Vikan - 22.10.1987, Page 24
Sumir segja að Hljómsveit
Ingimars Eydal sé orðið
þekktara vörumerki fyrir
Akureyri en sjálft KEA og er
þá langt til jaftiað. En hvað
sem því líður þá er hvoru
tveggja jafii nauðsynlegt fyr-
ir bæjarbúa og gesti.
KEA getur séð um að uppfylla
allar líkamlegar þarfir fólks en
Ingimar sér svo um að viðhalda
lífsgleðinni. „Gömlum" Akur-
eyringum og fleirum vöknar
nánast um augu þegar rifjaðar
eru upp gamlar sælustundir í
Sjálfstæðishúsinu þar sem
Hljómsveit Ingimars Eydal stóð
á palli og lék við hvern sinn
fingur með söngvarana Hefenu
Eyjólfsdóttur, Vilhjálm Vil-
hjálmsson og Þorvald Halldórs-
son í broddi fylkingar að Ingi-
mar sjálfum ógleymdum sem
spilaði á alla hljómsveitina.
Hljómsveit Ingimars hefur nú
starfað í 25 ár og af því tilefhi er
nú efht til skemmtidagskrár í
Sjallanum undir heitinu „Stjörn-
ur Ingimars Eydal í 25 ár“. Þar
fer kóngurinn sjálfur á kostum
með mörgurn af sínum bestu
samstarfsmönnum á 25 ára
tímabili. Er það mál rnanna að
Sjallastemmningin hafi sjaldan
eða aldrei verið betri en einmitt
á þessum Stjörnukvöldum og
ekki vafi á að gestir flykkjast að,
hvaðan sem er af landinu, til að
njóta kvöldstundar í Sjallanum
með Ingimar og félögum. Ekki
spillir það ánægjunni, að meist-
arakokkurinn Ari Garðars sér
um að töffa fram gómsæta rétti
áður en stjörnurnar láta ljós sitt
skína.
Saga Jónsdóttir samdi stjörnu-
dagskrána og dansar eru eftir
Helgu Alice Jónsdóttir er kynnir
er Gestur Einar Jónasson. Vikan
sendir Ingimar og félögum
bestu kveðjur í Sjallan.
Ingimar ásamt hluta af
stjörnuliðinu. Talið frá
vinstri: Árni Ketill
Friðriksson, Þorleifur
Jóhannsson, Þorvaldur
Halldórsson, Grímur
Sigurðsson, Grétar
Ingvarsson, Ingimar Eydal,
Bjarki Tryggvason,
Þorsteinn Kjartansson,
Helena Eyjólfsdóttir, Finnur
Eydal, Friðrik Bjarnason,
Snorri Guðvarðarson og
Inga Dagný Eydal. (Ljósm.
Breytingar á Skálafelli
Árni Eyjólfsson veitinga-
maður, tók við rekstri veit-
ingastaðarins Skálafells
>ann 1. september síðastlið-
Píanóleikarinn John Wilson
hefur verið ráðinn til að
skemmta gestum Skálafells
í nokkurn tíma.
inn. Skálafell hefur frá upp-
hafi verið undir yflrstjóm
Hótel Esju og er þetta því í
fyrsta sihn sem einstakling-
ur gefst kostur á að reka
staðinn upp á eigin spýtur
samkvæmt ákveðnum samn-
ingi við flugleiðir, sem verða
áfram eigendur staðarins.
Esjuberg, veitingastaðurinn á
neðstu hæð hótelsins, hefúr ver-
ið rekinn með þessu sniði í
nokkurn tíma, og þykir fyrir-
komulagið gefast vel, að sögn
Flugleiðamanna.
Árni hefur þegar gert ýmsar
breytingar og endurbætur á inn-
réttingum og þjónustu, sem
miða að því að auka vinsældir
Skálafells.
Meðal breytinga, er lengdur
opnunartími og fjölbreyttari
veitingaþjónusta. Framvegis
Meat Loaf hinn ýturvaxni rokkari, var meðal gesta Árna
Eyjólfssonar veitingamanns á Skálafelli, þegar hann
kynnti blaðamönnum breytingarnar á rekstri staðarins.
verður Skálafell opið frá kl.
19.00 til 01.00 alla daga vikunn-
ar.
Árni má teljast á heimavelli
sem rekstraraðili Skálafells, þar
sem hann hóf veitinganám sitt
einmitt á þeim stað fyrir 12
árum. Að því loknu starfaði
hann á Hótel Sögu í fimm ár, en
réði sig síðan aftur að Skálafelli
þar sem hann hefur starfað
síðan.
24 VIKAN
(Ljósm. Gunnlaugur Rögnvaldsson)