjanna í
flokknum. Hún átti að vera snið-
in fyrir unga fólkið ffá tvítugu til
fertugs.
Caddell samdi handritið og
bjó til búning, en vantaði ein-
hvern til að klæðast honum.
Gary Hart tók hlutverkið að sér
og tók það alvarlega. í öðru
hverju orði talaði hann um “nýj-
ar hugmyndir" og “nýjar Ieiðir"
en útlistaði ekki mikið nánar.
Hann sló í gegn og keppinautur
hans um ffambjóðandatitilinn,
Walter Mondale, hugleiddi að
gefast upp.
En áður en til þess kæmi fóru
þeir Hart og Mondale í beina
sjónvarpsútsendingu. Hart tal-
aði um nýjar hugmyndir og
Mondale spurði: “Gott og vel,
en HVAR ER KJÖTIÐ?“ Mondale
notaði þarna ffæga setningu úr
sjónvarpsauglýsingu þar sem
borið var saman kjötinnihald
ólíkra hamborgara. Gary Hart
átti ekkert svar. Frægðarsól hans
lækkaði á himni og Mondale fór
í ffamboð.
Gary Hart reyndi enn á ný í
byrjun þessa árs að klæðast
brúðufatnaði Caddells. Þá var
spurt í beinni útsendingu: “Hef-
ur þú haldið ffamhjá konunni
þinni?“ Aftur átti hann ekkert
svar og ffægðarsól hans settist.
í millitíðinni hafði Caddell
fengið aðra brúðu upp á sviðið,
því Joe Biden öldungardeildar-
þingmaður ákvað að slást í leik-
inn. Báðir virtust una hag sínum
vel því þingmaðurinn sagði eitt
sinn: “Stundum veit ég ekki
sjálfur hvar Caddell endar og ég
byrja.“
Það varð honum líka að falli
því upp komst að Caddell gerði
meir en að halda í spottana.
Hann talaði líka fyrir þingmann-
inn eins og góðir brúðuleik-
hússtjórar gera. Ræðurnar voru
stolnar orðrétt frá Neil Kinnock
og Kennedy bræðrunum, John
F. og Robert. Þetta kunnu íjöl-
miðlar og fólk ekki að meta og
enn einu sinni féll sýning í
brúðuleikhúsi Caddells.
Bandaríkjamenn eru ekki
óvanir því að stjórnmálamönn-
um þeirra sé stýrt af kunnáttu-
mönnum í pólitísku leikhúsi. En
þeir gera einnig þær kröfur að
pólitíkusarnir hafi sjálfir eitt-
hvað ffam að færa.
Hart og Biden höfðu hvorug-
ur búið sér til sterka eigin
ímynd. Það hafa hins vegar aðrir
ffambjóðendur gert, s.s. Jessie
Jackson. Hann hefúr með
„Gott og vel, en HVAR ER KJÖTIÐ?" spurði Mondale. Hart átti
ekkert svar.
Joe Biden og frú hans afar sorgbitin. Upp komst, að Cadell gerði
meira en halda í spotrtana. Hann talaði líka fyrir þingmanninn.
margra ára baráttu lært að vefja
saman þá ólíku þræði, sem for-
setaffambjóðendur í Bandaríkj-
unum þurfa. Hann verður ekki
sprengdur með einni spurn-
ingu. Sama máli gegnir um Mar-
io Cuomo, ríkisstjóra í New
York. Hann hefúr ekki gefið kost
á sér. Hann er maður sem virð-
ist geta skrifað hlutverkið sitt
sjálfur.
Æ fleiri úr röðum demókrata
krefjast þess nú að inn á sviðið
gangi einhver sem ekki hengir
sig strax í böndunum. Þeir telja
að flokkurinn þoli ekki að fleiri
brúður séu drepnar í 1. þætti.
Brúðuleikhús forkosninganna
má ekki verða líkhús ffambjóð-
endanna.
Æ fleiri úr röðum
demókrata kreQ-
ast þess nú að
inn á sviðið gangi
einhver sem
hengir sig ekki
strax í böndun-
um.
VIKAN 11