Vikan


Vikan - 25.02.1988, Blaðsíða 30

Vikan - 25.02.1988, Blaðsíða 30
Símon tók þátt í mörgum barþjónakeppnum innanlands og utan. Myndin er tekin í kokteilkeppni á Mallorka 1967. fundum. — Svo þið urðuð að hætta þessu eða hvað? — Já, já, það er kannski svolít- ið sannleikskorn í þessu. Það var þannig að ég hafði gott samstarf við kollega mína erlendis og þeir sendu mér oft kort, skemmtilegar nýárskveðjur. Svo mér datt í hug að gera slíkt hið sama. Ég fékk Halldór Péturs- son, þann frábæra listamann til að teikna mig og mína starfsfé- laga sem voru með mér á barnum. Við sendum þetta út og það sem eftir var sendum við vinum okkar og viðskiptavinum. En þetta varð vinsælt og við fórum að senda fleirum og fleir- um, bæði fýrirtækjum og öðrum viðskiptavinum. Það voru marg- ir sem hreinlega báðu um þessi kort. En svo kom þessi kjafta- saga og ég veit ekki hvort hún er alveg sönn. En brandarinn er góður. Við gerðum þetta í 10 ár í röð en svo var þetta hreinlega orðið okkur ofviða og of fjárfrekt svo við urðum bara að hætta þessu. Nú eru þessi kort orðnir safn- gripir sem ég meira að segja á ekld sjálfur. Góð Þorraátvögl fengu verðlaun — Þegar ég er að ræða við þig um starfið í Nausti þá kemur Þorramaturinn og Þorrablót upp í hugann. Naustið er algjör brautryðjandi með Þorramat er það ekki? — Jú, jú, það var Halldór Gröndal sem eiginlega fann þetta upp. Það var deyfðartími, held ég, eitt árið og hann bara hreinlega fann þetta upp. Mig minnir að hann hafl sagt að hann hafi dreymt um þetta. En hann dreif þetta af stað og fékk meira að segja Kristján Eldjárn forseta, sem þá var forstöðu- maður Þjóðminjasafnsins til liðs við sig. En hugmyndin er frá Halldóri. - En hvernig var það með Þorramatinn, fengu góð átvögl verðlaun? - Já, það var þannig að ef menn kláruðu úr torgi, ég man bara ekki hvort það var eitt eða tvö kíló, þá áttu þeir að fá vinning. Það voru nokkrir sem fengu vinning. En svo skrifaði Hannes á horninu í Alþýðublað- ið um þetta og fannst þetta óþjóðleg íþrótt og var mikið á móti þessu. Ég held bara að upp úr þessu hafi þetta verið tekið af. En það voru margir sem reyndu þetta, bæði fílsterkir karlmenn og jafnvel konur. Ég 30 VIKAN man einu sinni eftir miðaldra konu sem kom og spurði hvort hún fengi ekki verðlaun ef hún borðaði úr trogi og gæti klárað það. Jú, það var hægt og hún spurði hver verðlaunin væru. Það var ein brennivínsflaska. Henni var sagt hvað hún kostaði í Ríkinu. En hún vildi vita hvað hún kostaði í Naustinu og henni var sagt það. Þá sagðist hún ætla að prófa en var nokkuð lengi að borða þetta allt saman. Þegar kom að síðustu bitunum gat hún ekki einu sinni setið heldur stóð við þetta og þegar síðasti bitinn rann niður þá hljóp hún niður og hefúr líklega misst allt út úr sér. En svo kom hún upp og vildi fá sín verðlaun. Það átti að pakka brennivínsflöskunni inn fyrir hana, en þá sagði hún: nei, ég vil fá andvirði flöskunn- ar. Þá var henni sagt hvað flask- an kostaði í Ríkinu en þá sagði hún aftur nei. Hún vildi fá and- virðið eins og það kostaði í Nausti. Og svo útskýrði konan að hún hefði lagt þetta á sig til að ganga frá víxli eða einhverri afborgun sem hún þurfti að borga daginn eftir. Þegar konan hafði rakið raunir sínar og eftir nokkrar vangaveltur þá ákvað Halldór að borga henni þetta og þar með kvaddi blessuð konan. — Mannstu eftir fleiru svip- uðu? — Nei, ég man ekki eftir fleiru í augnablikinu sem ég vil muna. Ég man þó eftir skemmtilegum vörubílstjóra sem kom árlega og bað alltaf um desert á eftir Þorramatnum. Hann fór létt með það. Fólk sem ekki smakkar vín á samt erindi við okkur — Fyrst þú varst framleiðslu- maður og barþjónn á sama stað í 31 ár þá hlýtur þér að hafa lík- að starfið? - Já, ég var sáttur við þetta starf og var stoltur af því vildi verða betri en ég var. En svo fékk ég áfall og varð að hætta. Þetta var krefjandi starf og er meira en það sýnist. Já, krefjandi og taugastrekkjandi starf. Ég fann það eiginlega best eftir að ég var hættur. Það þarf mikla þolinmæði og mikla lagni. - Ekki varst þú hugmynda- smiður að „Asnanum"? — Nei, hann hét Theódór heitinn Ólafsson höfúndur hans. En það eru til mjög svipaðir am- erískir drykkir. „Asninn“ hefur alltaf verið afskaplega vinsæll drykkur. En menn verða að passa sig á honums vo þeir verði ekki að ösnum sjálflr. — Ég minnist þess að þú tókst þátt í mörgum barþjónakeppn- um og þér gekk oftast vel? - Já, ég tók þátt í mörgum keppnum. Ég vil geta þess að ég er einn af stofnendum Barþjóna- klúbbs íslands og nú er ég orð- inn heiðursfélagi þar. Keppnir voru árlegar og ég stóð mig oft bærilega. Svo kepptum við víða erlendis. íslensldr barþjónar hafa staðið sig mjög vel á er- lendum vettvangi. Ég hef þá skoðun að með tilkomu Bar- þjónaklúbbsins þá hafl öll vín- menning lagast til mikilla muna, ef hægt er að tala um menningu í því sambandi. En ég held bara að menn fari mikið betur með vín en áður almennt séð. Ég vil líka nefna það að það er regin misskilningur að fólk sem ekki smakkar vín eigi ekki erindi við okkur. Það er nefnilega svo að barþjónninn hefúr marga mjög góða óáfenga drykki. Margir vita ekki um þetta. En ég legg áherslu á að allir góðir barþjón- ar geta blandað mjög ljúffenga óáfenga drykki. — Nú ertu ekki lengur á Nausti en starfar í Alþingishús- inu? - Já, ég varð fyrir áfalli, fékk eiginlega tvöfalt heilablóðfall og niissti málið og ég varð að læra að ganga upp á nýtt og tala upp á nýtt. Mér hefúr eiginlega ekki tekist að ná röddinni upp aftur, en ég var svo lánsamur að fá starf á Alþingi og er þar við gæslu og vinn við skráningar. Þegar ég sá að ég gat ekki unnið lengur við barþjónastarf- ið, þá losaði ég mig við allt sem minnti á starflð. Ég átti til dæmis mikið safn af bókum um kokt- eila, vín og barþjónastarfið, lík- lega mesta safh hérlendis í einkaeign. Sonur minn fékk þetta safn en hann er lærðður ffamreiðslumaður. Já, það hefur margt breyst. Það er búið að breyta til á Naustinu og nú hef- ur Baðstofan þar sem ég vann sem lengst á barnum verið skírð og heitir Símonarsalur. Bjór fyrir alla eða engan Annars vil ég bara segja það að ég held ég hafi verið gæfu- samur. Úr starfinu á ég góðar minningar og ég kynntist geysi- lega mörgum. Það er sagt að ein kynslóð sé 20 ár og þá er ég bú- inn að vera í þessu tvær kyn- slóðir. Það er til dæmis sagt um bjórinn að það taki eina kynslóð eða um 20 ár að aðlagast bjórn- um þannig að fullnaðarreynsla komist á. - Þú hefúr verið í svo náinni snertingu við vínneyslu. Held- urðu að ef bjórinn verður leyfð- ur þá muni ástandið versna eða batna? — Sjálfúm þykir mér bjór góður og held hann ætti að vera til í Iandinu. Ég vil ekki að menn þurfi einhverjar gráður til að fá bjór, eða einhvern titil eins og að vera flugmaður, sjómaður, sendiráðsmaður eða annað í þeim dúr. Allir menn eiga að vera jafnir annaðhvort á enginn bjór að vera í landinu, eða bjór fyrir alla. Sjálfúr hef ég aldrei verið neinn drykkjumaður en þykir gott að fá mér bjór þegar ég er erlendis. - Þú nefndir áðan að drykkjusiðir hafi almennt lagast. Heldurðu þá ekki að bjórinn muni spilla ástandinu? - Nei, ég held að bjórinn geri það ekki. Það á að gera meira af því að kynna létt vín og bjór. Það þarf að setja létta vínið í öndvegi. Kanadamenn hafa bjór en það er ekki hægt að kaupa hann nema í sérstökum verslunum. Þar er seldur bjór og einnig gosdrykkir og tóm gler eru keypt til baka. Þarna er ekki hægt að kaupa bjór í mat- vöruverslunum og ég held að þetta yrði rétta leiðin hér. — Það er ástæða til að þakka þeim kunna barþjóni Símoni í Nausti fýrir að taka þátt í að rifja upp og líta yfir farinn veg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.