Vikan


Vikan - 21.01.1988, Qupperneq 7

Vikan - 21.01.1988, Qupperneq 7
SJALFSTÆÐARI GAGNVART FORYSTUMÖNNUM LAUNAFÓLKS Ólafur Ragnar Grímsson ræðir um utanríkismál, kjara- baráttuna, samskiptin við Indland og nýjar öryggisstofnanir Átakamikið formannskjör í kjölfar mikils fylgishruns, ingu, þar sem stór hluti flokksmanna var honum and- hefur sett Alþýðubandalagið í sviðsljósið undanfarin snúinn og var heiftin slík, að sögn kunnugra, að margir misseri. Því fór fjarri að hinn nýi formaður flokksins, töldu að flokkurinn myndi klofna í kjölfarið. Ólafur Ragnar Grímsson, hafi hlotið rússneska kosn- Texti: Friðrik Indriðason Eftir formannskjörið hefur þó lítið borið opinberlega á fjand- skap á milli flokksfélaga sem bendir til að nýja formanninum hafi tekist að lægja öldurnar. Alþýðubandalagið hefur að mörgu leyti verið einangrað á vettvangi íslenskra stjómmála, sérstaklega vegna stefiiu banda- lagsins í utanríkis- og öryggis- málum, en homsteinn þeirrar stefnu hefur legið í slagorðun- um „ísland úr NATO og herinn burt.“ Undanfarið hafa átt sér stað nokkuð skörp skoðanaskipti á milli flokksfélaga í Alþýðu- bandalaginu, meðal annars á síð- um Þjóðviljans, þar sem flokks- menn virðast ekki á eitt sáttir með þær stefhubreytingar í ör- yggismálum sem augljóslega em að eiga sér stað innan bandalagsins. Menn em ekki á eitt sáttir, hvort gömlu slagorð- in eigi að vera í fúllu gildi áffam, eða hvort þau em úrelt. Vikan leitaði eftir því við formann Alþýðubandalagsins að hann skæri úr um það hvort stefriubreyting flokksins sé raunvemleg eða ekki. Hjá for- manni Alþýðubandalagsins kemur m.a. ffam að nú sé í reynd skilið á milli aðildarinnar að NATO og vem hersins og hann vill ekki að umræðan sé frosin í allt eða ekkert. í máli Ólafs Ragnar Grímsson- ar kemur ffam að gömlu slag- orðin, „ísland úr NATO og her- inn burt“ em nokkuð úr sér gengin og að Alþýðubandalagið undir hans stjórn er nú reiðu- búið til að þiggja kynnisferðir NATO til útlanda til viðræðna við bandalagið, eins og aðrir stjórnmálaflokkar landsins hafa gert í áratugi. Vikan ræddi einnig við Ólaf Ragnar Grímsson um stöðu Al- þýðubandalagsins almennt, verkalýðsmál, hugsanlegt sam- starf Islendinga við Indverja í ýmsum málum sem Ólafur hef- ur verið hvatamaður að og hvað framundan er hjá alþjóðlegu þingmannasamtökunum Parli- amentarians for Global Action en Ólafúr er einn af forystu- mönnum þeirra samtaka. Við spurðum Ólaf fyrst um hin breyttu viðhorf innan flokksins til utanríkismála. „Það er ljóst að við emm mjög opnir fýrir viðræðum við fúlltrúa annarra ríkja og er- lendra samtaka og þjóðþinga um þróun í alþjóðamálum Við höfum talið að gætt hafi of mikillar einangmnar al- mennt á íslandi í umræðum um utanríkismál. Það er hættulegt fyrir smáríki á borð við okkur sem á svo mikið undir utanrík- isviðskiptum að fylgjast ekki vel með því sem er að gerast á alþj óðavettvangi og bregðast rétt við breytingum sem þar eiga sér stað,“ segir Ólafúr. VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.