Vikan


Vikan - 25.02.1988, Blaðsíða 47

Vikan - 25.02.1988, Blaðsíða 47
SKOP / Kaeri póstur! Ég á við vandamál að stríða. Ég á tvo bræður og tvær systur. Annar bróðir minn er pólitíkus en hinn er nýkominn á Litla-Hraun að aíþlána 16 ára dóm fyrir morð. Móðir mín dó á Kleppi skömmu eftir að ég fæddist. Báðar systur mínar eru vændiskonur og pabbi gamli drekkur og sukkar frá þeim allt sem þær vinna sér inn. Nýlega hitti ég stúlku sem var að losna úr kvennafangelsinu eftir fimm ára dvöl þar, því hún hafði misþyrmt barni sínu. En við elskumst mjög heitt og höf- um ákveðið að gifta okkur. Og þá er það spurningin sem ég vil fá svar við: Á ég að segja henni áður en við giftumst að bróðir minn er pólitíkus? Hafharfjarðar-Halli kom eitt sinn að máli við Guddu konu sína og sagði að tímabært væri að athuga hvað yrði úr 12 ára gömlum syni þeirra. Halli lagði þúsundkall á borð í stofunni og átti hann að tákna verslun og bankaviðskipti. Við hliðina lagði hann biblíu og átti hún að tákna starf á andlegu eða heimspekilegu sviði. Diskur með flatkökum og hangikjöti táknaði bústörf og að lokum lagði Halli viskýflösku hjá þessu ef drengurinn skyldi hafa áhuga á veitingabransanum. Eftir þetta földu Halli og Gudda sig í hlið- arherbergi. Danni sonur þeirra kom skömmu síðar inn í stofuna og sá uppstillinguna á borðinu. Eft- ir að hafa svipast um aðeins fór hann og tók upp þúsundkallinn, bar hann upp að ljósi og Iét svo niður aftur. Hann blaðaði aðeins í biblíunni en leit síðan betur í kringum sig og kíkti út um gluggann hvort einhver væri í grenndinni. Síðan tók hann tappann af viskýflöskunni og þefaði af henni. Að lokum greip hann flöskuna með annarri hendinni og þúsundkallinn með hinni, stakk honum í vasann, biblíunni undir hendina og greip svo diskinn með matnum áður en hann hvarf úr stofúnni. „Fjandinn hafi það Gudda,“ hrópaði Hafnarfjarðar-Halli. „Ég held að við séum með upprenn- andi stjórnmálamann í fjölskyld- unni.“ Þrekvaxinn náungi kom inn á Gauk á Stöng. Hann gekk að troðfullum barnum, lamdi í hann, pantaði sér glas og hróp- Þaö var verið aö ræða um mannætur í skólanum og kennarinn spuröi einn nem- andann hvort hann vissi hvað slíkt væri. „Nei.. „En ef þú boröaöir bæöi föður þinn og móöur hvað væriröu þá?“ „Saddur og munaöarlaus." Og hér er einn fyrir týndu kynslóðina: Hvaö þarf til að sameina Bítlana á ný? Þrjár kúlur í viðbót. aði: „Þegar ég fæ mér í glas fá all- ir í glas." Barþjónninn flýtti sér að fýlla á önnur glös. Þegar sá þrekvaxni hafði klár- að glas sitt bað hann um annað og hrópaði: „Þegar ég fæ mér annað glas, fá allir annað glas.“ Barþjónninn hafði nóg að gera. Þegar sá þrekvaxni hafði klár- að seinna glasið skellti hann fimmhundruðkalli á borðið og hrópaði: „Þegar ég borga, borga allir.“ Prestfrúin var þekkt fyrir að vera nýtin úr hófi fram, einkum á matvælin. Eitt sinn er þau eru sest að hádegisverði hún og presturinn tekur hún eftir að presturinn rennir sér strax í matinn án þess að flytja borð- bæn fyrst. Hún spyr hann hvort hann ætli ekki að blessa mat þeirra að venju. Presturinn lítur um stund yfir borðið og segir svo: „Mér sýnist ekki vera neitt hér sem ég hef ekki blessað þrisvar eða svo.“ VIKAN 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.