Vikan - 22.10.1987, Side 34
Margrét
Þorvarðardóttir
“Auðvitaö viljum viö allar geta unniö viö þaö sem viö
höfun lært“.
Litaglaöir, handmálaöir jakkar og kjólar úr silki
voru framlag Margrétar á sýningunni. Margrét
stundaöi nám viö textíldeild Myndlista- og handíöa-
skóla islands og hefur unnið við aö gera föt undan-
farin þrjú ár. Fötunum er ekki ætlaö aö höfða til
einhvers sérstaks hóps en hver flík er unnin sér;
teiknuö fyrst og máluð, síöan sniöin og þá jafnvel út
frá munstrinu. Til aö mála á efnið notar Margrét
sérstaka tauliti fyrir silki og bómull, en notar aldrei
staðlaöa liti og því er engin flík eins. Margrét sagöi
að því miður gæti hún ekki lifað af fataframleiöslunni
einni saman, en tilgangurinn meö því aö halda
sýningu sem þessa væri til aö kynna sig því auðvit-
að vildu þær allar geta unnið viö þaö sem þær heföu
lært.
Margrét Þorvarðardóttir Asbraut 2 a, Kópavogi, sími 43158
Margrét notar aldrei staðlaða liti þegar hún málar á silkið og
því fær hún aldrei sama litinn nema einu sinni.
Þessa búninga hannaöi Hulda Kristín fyrir kórinn í Aidu hjá
íslensku óperunni.
vera í góðu skapi.“
Hulda Kristín er fastráðinn fatahönnuður hjá Sam-
bandinu frá því í haust og sýndi fatnað hannaöan fyrir
þá og auk þess búninga sem hún gerði fyrir íslensku
óperuna. Hulda tók búningahönnun sem aukafag viö
nám sitt í fatahönnun viö Deutsche Meisterschule fur
Mode þar sem hún stundaði nám á árunum 1979-83.
Áöur en hún fastréði sig til Sambandsins haföi hún
starfað fyrir þá í lausamennsku og hjá fleiri aöilum,
þ.á m. Árbliki, gert búninga fyrir sjónvarpsupptökuna
á Gullna hliöinu, fyrir kvikmyndina Skepnan deyr,
einnig fyrir myndband meö Stuðmönnum auk búninga
fyrir íslensku óperuna. Fötin frá Sambandinu sem hún
sýndi sagöi hún að væru aðallega dæmigerð íslensk
ullarlína, en auk þess sýndi hún peysur í “fantasíul-
ínu“ sem hún sagöi aö íslendingar heföu tekiö mjög
vel og væri þaö sérstaklega gaman.
Hulda Kristín Magnúsdóttir: Furulundi 10a, Akureyri, sími: 96-21900
34 VIKAN