Vikan - 22.10.1987, Page 66
John og Jaqueline Kennedy á
meðan allt lék í lyndi.
Þúsund
dagarí
Hvíta
húsinu
Nýr
framhaldsflokkur
á Stöð 2.
Þrjú næstu laugardagskvöld
kl. 22:00 verða sýndir mjög
vandaðir breskir þættir um
John F. Kennedy og 1000 daga
veru hans í Hvíta Húsinu.
Kennedy braut að mörgu leyti
blað í bæði veraldarsögunni
og bandarískri sögu. Hann var
yngsti maðurinn til að vera
kjörinn forseti Bandaríkjanna,
og jafnframt fyrsti kaþólikkinn
til að gegna því embætti. Hann
lifði mjög stormasömu lífi
bæði sem forseti og ekki síður
í einkalífinu, og segja má að
hann sé nánast goðsögn í dag,
dður af meginþorra Bandaríkj-
anna.
Þó að honum hafi ekki auðnast
að sitja á forsetastól nema 1000
daga, var hann viðriðinn marga
helstu atburði sögunnar eftir
seinna stríð. Kennedy var mikill
jafnréttissinni og studdi
blökkumenn í Bandaríkjunum
heilshugar á þeim miklu
umbrotatímum sem voru í
upphafi sjöunda áratugarins, þar
sem blökkumenn leiddir af Martin
Luther King leituðu réttar síns í
þjóðfélaginu.
Á erlendum vettvangi lét hann
ekki síður til sín taka, og háði
hann marga rimmuna við Nikita
Krutschov, sem var aðalritari
sovéska kommúnistaflokksins á
þeim tíma. Má þar nefna
Kúbudeiluna þegar gjörvöll
heimsbyggðin stóð á öndinni út
af yfirvofandi heimstyrjöld og
endaði í klúðurslegri Svínaflóa-
innrásinni. Einnig kom hann
mjög við sögu í deilunni um
Berlín og fræg er ræðan hans,
„lch bin ein Berliner'1 sem hann
flutti við Berlínarmúrinn
illræmda. Síðast, en ekki síst, jók
hann umsvif Bandaríkjamanna í
suð-austur Asíu, en þegar fram
liöu stundir leiddu þau afskipti til
Víetnamstríðsins og afhroða
Bandaríkjamanna þar.
í þessum þáttum er hvorki
reynt að fegra ímynd forsetans
né að leggja áherslu á
breyskleika hans. Til dæmis
þykir framleiðendunum hafa
tekist mjög vel að afgreiða
kvennamál Kennedys, en hann
þótti all kræfur á því sviði. í
staðinn fyrir að velta sér upp úr
þessum atriðum eru þau sýnd í
gegnum áhuga J. Edgars
Hoover, forstjóra F.B.I. á því að
safna gögnum um kvennafar
forsetans.
Allir staðhættir eru gerðir eins
líkir raunveruleikanum og hægt
er að fara fram á, og fólk sem
þekkti til Kennedy hjónanna
segja að þættirnir séu mjög nærri
sanni.
Fjölmargir þekktir leikarar sjást
í þáttunum, en þeir helstu eru
Martin Sheen sem Kennedy
sjálfur;John Shea sem Robert
Kennedy, E. G. Marshall sem
Joseph P. Kennedy, Blair Brown
(íslenskir sjónvarpsáhorfendur
kannast við hana sem Molly
Dodd) sem Jaqueline Bouvier
Kennedy; og loks Vincent
Gardenia sem er alveg
óborganlegur í hlutverki J. Edgar
Hoover.
66 VIKAN