Vikan - 21.01.1988, Page 16
Sigmundur Dýrfjörð, eigandi Te- og kaffibúðarinnar, segir að ís-
lendingar geri mun meiri kröfúr til gæða og úrvals í kaffimálum.
anda staðarins, Sigmund
Dýrfjörð, hvort íslendingar séu
nýjungagjarnir í kaffimálum.
„Það er kannski ekki beint
hægt að segja það. Þeir eru hins
vegar farnir að gera meiri gæða-
kröfúr hvort heldur er um kaffi
eða te að ræða enda er hér nú
að finna meira og betra úrval
tegunda," segir hann.
Á fastaseðli Te og kaffi búðar-
innar er að finna 12 tegundir af
kaffi sem menn geta drukkið á
staðnum en auk þess er hægt að
panta allar hugsanlegar blöndur
af kaffi, allt nýmalað á staðnum.
„Hér eru margir fastagestir
sem kaupa ekki kaffi annars
staðar og koma þá jafhvel ofan
úr Breiðholti eða ffá Hafnarfirði
til þess. Við njótum einnig góðs
af umferðinni um Laugaveginn
og töluvert er um að erlent fólk
sem býr í borginni komi hingað
að versla."
Á Mokka
Ekki er hægt annað en að líta
við inn á Mokka á þessu rölti
okkar, en þar hittum við Þor-
stein frá Hamri.
„Ég kem hér alltaf, en það er
misjafht hve oft það er á viku.
Hingað kem ég því hér er hlý-
legt og viðkunnanlegt viðmót,
staðurinn er rólegur og ég hef
alltaf virt hann Guðmund lyrir
það að vera aldrei með nein
uppátæki eða breytingar á
staðnum," segir Þorsteinn.
„Þar að auki má nefha að hér
hittir maður oft kunningja sína
og ræðir við þá um málefni
dagsins í góðu tómi en einnig
getur verið gott að hafa frið,
engin ágengni eða órói er til
staðar og kaffið er gott.“
í máli Þorsteins kemur einnig
firam að er hann kom til borgar-
Erla Sigurgeirsdóttir í
Skeifúnni segir að þang-
að komi nær eingöngu
fastagestir af hafinar-
svæðinu.
innar fyrir 1960 hafi verið nokk-
ur kafifimenning til staðar en síð-
an finnst honum að hún hafi
orðið dauflegri með árunum ...
„en kannski er ég ekki dómbær
um það...“
Annar fastagestanna á Mokka
sem við ræðum við, Jóhann
Sigurfinnur Bogason, segist
koma þar á hverjum degi enda
sé stemmningin á staðnum
mjög notaleg... „hér eru lista-
Jóhann Bogason segir að hann komi á hverjum degi á Mokka að
£á sér kaffisopa og Uta í blöðin.
verk upp um alla veggi og hér
fiær maður öll blöðin til
lestrar...“
Á Prikinu og
í Skeifunni
Frá Mokka liggur leiðin niður
á Prikið í grenndinni. Þar hittum
við Birgi Pétursson sem segist
koma þar við endrum og sinn-
um enda sé andinn góður á
þessum stað og þar geti hann lit-
ið í blöðin og fengið fréttir.
Bakvið borðið, á Prikinu ræð-
ur hinn brosmildi vert Ragnhild
Djurhus ríkjum og greinilegt er
að hún þekkir flesta gesti sína
með nafni. Þeir bjóða hana allir
velkomna til landsins aftur ffá
Færeyjum.
Kaffistofan Skeifan við gömlu
höfhina lætur lítið yfir sér en
hana sækja eingöngu fastagestir
að sögn Erlu Sigurgeirsdóttur
sem afgreiðir þar... „hingað
koma menn af hafharsvæðinu í
kring á hverjum degi enda er
þetta þeirra sjoppa...“ segir
hún.
Einn fastagestanna sem við
ræðum við, Kjartan Skaftason,
segist hafa komið þarna á hverj-
um degi undanfarin 8 ár en
hann rekur lítið fyrirtæki í ná-
grenni staðarins ... „það er ró-
legt og gott að sitja hérna, fá sér
molasopa og líta í blöðin á
morgnana...“ segir harm.
- FRI
16 VIKAN