Vikan


Vikan - 25.02.1988, Page 24

Vikan - 25.02.1988, Page 24
Sú var tíðin að útlendar konur sóttu til íslands í stórum hópum, og gekk svo langt við lok seinni heimsstyrjaldarinnar að framsæknir menn gerðu jafhvel út skip til að sækja fullfermi af þýskum konum frá hinu stríðshrjáða Þýskalandi. Voru konur þessar almennt fúsar til fararinnar, þar sem ísland var á þeim tíma allsnægtar- land borið saman við þeirra rústaða heimaland. önnur var sú ástæða, sem Vann^ki vóg engu léttar á vogaskálunum, að flestír vörpulegir karlmenn í Þýska- 24 VIKAN landi voru annaðhvort dauðir eftir bar- daga eða fangar sigurvegaranna og því lítt gagnlegir dugmiklum konum hins fallna þriðja ríkis. Fóru þessar konur til kaupa- mennsku og ráðskonustarfa um land alit og settu þær fljótt svip sinn á sínar heima- byggðir hér á landi. Margar þeirra náðu fljótlega þeim völdum á sínum heimilum, sem þær áttu kyn til og ílengdust því á ís- landi, mörgum iruifæddum til ómældrar ánægju. Margir tugir ungra stúlkna frá útlöndum hafa nú aftur gert inn- rás hér á land, aðallega ffá okkar gamla konugsríki, Danmörku. Landtaka þessi ógnar þó engan veginn lífi og limum innfaeddra, nema ef vera skyldi hjörtum ungra sveina, sem búast má við að slái víða nokkru hraðar en venjulega. Stúlkur þessar eru hingað komnar til að vinna við hin ólík- ustu störf, en þær eiga það flest- ar sameiginlegt að þær eru aðal- lega ráðnar til illa borgaðra lág- launastarfa, sem erfitt er að fá innlenda starfskrafta til að sinna. Launin ekki aðalatriðið Varla geta það verið vonir um gull og græna skóga, sem hafa lokkað dönsku stúlkurnar til íslands, því launakjör þeirra eru svo langt frá því að vera aðlað- andi. Sumar dönsku stúlknanna segjast óánægðar hér, þar sem þeim finnst að þær hafi að nokkru leyti verið sviknar, hvað varðar loforð um afkomu og að- búnað, en þær eru þó mun fleiri sem segjast harðánægðar með dvölina á íslandi, enda hafi þær ekki komið hingað til að græða peninga, heldur ffekar að leita á vit ævintýra og kynnast nýju landi og þjóðháttum. Flestar vinna stúlkurnar fyrir lágmarkslaunum, sem eru rúm- ar 30.000 krónur á mánuði, sem er mun lægra en atvinnuleysis- styrkur í Danmörku. Vinnuveit- andinn útvegar stúlkunum oft- ast húsnæði, sem þær verða þó að greiða fullu verði sem getur numið meiru en þriðjungi laun- anna fyrir afnot af herbergi í fé- lagi með einhverri annarri stúlku. Verðlag á ýmsum nausynja- vörum hér á landi kom dönsku stúlkunum nær undantekninga- laust illþyrmilega á óvart, en það er í flestum tilfellum mun hærra en þær eiga að venjast að heiman.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.