Vikan - 20.04.1989, Blaðsíða 16
MYND: PÁLL KJARTANSSON
Nýstárleg kennsluaðferd
Rœtt við Önnu Jeppesen um leikrœna tjáningu í skólastarfi
TEXTI: GUÐNÝ DÓRA GESTSDÓTTIR
Við erum stödd í skólastofu. Nem-
endur standa grafkyrrir eins og
myndastyttur. Kennarinn gengur á
milli, gefur styttunum líf og spyr:
„Hver ert þú og hvaðan kemur þú?“
Lévaxin stúlka svarar hát og skýrt.
„Ég er útilegumaður og bý í fjöllun-
um. Ég hef ekki fengið matarbita í
heila viku. Mér líður illa. Annað fólk
hef ég ekki séð í 10 ár.“ Það er verið
að fara í þjóðsögur hjá 6. bekk. Þetta
er dæmi um kennslustund þar sem
leikræn tjáning er notuð sem aðferð
við kennsiu.
Hvað er leikræn tjáning?
Hér á landi er leikræn tjáning tiltölulega
nýtt fyrirbæri í skólastarfl. Það er í fyrsta
sinn í vetur sem verðandi kennurum er
boðið upp á valnámskeið í leikrænni tján-
ingu. Reyndar hafa starfandi kennarar átt
kost á að kynnast henni á endurmenntun-
arnámskeiðum. í Æfinga- og tilraunaskóla
Kennaraháskóla íslands hefur leikræn tján-
ing verið notuð undanfarin ár undir leið-
sögn Önnu Jeppesen. f nágrannalöndum
okkar er komin nokkur hefð á notkun á
leikrænni tjáningu í skólastarfi. T.a.m. hafa
Bretar notað þessa aðferð í einhverju mæli
ffá aldamótum og Norðmenn eru komnir
svo langt að þeir hafa gert leikræna tján-
ingu að þverfagi í námskrá. En hvað er
leikræn tjáning?
Leikræn tjáning er aðferð eða leið sem
nota má í skólastarfi og byggir á því að
virkja alla, bæði nemendur og kennara og
fá þá til að vinna af innlifun með hin ýmsu
viðfangsefhi. Til þess verður viðkomandi
að nota hugann, tilfinningarnar, líkamann
og röddina. Yfirleitt fer vinnan fram í
tveimur heimum, hinum raunverulega,
sem kennarinn má aldrei missa sjónar af
og hinum ímyndaða. Leikræn tjáning
dýpkar skilning nemenda á námsefninu,
auk þess sem þeir verða hæfari til að skilja
sjálfan sig og þann heim sem við lifum í.
Markmiðið með leikrænni tjáningu er
að leggja áherslu á vinnuferlið og fá nem-
endur til að tjá sig í töluðu og rituðu máli
á sem fjölbreytilegastan hátt. Aðstæður
eru skapaðar til að koma ímyndunaraflinu
af stað og setja sig í spro annarra. Flestir
sérfræðingar í leikrænni tjáningu setja
barnið sem miðdepil og vinna að því að
hver einstaklingur geti tjáð sig á sinn hátt.
„Það snýst hreinlega allt
um leikræna tjáningu“
Anna Jeppesen er eini starfandi kennar-
inn í grunnskóla, hér á landi, sem hefur
sérhæft sig í leikrænni tjáningu í skóla-
starfi. Hún nam þau ffæði í University of
LEIKLI5T
1 6 VIKAN 8. TBL. 1989