Vikan - 20.04.1989, Blaðsíða 25
/
Ungfrú ísland, Linda Pétursdóttir, var viðstödd krýningu
Herra ísland og sést hér óska honum til hamingju.
svo er það snóker, sem ég spila
mér til mikillar ánægju,“ segir
Eiður.
Það voru margs konar verð-
laun sem komu í hlut Herra ís-
land auk þess sem hann fékk
glænýjan Peugeot 205 Gti til
að leika sér á fyrstu daga eftir
krýninguna. Ferðamiðstöðin/
Veröld býður honum með til
Benidorm þegar hress hópur á
vegum World Class og tíma-
ritsins Samúels heldur þangað
í sæluna í sumar. Þá fékk Herra
ísland fataúttekt að verðmæti
kr. 50 þúsund í tískuverslun-
inni Valentínu, sportfatnað frá
Adidas umboðinu, Rockford
snyrtivörur frá heildverslun-
inni Gasa og skófatnað ífá
Strikinu.
Eiður hlaut einnig titilinn
Ljósmyndaíýrirsæta íslands
1989 og færði Gunnlaugur
Rögnvaldsson, aðstoðarrit-
stjóri Samúels og umsjónar-
maður keppninnar, herranum
ljósmyndavél af gerðinni
Canon Eos frá Ljósmyndabúð-
inni við Laugaveg.
Þá má geta þess að keppend-
urnir völdu vinsælasta kepp-
andann og reyndist það vera
Hafsteinn Viðar Kristinsson.
Þetta er í annað sinn sem
Herra ísland er valinn og
krýndi Arnar Diego, forveri
Eiðs, hann með því að bregða
myndarlegum pípuhatti á höf-
uð honum. Aðstandendur
keppninnar eru þeir Norð-
lendingar Kristján Kristjáns-
son og Sveinn Rafnsson í sam-
vinnu við tímaritið Samúel.
Og nú má ætla að kvenþjóð-
in bíði spennt eftir því hvernig
skil hið kvensama tímarit gerir
fegurðarkónginum...
Þegar ungur maður hef-
ur hug á að reyna fyrir
sér í tískusýningar-
bransanum og sem ljósmynda-
fýrirsæta er ekki ónýtt að
verða sér fyrst úti um titilinn
Herra ísland. Þannig getur
Eiður Eysteinsson, 18 ára
Kópavogsbúi, hrósað happi, en
hann var kjörinn Herra ísland
1989 á glæsilegri samkomu á
Hótel íslandi 6. apríl sl.
„Ég hef þegar komið fram í
nokkrum auglýsingum og
langar til að starfa meira að
slíku ef kostur er. Fyrirsætu-
störfin eru eitt aðaláhugamál-
ið,“ segir Eiður. Annað áhuga-
mál Eiðs er líkamsrækt og hef-
ur hann stælt skrokkinn með
æflngum í World Class undan-
farna mánuði. Einnig býr hann
að bæði handboltaæflngum og
blaki, sem hefur að vísu orðið
að víkja að mestu fyrir líkams-
ræktinni í World Class. „Og
Strandfatnaður frá
8. TBL. 1989 VIKAN 25