Vikan


Vikan - 21.01.1988, Page 5

Vikan - 21.01.1988, Page 5
Þeir geta bara flutt! Eins og kunnugt er af frétt- um senda Grænlendingar áheymarfulltrúa til hval- veiðiráðstefnunnar, sem haldin er hér á landi um helgina. Grænlendingar hafa átt mjög um sárt að binda vegna aðgerða umhverfis- samtaka, eins og Greenpeace gegn selveiðum, en fjöldi smáþorpa á Graenlandi hefur nánast lagst í eyði, þar sem veiðimennimir geta ekki lengur selt selskinn til út- landa, eins og þeir hafa gert í mannsaldra. Sala á selskinnum hefur oft verið eina tekjulind afskekktari byggðarlaga á Grænlandi, þar sem algengt er að árstekjur fjöl- skyldu nemi ekki nema um 100.000 íslenskra króna. Fólkið lifir nær eingöngu á veiðum, en peningar eru samt nauðsynlegir til kaupa á ýmsum nauðsynjum eins og skotfærum og kornmeti. Áróður Greenpeacemanna gegn selveiðum hefur gert líf þessa fólks afar erfitt þar sem hann varð þess valdandi að hefðbundnir markaðir Græn- lendinga fyrir selskinn lokuðust. Núverandi fréttamaður Rit- zau fréttastofunnar dönsku á ís- landi, Lars Toft Rasmussen, starfaði um skeið sem blaða- maður á Grænlandi. Hann gerði sér þá erindi til Bandaríkjanna, til að ræða við talsmenn um- hverfisverndunarsamtaka þar, svo Grænlendingar gætu Iesið í eigin blaði hvað þessir náttúru- verndunarmenn hefðu að segja um selveiðár Grænlendinga. Skilningur Grænlendinga á dýravinunum varð samt nokkuð takmarkaður þegar greinar blaðamannsins birtust loks í Grönlandsposten. Svör náttúru- verndarfólksins báru ekki vott um mikla þekkingu á þjóð- eða landháttum hjá þeirri þjóð, sem það taldi sig vera að hafa vit fyrir. Meðal annars héldu talsmenn náttúruverndarsamtakanna því fram að Grænlendingar gætu bara hætt að veiða dýr sér til matar og byrjað að yrkja jörðina í staðinn. Þegar blaðamaðurinn tjáði þeim að landkostir væru ekki miklir á Grænlandi til akuryrkju, þar sem undirlendi væri víðast hvar jökulsorfnar klappir, taldi umhverfisverndunarfólkið slíkt ekki koma að sök, því aðrir hefðu unnið stórvirki í að rækta upp eyðimerkur og voru ísraels- menn teknir sem dæmi um slík- an dugnað. Aðrir umhverfis- verndunarmenn sögðust að vísu hafa nokkra samúð með eskimó- unum, en hins vegar taldi sumt náttúruverndarfólkið það vera andstætt öllum náttúrulögmál- um að nokkur maður væri að bardúsa við það að búa á Græn- landi. Grænlendingar ættu ekkert með það að búa þarna, þar sem þetta væru fýrst og fremst nátt- úruleg heimkynni sela og ís- bjarna og mannfólkið ætti ekk- ert erindi með að trufla lífsháttu þessara dýra. Hugmyndir nátt- úruverndarfólksins voru þær, að á næstunni munu nokkrir á markað í lok febrúar eða byrj- meðlimir Sykurmolanna halda un mars. í millitíðinni kemur lít- utan til Bretlands að ganga frá il plata út með laginu Cold nýrri LP plötu sem væntanleg er Sweat. Grænlendingar yrðu fluttir til að freista þeirra og þeir gætu þjóðflutningum til suðlægari hafið akuryrkju, sáttir við guð landa, þar sem engir selir væru og menn! NÝJAR REGLUR UM APEX IINNANLANDSFLUGI Apex er ódýr og þægilegur feróamáti fyrir þá sem hala fastráðið hvað þeir verða lengi i lerðinni. Til og Irá Reykjavik: Akureyri Egilsstaðir Homafjörður Húsavlk Isafjörður kr. 3981,- kr. 5316,- kr. 4686,- kr. 4510,- kr. 3717,- Norðfjörður kr. 5486,- Patreksfjörður kr. 3598,- Sauðárkrókur kr. 3577,- Þingeyri kr. 3558,- Vestmannaeyjar kr. 2585,- Apex fargjöldin gilda einnig i framhaldsllugi með sam- starfsflugfélögum til og Irá stöðum fyrir vestan, norðan og austan. Þú færð upplýsingar um þetta hagkvæma ferðafyrirkomulag h/á Fiugieiðum, umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. FLUGLEIDIR VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.