Vikan - 22.10.1987, Side 43
velkomna
Enginn af fyrra starfsliði Vik-
unnar starfar lengur við blaðið.
Um leið og þeim eru þökkuð
þeirra störf í þágu blaðsins þykir
tilhlýðilegt að kynna þá sem
nú vinna við Vikuna.
SAM-útgáfan býður Vikuna
velkomna og vonar að hún megi
áffam verða mönnum til bæði
gagns og ganians.
Hann er kallaður Páfi og er af
ættbálki gauka, sem enginn
vill kannast við, en Páfi segir
vera hinn göfugasta. Þessi litli
fugl hefur sest upp á ritstjórn
Vikunnar og krafist þess að fá
að aðstoða við fréttaöflun og
fréttaskýringar. Það verður víst
svo að vera.
Hrafnkell Sigtryggsson er auglýsingastjóri Vikunnar. Hér sést
hann ásamt auglýsingastjóra Húsa & híbýla, Helgu Möller.
Gunnlaugur Rögnvaldsson,
rallkappi og ævintýramaður, er
jafn vígur á ritvél og myndavél.
Samúel hefur birt mikið af efni
hans, en nú verður hann Vik-
unni einnig innanhandar.
Magnús Hjörleifsson hefur
verið ljósmyndari SAM-útgáf-
unnar um árabil. Hann hefur
meðal annars getið sér góðs orðs
sem ljósmyndari Húsa & hí-
býla. Magnús hefur starfað við
alhliða ljósmyndun í 12 ár.
Adolf Erlingsson kemur beint
úr námi í Háskóla íslands til að
hefja störf í blaðamennsku á
Vikunni. Adolf hefur þegar sýnt
á stuttum blaðamannsferli, að
mikils er að vænta af honum í
framtíðinni. Hann ritstýrir dag-
skrárkynningu
Árni Pétursson er umbrots-
maður SAM-setningar og límir
upp af vandvirkni síður Vikunn-
ar ásamt annarra blaða SAM-
útgáfunnar.
Sigríður Friðjónsdóttir vinnur
að tölvusetningu fyrir SAM-út-
gáfuna og aðra viðskiptavini
SAM-setningar, en meðal
þeirra eru helstu auglýsinga-
stofur borgarinnar.
Kristín Kristjánsdóttir er sú
sem svarar þegar hringt er í
síma SAM-útgáfunnar: 83122.
Hún er meira en tilbúin að taka
við áskriftarbeiðni þinni að Vik-
unni. Sláðu því á þráðinn þegar
í stað.
Lárus Karl Ingason kemur til
með að ljósmynda talsvert fyrir
Vikuna. Hann nam ljósmyndun
í Gautaborg við einn þekktasta
ljósmyndaskóla Evrópu. Lárus
Karl er nú að opna ljósmynda-
stofu í Reykjavík.
Páll Kjartansson verður aðal
ljósmyndari Vikunnar, en hann
á að baki ljósmyndastörf fyrir
Dagblaðið Vísi og ýmis vel-
þekkt tímarit.
Pála Klein var ráðin til SAM-
setningar þegar Vikan hafði
bæst þar inn í setningu, Pála
vann áður við setningu Tímans.
VIKAN 43