Vikan


Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 52

Vikan - 18.05.1989, Blaðsíða 52
TEXTI: ÞORSTEINN E Skáldið sem skrifaði þessar klassísku línur vissi hvað hann var að tala um: Timburmenn- irnir, sem hann lýsir svo ljóð- rænt eru í raunveruleikanum „köld grá dögun" fyrir hinar óteljandi frumur um allan lík- ama þinn, sem eru að reyna að koma starfsemi sinni í sitt fyrra horf, eftir flóð af alkóhóli. Hreint út sagt: Alkóhól, þeg- ar það er innbyrt í óhófi, er hreint eitur fyrir líkama þinn. Það skaðar og jafhvel drepur ffumur. Timburmennirnir eru fyrstu lyfjafræðilegu áhrif alkóhóisins eftir að víman er horfin. Dæmi- gerð einkenni eru flökurleiki, fólk kúgast, fær uppköst, óþægindi ffá meltingarfærum, lystarleysi, linar hægðir eða niðurgangur, innvortis krampar, höfuðverkur, tauga- óstyrkur, slappleiki og vöntun á orku. Oft líður þér þannig, að þig langar til að skríða inn í dimma þögla holu og vera þar. Timburmenn af verstu gerð geta gert þér lífið verulega erf- itt allt að 24 tímum og skilið eftir sig vanlíðan í tvo til þrjá daga. Þess má geta, að gerð hefur verið athugun á hópi fólks, með alveg heilbrigða maga. Það var látið innbyrða töluvert magn af áfengi og var maga- speglað daglega eftir það. Kom þá í ljós að magaslímhúð þess var blóðhlaupin og rauð í allt að viku tíma. Ætla má, að magaslímhúð fólks, sem neytir töluverðs áfengis um hverja helgi, nái aldrei að jafna sig. Hve mikið áfengi þarf til að gera allt þetta? Það veltur á ýmsu: Fólk hefur mjög mis- munandi lífefnafræðilega starf- semi og bregst því misjafnlega við áfengi. Sumir einstaklingar Eðli timburmanna Hár hundsins Dökkbrúnt bragð, brennandi þorsti, höfuð, sem er tilbúið að klofna og springa... Enginn tími fyrir glens, enginn tími íyrir hlátur - Kalda grá dögun morgunsins eftir. - George Ade „Iðrun“ 1903 getur virkað, en það eru til betri lausnir sýna mjög mikil viðbrögð við mjög litlu magni. Læknavísindin segja, að sér- hvert magn yfir 60 ml af 45% alkóhóli á dag eða jafngildi í léttu víni eða bjór, sé magn sem skaði líkama okkar. Fylgi- fiskar slíks magns af vínanda eru, há tíðni sjúkdóma og dauða. Bjór inniheldur 20 ml af alkóhóli í 400 ml krús. Eitt glas af borðvíni, u.þ.b. 200 ml, er hlaðið 30 ml af alkóhóli. Komist hefur verið að því, að sumt fólk hefur mjög mikið ofnæmi fýrir efhum sem finn- ast í áfengum drykkjum, svo sem malti, geri, hveiti, byggi, HEIL5A 50 VIKAN 10.TBL1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.