Vikan - 20.04.1989, Blaðsíða 66
5MYRTINC5
ANTAEUS
Herrailmurinn sem heldur vin-
sœldum sfnum - og meira en það
Herrailmurinn Anr-
aeus er annar herra-
ilmurinn sem
kemur irá Chanel.
Hann hefur nú verið á mark-
aðnum í meira en 7 ár og þykir
hafa sannað sig vel. For-
ráðamönnum fyrirtækisins
þótti samt ástæða til að kanna
nánar hvernig neytendum lík-
aði þessi ilmur þeirra.
Strax þegar ilmurinn kom á
markaðinn tók hann forystu í
„karlmenn með karakter"
hreyfingunni sem þá var og er
í gangi. Síðan hefur Antaeus
stöðugt verið að sækja á eins
og niðurstaða könnunarinnar
sýndi greinilega. Þeir sem
voru spurðir voru beðnir að
lýsa ilminum og voru niður-
stöður sem hér greinir:
Magnaöur 42%
Hann vekur eftirtekt 42%
Hann er óvenjulegur 16%
Aðrir sögðu að hann hefði
karakter, væri öðru vísi, sækti á
mann, ríkulegur, seiðandi,
karlmannlegur án þess að vera
karlrembulegur. Síðan var
spurt hvaða mynd hann vekti í
huganum:
Sumarhita í sveit 33%
Borgarlífið 16%
Aðrir nefhdu ævintýralegar
nætur, fjarlægar eyjar, en þeir
sem töluðu um borgarlífið
virtust gera sér eins konar
James Bond í hugarlund.
Að tæla einhvern
Hvers vegna velja menn Ant-
aeus? Einna helst virðist ilmur-
inn auka sjálfetraustið og einn-
ig:
Hann leggur sitt af mörkum
þegar tcela á 70%
Hann fœrir mér orku og fœr
mig til að gera eitthvað 30%
Þeir sem spurðir voru sögðu
síðan flestir að konurnar í lífi
þeirra hefðu samþykkt val
þeirra á Antaeus.
64 VIKAN 8. TBL1989
Hlýir jarðtónar og blámi himinsins, er uppistaðan í nýju
sumarlínunni í andlitsförðun frá Dior. Á augun eru notaðir
flmm tóna jarðlitimir og „Elegance“ heitir.varaliturinn.
BLÁTT OG GULL
- nýja línan frá Dior
TEXTI:
BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
Einfaldleiki, er lýsing-
in sem þeir hjá Dior
nota um nýju sumar-
línuna sína í andlits-
förðun. Tyen heitir sá sem á
heiðurinn af samsetningunni
og eru náttúrulegir tónar þar
ráðandi — himinn og jörð.
Fimm hlýir jarðtónar í augn-
skuggum. Munnurinn í mjúk-
um kóraltónum, neglurnar í
fjórum ffábærum útfærslum af
bleiku.
Áferðin á andlitinu er mött,
eins og þunn, nærri ósýnileg
slikja liggi yfir því. Notað er
púður, Poudre Plus fine, sem
kemur í fagurlega skreyttri
öskju og púðurburstinn er
með nýju lagi; hálfmánalagað-
ur. Púðrið er silkimjúkt og í
því eru efhi sem vernda húð-
ina fyrir rakamissi.
Nýi púðurburstinn frá Dior er hálfrnánalagaður.