Vikan - 22.10.1987, Qupperneq 16
863
Hjalti Úrsus með
verðlaunabikarinn.
LYFTI
Enn höfum við fslending-
ar eignast heimsmeistara og
í þetta sinn er það sá kunni
kraftakarl Hjalti „Úrsus“
Árnason. Hann lyfti hvorki
meira né minna en 863
kílóum í einni lyftu í keppn-
inni um titilinn sterkasti
maður heims sem fram fór í
Kanada um helgina. Keppt
var í fjórum greinum og í
keppninni í heild sigruðu
Kanadamenn með 90 stigum
en íslendingar komu næstir
með 89.5 stig.
„Pað hefur engum tekist til
þessa, að lyfta þessari þyngd í 5
cm hnébeygjulyftu. Eg reyndi
við enn meiri þyngd en vantaði
einn cm. upp á að það tækist,"
sagði Úrsus í spjalli við Vikuna.
Jón Páll Sigmarsson keppti
ásamt Úrsus á þessu móti en var
meiddur og náði ekki að sýna
sína langsterkustu hlið. En
hvernig fara menn að því að
verða svona sterkir, Hjalti
Úrsus?
„pað er viljinn sem ræður úr-
slitum. Svo að stunda reglu-
bundnar æfíngar og borða mikið
af undirstöðumat."
— Er hægt að hafa lifibrauð af
kröftunum?
„Þegar maður er kominn í
hóp þeirra bestu er það hægt.
En við vonumst til að næsta
keppni af þessu tagi verði haldin
á Islandi og þá fá menn að sjá
með eigin augum hvað við tök-
um á. Það voru um X1 þúsund
manns sem fylgdust með þessu í
íþróttahöllinni í Mont Red auk
þess sem sjónvarpið auglýsti
hana vel. Það vilja allir sjá okkur
reyna kraftana," sagði Hjalti Úrs-
us um leið og hann kvaddi
blaðamann með handabandi
með þeim afleiðingum að erfítt
reyndist að beita puttum á ritvél
næstu klukkustundirnar — SG
Kapp er best
með forsjá
íslenskir aflraunajötnar hafa
fyrir löngu gert sér grein fyrir
þeim gamla sannleika, að kapp
Úrsus, setti glæsi-
legt heimsmet á al-
þjóðlegu móti
jötna í Kanada um
helgina. Hjalti lyfti
1900 lbs, eða 863
kílóum í einni
einstakri lyftu,
sem er hreint
ótrúlegur árangur.
Jón Páll varð í
fimmta sæti 1 ein-
menningskeppn-
inni, en Hjalti 1 því
fjórða. í lands-
keppninni urðu ís-
lendingarnir 1
Qórða sæti. Kan-
adamenn fóru með
sigur af hólmi
munaði aðeins
hálfu stigi á þeim
og íslensku kepp-
endunum.
Úrsus við komuna til
landsins á mánudags-
morguninn. Þrátt fyrir
lýjandi keppni og flug-
þreytu, lét hann sér ekki
muna um að jafnhenda
blaðamann Vikunnar,
Adolf Erlingsson.
Ljósm.: Páll Kjartansson.
16 VIKAN