Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 16
Mig langar að fara í framhaldsnám en ég
er þó staðráðin í að taka mér frí frá námi í
eitt ár. Ég er á náttúrufræðibraut í skólan-
um og vildi helst fara út í eitthvað skylt því
sem ég hef verið að læra. Mér finnst arki-
tektúr spennandi. Það er verst hve margir
eru í þeirri grein, í Danmörku eru t.d. um
300 námsmenn í þeirri grein núna. At-
vinnumöguleikarnir eru því ekki miklir.
Einnig hef ég áhuga á matvælaffæði. í
skólanum var matreiðsla mín aðalgrein og
mér finnst hún skemmtileg. Það er því
ýmislegt sem kemur til greina.“
Hvað gerir þú í tómstundum?
„Ég er mikið fyrir útivist. Mér finnst
mjög gaman að vera á vélsleða og einnig
hef ég farið mikið á skíði. Þó er það farið
að mirinka núna þar sem ég tek vélsleðann
fram yfir. Ég ferðast töluvert og hef gaman
af að fara í útilegur. Bekkurinn minn hefur
stundum tekið sig saman og farið í sumar-
bústað um helgar. Útlönd ffeista líka. Ég
gæti vel hugsað mér að fara með „inter-
rail“ og vera eina tvo mánuði á ferðalagi.
Hins vegar hef ég ekki áhuga á að leigja bíl
og þeytast á þann hátt á milli landa. Ég
horfi ekki mikið á sjónvarp en skrepp í bíó
öðru hverju. Einnig finnst mér gott að hafa
það þægilegt heima í stofu og taka mynd-
bandsspólusegir hún og brosir við. „Ég
er ekki mikið á skemmtistöðum, fer ffekar
í partí til vina og kunningja. Ég er mikið
fyrir bækur og þá helst afþreyingarefni, þó
hefur upp á síðkastið verið svo mikið að
gera að ég hef ekki gefið mér tíma. Þegar
ég var yngri las ég ofsalega mikið. Það var
næstum ekkert eftir á bókasafhinu handa
mér að lesa,“ segir hún hlæjandi.
Hvenær líður þér best?
„Mér líður best þegar ég er með vinum
mínum og ég kann sérstaklega vel við mig
uppi í sumarbústað í góðum félagsskap. Ég
get nú ekki sagt að ég kunni best við mig
uppi á sviði þó svo að mér líði ekkert illa
þar heldur. Aftur á móti hef ég aldrei verið
fyrir það að vera mikið máluð.“
Hvað metur þú mest í fari annarra?
„Mér finnst það mikill kostur þegar fólk
er hreinskilið og kemur hreint og beint
ffam.“
Ertu hjátrúarfúll?
,Já, örlítið og þá svona almennt. Mér er
ekkert um það gefið þegar svartur köttur
hleypur fyrir bílinn hjá mér. Þá hugsa ég
kannski sem svo: Nú verður slys. En sem
betur fer gleymi ég því strax."
Trúirðu á spádóma?
„Ég þori ekki að fara til spákonu þannig
að ég hlýt að trúa á þá. Annars held ég að
það sé ekkert gott að fá að vita of mikið
um ffamtíðina eða pæla of mikið í hlutun-
um.“
Hefúrðu áhuga á stjórnmálum?
„Nei, ég hef engan áhuga á þeim. Mér
finnst þetta allt vera sama ruglið. Ef það
væru kosningar núna myndi ég ekkert vita
hvað ég ætti að kjósa.“
Að lokum: Hver er stefna þín í líf-
inu?
Hún verður hugsi og segir svo eftir
stutta stund: ,Að njóta lífsins og lifa fyrir
líðandi stundu."
Á neðri myndinni er Hugrún Lind með unnusta stnum, Magnúsi J. Magnússyni, en á
þeirri efri með foreldrum sínum, Kolbrúnu Baldursdóttur og Guðmundi F. Ottóssyni.
aftur og þá ákvað ég að slá til, enda er fjöl-
skylda mín mjög jákvæð í garð keppninn-
ar.
Er góður andi meðal keppendanna?
„Við sem kepptum um titilinn „Ungfrú
Reykjavík" vorum ekki margar og það held
ég að sé ástæðan fyrir hve góður andi
myndaðist á meðal okkar. Þetta var mjög
samstilltur hópur. Við erum fleiri sem
keppum um titilinn „Ungfrú fsland" og
náum því ekki alveg eins vel saman.“
Varstu kvíðin fyrir keppnina?
„Nei, mjög lítið. Ég var eiginlega alltaf
að bíða eftir kvíðanum en hann kom
aldrei. Mér fannst ekkert ofsalega erfitt að
koma ffam á sundbol. Þó kannski rétt áður
en ég átti að koma ffam, svo var þetta allt
í lagi.“
Bjóstu við að vinna?
„Ég bjóst ekkert frekar við því, hélt
reyndar að það yrði önnur. Samt hugsaði
ég ekki mikið út í það, þó fannst mér allt
geta gerst. Þegar svo úrslitin voru kynnt
brá mér alveg rosalega."
Hvað er það sem þú vilt fá út úr
svona keppni?
„Ég veit það eiginlega ekki. Ég hef í raun
ekki gert mér grein fyrir því. Tilgangurinn
er þó sennilega sá að koma sér á ffamfæri.
Ég gæti vel hugsað mér sýningarstörf og
auglýsingar sem aukavinnu í framtíðinni."
Hvað langar þig að gera eftir stúd-
entspróf?
„Núna í vor er ætlunin að fara í útskrift-
arferð með skólanum til Rhodos. Við sem
erum í 4. bekk rekum sjoppu skólans og
ágóðinn gengur upp i ferðakostnaðinn.
Þegar heim er komið hef ég hugsað mér
að vinna mikið. Ætli ég endi ekki í malbik-
inu aftur,“ segir hún brosandi. „Síðasta
sumar var ég flokksstjóri í malbikunar-
vinnu. Ég hafði bíl til umráða, keyrði á
milli gatna og fýlgdist með framkvæmd-
um. í fyrra var ég eina stelpan og kunni
ágætlega við mig.
16 VIKAN 10. TBL 1989