Vikan - 25.02.1988, Page 42
Stjörnuspá fyrir vikuna 25. febrúar - 2. mars
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
þessari viku munt þú
verða að ráða fram úr miklu
vandamáli sem getur breytt efna-
hag þínum. Ef þú átt börn er hætt
við því að þau lendi í klandri en
skeyttu samt ekki skapi þínu á
þeim; þau eru að líkindum sak-
laus.
Nautið
20. apríl - 20. ma(
Ef þú ert duglegur og iðinn
þessa viku eru allar líkur á því að
þú aukir vinsældir þínar og fáir
jafnvel launahækkun! Á heimilinu
kann að vera að þú lendir ( orða-
sennu og væri skynsamlegt fyrir
þig að reyna að ná sættum sem
fyrst.
Tvíburarnir
21. mai - 21. júní
Þér býðst einstakt tækifæri
þessa viku en hætt er við að þú
gerir þér ekki grein fyrir hversu
þýð'ingarmikið þetta er. Gríptu
gæsina meðan hún gefst! Ungt
fólk mun koma að máli við ástvin
sinn um helgina.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Miðvikudagurinn verður
mikill annadagur þessa viku. Þú
ættir að fara heldur sparlega með
peningana þessa viku. Amor skýtur
einni af örvum sínum niður ( kunn-
ingjahóp þinn en ekki er víst að
þér sé nema miðlungi vel við það.
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst
Þessa viku getur þú tekið
lífinu með ró. Þú virðist fá nægan
tíma til þess að skemmta þér en
notaðu einnig tímann til annars.
Um helgina verður þér að öllum
líkindum boðið í eftirsóknarvert
samkvæmi. Heillatala 5.
Meyjan
23. ágúst - 22. sept.
Einhverjar erjur verða í fjöl-
skyldunni út af einhverjum „svört-
um sauði" og er aldrei að vita
nema nú getir einmitt bætt úr
þessum erjum. Þó er ekki víst að
fortölur þínar verði teknar gildar.
Helgin verður skemmtileg.
Vogin
23. sept. - 23. okt.
Þú skalt nota allar tóm-
stundir þínar þessa viku til þess að
hjálpa góðvini þínum. Seinni hluta
vikunnar munt þú fá heimsókn
sem þér er allt annað en vel við.
Líklega verður þessi heimsókn til
þess að koma upp um eitthvað.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Lífið virðist ætla að leika
við þig þessa viku og þú átt það
sannarlega skilið. Einhver sending
kemur til þín, líklega frá útlönd-
um, en hætt er við að þú verðir fyr-
ir nokkrum vonbrigðum með
hana.
Bogamaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Það gerist eitthvað furðu-
legt á miðvikudag eða fimmtudag
og þá færðu aldeilis að sýna hvað í
þér býr. Konur ættu að hugsa sig
um tvisvar áður en þær leggja (
stórræði einkanlega ( ástamálum.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Þú ferð í einhverja ferð '
að reka erindi kunningja þíns se
ekki sér sig fært að fara í ÞesS
ferð. Þú skalt leitast við að kynna _
kunningjum þínum nánar því f
hópi þeirra leynist ef til vill Iífsfór
nautur þinn. Heillatala 8.
Vatnsberinn
20. janúar- 18. febrúar .
Þú hefur verið full °.
síðustu vikur en nú steðja van
málin að. En ef þú sýnir viljasty^ ,
og festu muntu uppskera ríkule9_
Á föstudag gerist eitthvað se
kemur þér þægilega á óvart.
Fiskar
19. febrúar - 20. mars
Eftir helgina mun kunniTO
þinn verða til þess að létta at fV
þungum áhyggjum. Sparaðu e
að sýna honum þakklaeti P
Kunningi þinn sem búið hefur
lendis mun koma öllum á óvar
er-
42 VIKAN